Fréttatíminn - 31.10.2014, Blaðsíða 8
Þið eruð verð verðlækkunar strax!
Sældarlíf með Siemens
Nóatúni 4 Sími 520 3000
www.sminor.is
Eins og alþjóð veit er afar líklegt að vörugjöld af heimilistækjum verði felld niður um áramót.
Til að kæta ykkur ætlum við samt strax að lækka vöruverð um 20% til áramóta af þeim tækjum,
sem nú bera vörugjöld; ofnum, helluborðum, eldavélum, uppþvottavélum, kæliskápum,
þvottavélum og þurrkurum.
20%
Skordýr edikSgerla er hin eiginlega barfluga Sem Sækir í áfengi
Barflugan tíðari gestur
Ediksgerla verður sífellt tíðari
gestur á heimilum lands-
manna, þessi litla gula fluga
sem er sólgin í bjór, edik og
gerjaða ávexti. Erling Ólafs-
son, skordýrafræðingur, segir
að frá aldamótum hafi henni
fjölgað nánast ár frá ári.
Ediksgerla, sem stundum er
ranglega kölluð ávaxtafluga,
er ekki eiginlegt meindýr en
til að losna við hana er best
að þrífa vel. Jafnvel er hægt
að lokka hana í skál með
ediki.
É g er með púlsinn á pöddusál þjóðarinnar og ég get fullyrt að ediksgerlu er að fjölga.
Hennar fór að verða nokkuð vart
eftir aldamótin og fjöldinn virðist
aukast ár frá ári. Þetta er að verða
mjög almennur húsvinur,“ segir Er-
ling Ólafsson, skordýrafræðingur
hjá Náttúrufræðistofnun Íslands.
Ediksgerla er lítil gul fluga sem
sækir í edik, vel þroskaða ávexti
og gerjaða drykki á borð við bjór.
Hún er einnig kölluð bananafluga
eða ávaxtafluga en Erling heldur
fast við nafnið ediksgerla enda er
heil ætt annarra flugna sem kallast
ávaxtaflugur. „Ediksgerla sækir í
ýmislegt ónýtt og sem er að gerj-
ast, eins og mar í ávöxtum, hún sést
gjarnan við ruslafötur, tómar bjór-
dósir sem safnað er saman og líf-
rænan úrgang,“ segir hann.
Ediksgerla er ein mest rannsak-
aða lífvera heims á sviði erfðafræði
og lengst af fannst hún aðeins á Ís-
landi í tilraunastofum. Eins merk
og þessi fluga er þá er fólk mishrifið
af því að hafa hana á heimilum sín-
um en ediksgerla lifir aðeins inn-
anhúss, allt árið um kring. Erling
segir hana hafa borist til landsins
með innfluttum varningi og fólk
komi jafnvel með þær inn á heim-
ilið í ávaxtapokanum. „Þær geta
hafst við heillengi á heimilum og
eru fljótar að þefa það uppi ef maður
fær sér bjórsopa. Þær eru hrifnar
af bjór og víni og flögra jafnvel um
vit fólks þegar það hefur fengið sér
í glas,“ segir Erling. Ediksgerla er
því hin eina sanna barfluga.
Erlingur segir ediksgerluna ekki
vera meindýr og tekur sem dæmi
að á veitingahúsum erlendis sjáist
þær víða flögra. Þeir sem vilja losna
við þær ættu að reyna að einangra
það sem flugurnar líta á sem æti.
„Það þarf að losa sig reglulega við
tómar dósir og flöskur, og fara út
með lífrænan úrgang. Almennt
er erfitt að góma flugurnar en
hægt er að setja edik í eldhús-
pappír í skál við vaskinn –
hvítvínsedik er í sérstöku
uppáhaldi – og þá sækja
flugurnar í það. Þetta
drepur þær ekki en
þannig er hægt að
safna þeim saman
og þá mögulega
spreyja á þær skor-
dýraeitri,“ segir
Erling.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Erling Ólafsson er skordýrafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands og sannar-
lega með púlsinn á pöddusál landsmanna. Mynd/Hari
Ediksgerlan er agnarsmá, að mestu gul að lit með
áberandi rauð augu og heldur dekkri afturbol, sérstak-
lega karlflugurnar sem hafa nær svartan afturenda.
Mynd/Erling Ólafsson
Þær eru hrifnar af bjór og víni
og flögra jafnvel um vit fólks
þegar það hefur fengið sér í
glas
DDaglega
D3 vítamín styrkir m.a.
ónæmiskerfi, tennur og
bein og hjálpar til við
upptöku kalks.
www.icewear.is
ALLT AÐ 80% AFSLÁTTUR
VETRAR- OG ÚTIVISTARFATNAÐUR
FÁKAFEN 9 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 555 7412
EMILIA Vatteraður jakki
Verð áður: 22.900
Verð nú: 4.990
Aðventuferð til Vínarborgar
27. - 30. nóvember
VITA
Skógarhlíð 12
Sími 570 4444Flogið með Icelandair
Verð frá 99.900 kr.*
og 12.500 Vildarpunktar
á mann m.v.í tvíbýli á Hotel Artis.
Innifalið er flug og gisting með morgunverði.
*Verð án Vildarpunkta 109.900 kr.
8 fréttir Helgin 31. október-2. nóvember 2012