Fréttatíminn - 31.10.2014, Page 40
40 fyrirtæki Helgin 31. október-2. nóvember 2012
F alleg gjafakarfa með úrvali af bragðgóðum íslenskum ostum og öðru góðgæti er gjöf sem gleður í
aðdraganda jólanna. „Ostakörfurnar frá
MS hafa verið vinsæl gjöf meðal fyrir-
tækja undanfarin ár en áhersla er lögð á
að veita góða þjónustu og aðstoðar sölu-
fólk MS aðilana við að velja körfur eða
setja saman sínar eigin,“ segir Erna Er-
lendsdóttir, verkefnastjóri hjá MS. Upp-
lýsingar um innihald og verð karfanna
er að finna á vef Mjólkursamsölunnar.
Í öllum körfunum eru mygluostar úr
Dölunum í aðalhlutverki en þeim fylgja
einnig ostakex og sultur. Að sögn Ernu
eru körfurnar af ýmsum stærðum og
gerðum en minnstu ostakörfurnar kosta
undir 3000 krónum. Einnig er hægt að
velja um stærri og veglegri körfur sem
innihalda fjölbreytt úrval mygluosta og
annarra osta, ásamt því að innihalda
kjöt og sælgæti. „Færst hefur í aukana
að fyrirtæki panti stærri körfurnar en
þar eru tvær tegundir í boði kjötkarfa og
svo sælkerakarfa. Í öllum körfunum
er hugað vel að því að úrval af ostum
og meðlæti sé fjölbreytt og að ost-
arnir passi vel saman á
ostabakka,“ segir Erna.
Þó nokkuð hefur
bæst við úrvalið af
ostum á síðustu miss-
erum. Ljótur og Auð-
ur eru dæmi um nýlega
mygluosta sem hafa á frek-
ar skömmum tíma náð mikl-
um vinsældum meðal neyt-
enda, að sögn Ernu. „Aðrir ostar,
eins og Gullostur og Camenbert,
eru ostaunnendum að góðu kunnir
og þykja ómissandi á ostabakkann.
Á undanförnum árum hefur færst í
aukana áhugi neytenda á föstum bragð-
meiri ostum á borð við sterkan Gouda
ost og Óðals-Tind,“ segir Erna.
Unnið í samstarfi við
MS
Tilvalin gjöf fyrir
ostaunnendur
Góð ráð við
samsetn-
ingu á
ostabakka
Þegar velja á saman
osta á ostabakka er
mikilvægt að hafa í
huga að velja saman
ólíka osta svo að bragð-
eiginleikar hvers og
eins njóti sín sem best.
Einnig er mjög mikil-
vægt að taka ostana úr
kæli um 1-2 klukkustund
áður en ostarnir eru
bornir fram. Þannig
njóta þeir sín best.
Hvað meðlæti varðar þá
er gaman að sjá hversu
mikil breyting hefur þar
orðið á, en vinsælt þykir
að setja á bakkann
vínber og hefðbundna
berjasultu en undan-
farin misseri er fólk
farið að prófa sig áfram
með þurrkaðar pylsur,
hnetur, hunang, ávaxta-
mauk og hráskinku, svo
eitthvað sé talið.
V ið vorum öll tiltölulega nýbúin að læra og vorum að þreifa fyrir okkur í þessum efnum, eins og margir,“ segir
Jóhann Fannar um upphaf samstarf
hönnunarteymisins Krí8. „Síðan kynnt-
umst við í gegnum sameiginlega vini og
ákváðum að skoða það að vinna saman.“
„Hér eru margar stórar arkitekta-
stofur og okkur fannst vanta stofu þar
sem nokkrir hönnuðir skapa eitthvað
skemmtilegt saman og það gerir okkur
svolítið kröftug,“ segir Aníta. „Við þrjú
erum ólík og með ólíka styrkleika og
vinnum mjög vel saman og veitum hvort
öðru stuðning. Það er aldrei leiðinlegt á
hugmyndafundum hjá okkur.“
Hver hafa helstu verkefnin verið að
undanförnu?
„Fljótlega eftir að við byrjuðum að
vinna saman var haft samband við
okkur um að hanna veitingastaðinn
Meze á Laugavegi 42. Eigendurnir voru
með ákveðnar hugmyndir sem við þró-
uðum með þeim og erum rosalega sátt
við útkomuna. Þetta tengdi okkur sem
teymi og erum reynslunni ríkari. Einnig
unnum við tillögur á breytingum fyrir
Skautahöllina í Reykjavík,“ segir Jónína.
„Innblásturinn kemur gjörsamlega
úr öllum áttum. Það er auðvelt að ná sér
í innblástur hérlendis sem og erlendis
með því að fylgjast með öðrum hönn-
uðum, tímaritum, vefmiðlum, listinni
og umhverfinu öllu,“ segir Aníta. „Við
pössum okkur á að fylgjast með hvað
er í gangi. Og þar sem við erum þrjú
sækjum við kannski öll svolítið sitt
hvora staðina, á meðan einn tengir
meira við arkitektúr, annar við húsgögn
og vöruhönnun og sá þriðji við efnisval
og lýsingu. Við erum gott teymi,“ segir
Aníta. „Síðan eru sýningar líka mikil-
vægar og nú síðast fór partur af teyminu
á Salone del Mobile í Milanó í apríl og
hafði verulega ánægju af,“ segir Jónína.
Hvernig hefur gengið að koma fyrir-
tækinu á framfæri?
„Við höfum verið heppin að fá að
spreyta okkur talsvert síðan við byrj-
uðum á þessu ævintýri. Maður er alltaf
þakklátur því að geta unnið við það sem
maður hefur gaman af. Við erum í dag
rétt að koma okkur fyrir á nýju skrif-
stofunni okkar við Bankastræti 10 og
erum staðráðin í að sækja okkur enn
meiri innblástur í hjarta borgarinnar,“
segir Jóhann.
„Erum núna með nokkur áhugaverð
og skemmtileg verkefni í gangi þar á
meðal bruggverksmiðju í Grafarholtinu,
einbýli í Garðabæ og Kópavogi svo eitt-
hvað sé nefnt. Yndislegt þegar maður
getur verið í nokkrum ólíkum verkefn-
um á sama tíma, þannig eru dagarnir
okkar alltaf áhugaverðir. Nú er ferða-
iðnaðurinn í mikilli grósku og vonumst
við til að fá að spreyta okkur meira í
tengslum við hann. Við erum bara mjög
bjartsýn á framtíðina,“ segir Aníta.
Allar nánari upplýsingar um Krí8 er
að finna á heimasíðu þeirra www.kri8.is
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Arkitektúr HönnunArstúdíó í BAnkAstræti
Innblástur úr öllum áttum
Krí8 Reykjavik
Studio er
ungt hönn-
unarfyrirtæki í
Bankastrætinu
sem sérhæfir
sig í öllu sem
tengist innan-
hússarkitektúr.
Hönnunar-
teymið Krí8
eru þau
Jóhann Fannar,
Jónína Einars-
dóttir og Aníta
Gísladóttir sem
lærðu innan-
hússarkitektúr
í Evrópu og
Asíu. Þau hafa
unnið að ýmis-
konar verk-
efnum og segja
öll verkefni
áhugaverð.
Hvort sem það
eru heimili eða
bruggverk-
smiðjur.
Aníta Gísladóttir og Jónína Einarsdóttir eru ásamt Jóhanni Fannari hönnunarteymi Krí8 Studio. Ljósmynd/Hari