Fréttatíminn - 31.10.2014, Page 74
Bíó Algjör Sveppi og gói BjArgAr málunum frumSýnd
Ímyndunaraflið
er stærsta vopnið
Í vikunni var fjórða kvikmyndin um ævintýri Sveppa og Villa, Algjör Sveppi og Gói bjargar mál-
unum frumsýnd og var hennar beðið með mikilli eftirvæntingu þeirra sem hafa fylgst með fyrri
myndum þessara kappa. Leikstjóri myndanna og framleiðandi, Bragi Hinriksson, segir að þeir
hafi fundið fyrir kröfu frá krökkum um að gera aðra mynd.
Þ etta var auðvitað bara brandari,“ segir Bragi Hinriksson leikstjóri. „Þetta byrjaði þannig að mig langaði að gera bíómynd. Ég nennti ekki að
hugsa það til sextugs og enda á því að gera bara eina
og ég þurfti að finna verkefni þar sem ég gat athugað
á sjálfum mér hvort ég gæti sagt sögu á 90 mínútum.
Það var hugsunin á bak við fyrstu myndina. Svo
fundum við bara fyrir því að eftirtekt krakkana er svo
mikil að þau vilja framhald. Það voru hlutir í síðustu
mynd sem þeim fannst ekki hafa verið kláraðir. Vondi
karlinn var ennþá þarna úti og þau kölluðu á fram-
hald.“
Auðskrifaðir karakterar
Síðasta myndin um ævintýri Sveppa kom út árið 2011
og segir Bragi að eftirvæntingin sé mikil. „Það er búið
að selja um 400 miða í forsölu í bíó. Það gerist alla jafna
ekki í bíó, það er búið að bóka hópasýningar langt fram
í tímann svo það er mikil eftirvænting,“ segir Bragi.
Fyrsta myndin kom árið 2009 svo þeir félagar hafa
nánast gert eina mynd á ári í 5 ár. „Við vorum að vísu
aðeins fljótari að skjóta þessa mynd en hinar og er það
vegna þess að við fengum að skjóta í myndveri RÚV
sem er meðframleiðandi myndarinnar.“ Er ekki líka
kostur að það þarf ekki að kafa mikið í karaktersköpun
þegar búið er að gera þrjár myndir? „Vissulega. Það
er lítið mál fyrir okkur Sveppa að skrifa textann ofan
í Villa eða Góa. Við vitum mjög vel hvað þeir segja í
ákveðnum aðstæðum – eða segja ekki.“
Hlustaði á Back to the Future
Bragi hefur verið í kvikmyndagerð frá unga aldri og
varð mjög snemma sjúkur í kvikmyndir. „Ég ólst upp
á Akureyri og man ennþá eftir því þegar mynd eins og
Dalalíf kom í bíó og röðin úr miðasölunni náði langt út
á Ráðhústorg. Einnig beið ég spenntur eftir Back To
The Future myndunum og eitt sinn náði ég ekki að fá
miða á myndina, en tók á það ráð að hanga á hurðinni
og hlusta á myndina í gegnum vegginn. Maður var
alveg veikur,“ segir Bragi.
Ýmislegt á prjónunum
Bragi hafði ekki gert kvikmynd í fullri lengd áður en
Algjör Sveppi og leitin að Villa kom út árið 2009. Nú
5 árum seinna er Bragi búinn að gera 5 myndir því á
síðasta ári leikstýrði hann gamanmyndinni Harry og
Heimir; Morð eru til alls fyrst, sem naut mikilla vin-
sælda. Var erfitt að fara úr því að vera leikstjóri, hand-
ritshöfundur og framleiðandi í það að „bara“ leikstýra?
„Ég gat sannfært framleiðandann um það að ég
þyrfti að haga hlutum á ákveðinn hátt til þess að
þetta gengi upp,“ segir Bragi. „Svo breytingin
var ekki það mikil fyrir mig. Ég gat þó sleppt því
að vera á gólfinu að panta pítsur.“
Það hlýtur þá að blunda í þér að gera næst
kvikmynd sem er ekki um þá félaga Sveppa og
Villa?
„Við Sveppi erum með mynd á teikniborð-
inu sem við vonumst til þess að geta byrjað á
fljótlega,“ segir Bragi. „Það er barnamynd
sem heitir Álfur út úr hól, sem fjallar um
álfadreng sem kemur út úr hól sínum yfir
í mannheima. Svo eru framkvæmdir sem
verða til þess að hólinn er fjarlægður
og hann er því fastur í mannheimum.
Þetta er ein af fjölmörgum hugmynd-
um sem við Sveppi erum með á borð-
inu,“ segir Bragi.
Hvað er það við Sveppamyndirnar
sem gerir þær svona vinsælar?
