Þjóðlíf - 01.02.1990, Side 67
Þann 15. janúar var haldinn stofnfundur vinnuveitendasambands Austur-Þýskalands sem þykir eðlilegur
fylgifiskur breytinganna þar í landi. Færri komust að en vildu á stofnfundinn en þar voru um 2000 manns.
Ríkisstjórn Modrows hefur boðaðlagabreytingar til styrktarmarkaðsbúskap og einkarekstri. M.a. ergertráð
fyrir að fyrirtæki sem voru þjóðnýtt árið 1972 verði afhent einstaklingum á ný ogþarmeð munu um 10þúsund
fyrirtæki komast í einkaeign að nýju. Þá er ætlunin að draga úr skattheimtu á arði fyrirtækja, þannig að hún
nemi um 60% afgróðanum. Stjórnvöld hafa enn fremur áprjónunum að leyfa verkfallsrétt á ný og starfsemi
frjálsra verkalýðsfélaga hefur farið mjög í vöxt. Hins vegar hafa um 800 þúsund manns yfirgefið stærstu
skipulögðu samtök landsins (alþýðusambandið, 9.5 milljónir manna) á síðustu mánuðum.
Á svarta listann
fyrir misskilning
Tóbakshringurinn v-þýski
Reemtsma, sem hefur aðal-
stöðvar sínar í Hamborg lenti í
sérstæðum þrengingum á
Bandaríkjamarkaði. Fyrir-
tækið lenti á svörtum lista,
opinberum viðskiptabann-
lista. Bandarískum fyrirtækj-
um er bannað að versla við
þetta þýska fyrirtæki eða eiga
einhver samskipti við það.
Það hefur á alþjóðlegum
markaði selt sígarettutegund-
ina Davidoff. Ástæðan fyrir
þessu banni þykir hins vegar
heldur hláleg fyrir Bandaríkja-
menn því misskilningur kem-
ur við sögu; á sígarettupökk-
unum stendur með smáu letri
að kúbönsk yfirvöld hafi lagt
blessun sína yfir framleiðsl-
una. Án þess að leita frekari
sannana ákváðu bandarísk
yfirvöld, að Reemtsma væri
stjórnað af kommúnistum frá
Kúbu. Tóbakið í þessa vindl-
inga er í raun að mestu ættað
frá Bandaríkjunum. Æðstu
stjórnendur fyrirtækisins í
Þýskalandi hröðuðu sér til
Washington og sannfærðu
Bandaríkjamennina um að
Kúbanir ættu ekki hlut í firm-
anu, hvað þá að þeir hefðu
einhver önnur áhrif á það. En
það mun líða töluverður tími
þar til viðskiptabanni þessu
verður aflétt. Næsti svarti listi
FINEST VIKGINIA BIEND
fOR A PREMIUM
KING SIZE CIGARETTE
RRODUCED UNDER AUTHORITY
OF CUBATABACO. LA HABANA.
MADE IN GERMANY.
Davidoff pakki.
Bandaríkjastjórnar með leið-
réttingu verður ekki gefinn út
fyrr en eftir nokkra mánuði...
Milljarðamæringar
—í skuldum
Stórfyrirtækið Nixdorf, sem
höndlar aðallega með tölv-
ur tapaði enn meiru á sl. ári
en áður vartalið. Stjórnend-
ur fyrirtækisins höfðu álitið
að tapið væri um 600 mill-
jónir marka eða sem nemur
um 21 milljarði íslenskra
króna. En veruleikinn úr
uppgjöri auðhringsins er
enn grimmari; nýjustu tölur
herma að tapið sé nær ein-
um milljarði þýskra marka
eða sem nemur 35 milljörð-
um ísl. króna. Þannig er Ijóst
að tilraunir stjórnenda til
endurskipulagningar á liðnu
ári hafa engum árangri skil-
að. í kjölfar þessa var enda
hringurinn seldur Siemens.
Siemens hefur styrkt stöðu
sína gífurlega á tölvumark-
aði í Þýskalandi með þess-
um kaupum og hrakið IBM
úrfyrsta sæti í annað...
Smá skattsvik í
stöðunni
Á síðasta ársfjórðungi sl. árs
notuðu mörg smáfyrirtæki í
Austur—Þýskalandi tækifær-
ið og greiddu mun lægri
skatta en þau hefðu þurft
samkvæmt gildandi skatta-
lögum. Hér er um að ræða
um 80 þúsund smáfyrirtæki,
sem hafa þurft að greiða allt
að 96% af hagnaði í skatt.
Skattsvikin eru til komin í mót-
mælaskyni við hina háu
skattlagningu. Þótt mótmælin
séu almenn er ekki talið að
þau séu skipulögð. Giskað er
á að skattsvikin nemi um 50
milljónum austur-þýskra
marka. En hinir kærulausu
fulltrúar einkaframtaksins
þurfa tæpast að óttast refs-
ingar. „Slíkt mundi leiða til
enn meiri þjóðfélagsólgu", er
haft eftir háttsettum opinber-
um starfsmanni í Austur-
Þýskalandi. Svikahrapparnir
verða bara nákvæmari
næst...
(Spiegel)
Herinn gjaldþrota
Efnahagshrunið ( Argentínu
hefur komið víða fram. Verð-
bólgan á liðnu ári var 5642%
og þjóðfélagsástandið líkist
helst algerri upplausn. Ekki
munu hins vegar allir sýta, að
argentínski herinn stendur á
barmi gjaldþrots vegna efna-
hagsástandsins. Á sl. ári fékk
herinn til ráðstöfunar um
0.45% af heildarþjóðarfram-
leiðslu landsins, en það er
tíundi hluti þess sem herinn
fékk á valdadögum sínum í
byrjun níunda áratugarins.
Vegna fjárskorts er ekki leng-
ur hægt að gera við skrið-
dreka og flutningatæki hers-
ins, reikningar hlaðast upp í
herbúðum og mikil vand-
kvæði eru á nýskráningu her-
manna, af því að herinn hefur
ekki efni á að borga nýja ein-
kennisbúninga. Margir telja
þetta elskulega þróun...
ÞJÓÐLÍF 67