Fréttatíminn


Fréttatíminn - 20.06.2014, Blaðsíða 60

Fréttatíminn - 20.06.2014, Blaðsíða 60
 Í takt við tÍmann Birna ketilsdóttir schram Hefur aldrei farið í ökutíma Birna Ketilsdóttir Schram er nítján ára miðbæjarmær sem var að útskrifast úr MR. Hún er ritstjóri veftímaritsins Blæs sem kom út í fyrsta sinn í vikunni. Birna er kaffifíkill og komst að því um daginn að Ísland er fáránlega flott land. Staðalbúnaður Ég hef mikinn áhuga á tísku en þar sem ég er nýbúin með menntaskóla hef ég ekki alltaf efni á því að kaupa þau föt sem mig langar í. Mig dreymir til dæmis oft um flíkur í Aftur og Geysi. Fyrir mig skiptir mestu að vera í þægilegum fötum, ég geng mikið í þægilegum galla- buxum og ég á mikið af yfirhöfnum. Ég er eiginlega með dellu fyrir yfirhöfnum enda hentar það vel fyrir íslenskt veður- far þar sem maður fer stundum ekki úr yfirhöfninni. Ég var mjög glöð þegar strigaskór komu aftur í tísku því ég vil ganga í sjúklega þægilegum skóm eða boots, ég er ekki mikið á fínum pinna- hælum. Hugbúnaður Ég fór á Skjaldborg fyrir vestan um dag- inn og komst að því að Ísland er fárán- lega flott land. Ætli ég hafi ekki verið með of mikla unglingaveiki þegar ég var yngri til að njóta þess. Nú er að  appafengur Brazil – World Soccer Finals Þetta app er nauðsynlegt fyrir fótbolta- fíklana á meðan HM stendur yfir. Í appinu er allir leikir í beinni textalýsingu. Uppfærslan er hröð og maður missir ekki af neinu. Fyrir leik er hægt að skoða byrj- unarlið, stöður í riðlum, leik- vangana og meira að segja dómarana. Í appinu er svo hægt að velja sitt uppá- haldslið og fá meldingar um það hvað er langt í leik liðsins. Þegar leikurinn er í gangi þá koma meldingar um leið og mörk- unum byrjar að rigna inn. Ef svo ólíklega vill til að mað- ur sé ekki að horfa. Hægt er að nálgast upp- lýsingar um öll lið keppninnar, alla leikmenn, yfirlit yfir markaskorara, fjölda stoðsendinga, fjöldi gulra og rauðra spjalda og allt sem fót- boltafíkilinn þyrstir í. Appið er mjög einfalt í notkun og umhverfið er mjög aðgengilegt. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is UMHVER FISVÆN AR VÖRUR FRÁ KEM I SEPT O AID eru þurrfrystar örverur tilbúnar til að brjóta niður allan lífrænan úrgang í rotþróm. Samsetning 13 mismunandi örvera hjálpar til að vinna á og minnka fastan úrgang og breyta í fljótandi form ásamt því að eyða allri ólykt frá rotþrónni. Einfalt í notkun; sett í klósett­ skálina og beðið í 20 mínútur, því næst er efninu skolað niður. ODORITE er örveruhreinsir sem leysir upp fitu og eyðir ólykt, jafnvel á erfiðustu stöðum. Fjölhæft örveruhreinsiefni, öflugt til niðurbrots og hreinsunar á fitu og eyðir allri ólykt. Odorite er samsett úr örverum og ensímum ásamt PH­ hlutlausum og mjög virkum hreinsandi íblöndunar efnum. Odorite hentar vel í rotþrær, ferðaklósett, ruslageymslur, skip og matvælaiðnað. Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 415 4000 Opið: Mánudag ­ fimmtudags: Frá kl. 8.00­17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00­17.00. KOMDU ROTÞRÓNNI Í LAG MEÐ SEPT­O­AID OG ODORITE Mac Book Pro. Allt líf mitt er í þessari tölvu. Ljósmynd/Hari klárlega nýtt áhugamál að ferðast um landið. Ég er mikill kaffifíkill og uppáhalds kaffihúsið er Kaffitár. Þar hitti ég líka alla sem ég þekki. Svo finnst mér rosa gaman að vera með vinum mínum og auðvitað að fara út á lífið. Ég horfi ekki mikið á sjónvarp en fylgist aðeins með þátt- um. Ég var að byrja að horfa á Game of Thrones og í vetur féll ég fyrir Scandal. Svo syrgi ég mjög dönsku þættina Borgen. Meðal markmiða í sumar er að hlaupa í Reykjavíkur- maraþoninu og lesa fleiri bækur. Á náttborðinu núna er Lean In eftir Sheryl Sandberg. Vélbúnaður Eins og hvert annað ungmenni í dag er ég með iPhone 5. Síminn lifði það af að detta út um gluggann á þriðju hæð. Svo er ég með Macbook Pro og þessi tvö tæki eru alveg föst við mig. Sérstaklega undanfarið þegar ég hef verið að vinna mikið í vef- tímaritinu. Í símanum nota ég þessi dæmigerðu öpp; Instagram, Snapc- hat og Twitter en líka Asana. Það er gott í verkefnum eins og Blæ til að hafa yfirsýn. Svo var vin- kona mín að sannfæra mig um að fara á Tinder, ég veit ekki hvað mér á að finnast um þetta allt saman. Aukabúnaður Ég elska að elda og borða góðan mat. Meðal þess sem er í uppáhaldi er grillaður íslenskur fiskur, sushi og humar. Ég fíla Snaps mjög mikið, maturinn er góður og stemningin er eins og maður sé kominn til út- landa. Svo er Kex mjög næs til að kíkja í bjór og hitta vini sína. Ég hef aldrei farið í ökutíma og á ekki hjól svo ég er bara labbandi. Það er svolítið gert grín að mér fyrir að vera ekki með bílpróf og ég þarf kannski að gera eitthvað í því ef ég ætla að fara að ferðast um landið. Ég get ekki allt- af verið að hengja mig á aðra. Ég skráði mig í háskóla í haust en samt er rosa óvíst hvað ég geri. Ég hef áhuga á öllu sem tengist menn- ingunni í Reykjavík og hef gaman af því að taka þátt í að gera hana skemmti- legri og betri. Verk eftir Erró sem foreldrar mínir keyptu þegar ég var lítil. Það hefur fylgt okkur síðan að ég man eftir mér og mér þykir rosalega vænt um það. Vintage skjalataska sem ég keypti fyrir fyrsta skóladaginn minn í MR. 60 dægurmál Helgin 20.-22. júní 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.