„Þær taka sig á engan hátt alvar-
lega og þemað er það að stærsta
vopnið sé ímyndunaraflið og drif-
krafturinn í lífinu,“ segir Bragi.
„Skilaboðin til barnanna er að láta
hausinn ráða.“
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Það er búið að selja um 400 miða í forsölu í bíó. Það gerist alla jafna ekki í bíó, það er búið að bóka hópasýningar langt fram í
tímann svo það er mikil eftirvænting, segir Bragi Hinriksson leikstjóri. Ljósmyndir/Erna Ísabella Bragadóttir
Bragi Hinriksson leikstjóri. L
jó
sm
yn
d/
H
ar
i
mAtur SviðAveiSlA SnæðingSinS í víkinni í kvöld
Reykt eistu eins og fólk getur í sig látið
„Bjarni hefur verið með sviðaveislur
úti um hvippinn og hvappinn en aldrei
í Reykjavík, nema í prívathópum.
Hann hefur lengi dreymt um að gera
þetta,“ segir Snorri Birgir Snorrason,
veitingamaður á Víkinni úti á Granda.
Snorri og Bjarni Geir Alfreðsson,
betur þekktur sem Bjarni snæðingur,
hafa tekið höndum saman og bjóða
til Sviðaveislu snæðingsins í kvöld,
föstudagskvöld. Veislan verður í Vík-
inni og hefst klukkan 19.30. Bjarni
snæðingur, sem nú sér um kaffistofu
Samhjálpar, er landsþekktur fyrir
sviðakjamma sína. Hann rak veitinga-
söluna á BSÍ í áraraðir og þar runnu
ófáir kjammarnir ofan í landsmenn.
Matseðillinn í Víkinni verður ekki
af verri endanum, enda er sláturtíðin
nýafstaðin. Á boðstólum verða soðin
svið, reykt svið, sviðalappir, sviða-
sulta, reykt eistu, soðin eistu, fyllt
hjörtu, blóðmör, lifrarpylsa, saltkjöts-
ragú, uppstúfur, rófustappa, kartöflu-
mús og eftirréttur að hætti Bjarna
snæðings.
„Þetta verður alveg júník,“ segir
Snorri. 6.700 kostar að setjast að
borðum í þessari mögnuðu veislu.
-hdm
Bjarni
snæðingur og
Snorri Birgir
hafa undirbúið
Sviðaveislu
snæðingsins
alla vikuna.
Þar verður
hægt að gæða
sér á reyktum
eistum og
sviðalöppum.
Ljósmynd/Hari
fridaskart.is
Strandgötu 43
Hafnarrði
íslensk hönnun í gulli og silfri
Villi setur Íslandsmet
Önnur bók hins marghama Vilhelms
Antons Jónssonar, Vísindabók Villa
2, kom út í vikunni. Fyrri bókin naut
fádæma vinsælda fyrir síðustu jól
og seldist í um 15 þúsund eintökum.
Útgefandi Villa hefur tröllatrú á því
að önnur bókin verði jafn vinsæl og
hefur látið prenta tíu þúsund eintök í
fyrstu atrennu. Það er stærsta upplag
sem prentað er af barnabók í upphafi
hér á landi.
Beðið eftir Arnaldi
Villi kemst samt ekki með tærnar
þar sem Arnaldur Indriðason hefur
hælana þegar kemur að upplagi.
Nýjasta bók hans, Kamp Knox,
kemur út á laugardag og verður á
þriðja tug þúsund eintaka prentuð af
henni. Átta þúsund eintök fara í búðir
fyrsta kastið. Höfundurinn
sat á föstudag sveittur
við að árita hátt í þúsund
bækur sem sendar verða
heim til aðdáenda hans á
vegum Heimkaupa eftir
miðnætti í kvöld.
Svali og
félagar á
uppleið
Útvarpsstöðin K100,
með dagskrárstjórann
Sigvalda Kaldalóns fremst-
an í flokki, sækir í sig veðrið
um þessar mundir en
samkvæmt mælingum
Capacent hlusta 60%
fleiri landsmenn á
stöðina í viku hverri
en í byrjun árs. Hefur
hlustendahópurinn
meðal kvenna á
aldrinum 18-49 ára tvö-
faldast á sama tíma.
Björgvin
hleypur maraþon
Björgvin Guðmundsson, einn eigenda
almannatengslafyrirtækisins KOM,
hleypur í New York maraþoninu
í næstu viku. Björgvin hefur
æft stíft að undanförnu ásamt
félögum sínum og er tilbúinn
að spreyta sig í þessu fjöl-
mennasta maraþonhlaupi í
heimi. Með í för eru félagar
Björgvins, Magnús Þór
Gylfason, yfirmaður
samskiptasviðs
Landsvirkjunar,
og Gísli Hauksson,
forstjóri Gamma.
74 dægurmál Helgin 31. október-2. nóvember 2012