Fréttatíminn - 31.10.2014, Blaðsíða 34
Karlmennskudraumar
náttfatamanns
Hvað er það sem skilur okkur frá
hinum dýrunum? Jú, ef frá eru
teknir einstaka púðluhundar
erum við eina tegundin
sem klæðist fötum. Það
kveikir því í dýrslegum
eðlishvötum þegar fötum
fækkar á kvöldin sem aftur
sér um að viðhalda stofninum.
Þess vegna kemur kannski ekki
á óvart að náttföt þykja ekkert
sérstaklega sexí fatnaður. Það
lekur ekki karlmennskan af þeim
sem klæðist röndóttum flannels-
náttfötum eða hvað? Eru þeir
sem eru nógu öruggir með sig
einmitt þeir sem klæða sig upp
fyrir nóttina eða er betra fyrir
karlmennskuímyndina
að sofa á sprellanum
allar nætur.
Allsberir
Frelsið er það fyrsta sem menn sem
sofa allsberir tala um. En er það svona
frelsandi að sofa á tittlingnum eða étur
það menn smám saman að innan? Það er
ekki bara óttinn við að börnin læðist upp í
eða að ræningjarnir komi loksins að stela
sjónvarpinu. Tilhugsunin um slagsmál við
ræningja á fermingarbróðurnum yljar ekki
hjartaræturnar. Svo er það líka óttinn um
bremsufarið og hvað með þá sem eiga það
til að ganga í svefni?
Að sofa nakinn er því mest fyrir unga
tarfa sem vilja sanna sig, ekki þá gömlu
með börn, nágranna og siginn pung.
Á brókinni
Næsta skref er því yfirleitt að forða sér í
nærbuxur. Brókin reddar karlmanninum
yfir vel flest velsæmismörk án þess að
hefta frelsið of mikið. Sérstaklega ef
brókin er boxer frekar en aðsniðin. En
einfalt lag lítillar bómullarpjötlu er ekki
mikið ef óboðna gesti ber að garði. Hvort
sem það eru ræningjarnir eða börnin. Þá
er oft brugðið á það ráð að skella sér í
bol. Margir eiga þó erfitt með að aðlagast
næturlífinu í bol og bregða oft á það ráð
að fara frekar í léttar náttbuxur. Bæta svo
kannski hlýrabol við þegar fram í sækir.
Líka ef það skyldi vera dragsúgur.
Brókin er greinilega fyrir þá sem eru
enn ungir í anda en farnir að síga á
seinni helminginn í tilhugalífinu og vilja
vera við öllu búnir.
Heilgallinn
Þá er nú orðið stutt í að náttfata sig
almennilega upp. Hætta að leita eftir
samþykki samfélagsins fyrir því hvað er
karlmennska og hvað ekki. Flannelsnáttföt
á veturna og létt bómullarföt yfir sumarið.
Við búum jú ekki við miðbaug og það þarf
að kynda ansi vel upp í kofanum til að
verða of heitt. Svo er það líka harka að
hafa svolítið svalt í svefnherberginu. Líka
svo holt að sofa við opinn glugga og svona.
Þeir sem geta enn ekki séð sig í röndóttum
jakkanáttfötum ættu þá að prófa að galla
sig upp. Það væri hægt að fullyrða hér að
rauður heilgalli með rassrauf sé hámark
karlmennskunnar og hver sá sem segir
annað hefur einfaldlega rangt fyrir sér.
Passa þó að bera hann meira eins og Jeff
Bridges en Ofurguffi.
Náttföt eru fyrir karlmenn sem hættir
eru að reyna að aðlaga væntingar
annarra að sinni tilveru. Alvöru menn
sem jafnvel eru tilbúnir til að klæðast
flottum velúrslopp heima við – en það
er önnur saga.
Haraldur Jónasson
hari@frettatiminn.is
Nýtt tilboð
alla daga til jóla
1799kr.stk.
Verð áður 2999 kr. stk.
Mackintosh Quality Street, 1.3 kg
40%afsláttur
31. OKTÓBER
AÐEINS
Í DAG
HÁMARK
1 STK.
Á MANN
á meðan birgðir
endast!
Fylgstu með nýjum tilboðum daglega á kronan.is og sparaðu stórt alla daga til jóla
Jeff Bridges er maður
sem ber náttföt
einstaklega vel. Allr
muna efitr honum á
náttfötunum sem The
Dude úr meistara-
stykki kvikmyndanna
The Big Lebowski en
hann bar skítugan
náttfatasamfesting
ekki verr í kvikmynd-
inni True grit um árið
Ofurguffi ber náttfata-
gallann sinn svo sem
vel en er kannski ekki
karlmennskan upp-
máluð. Kannski röndótt
henti honum betur.
34 náttföt Helgin 31. október-2. nóvember 2012