Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2013, Page 10

Frjáls verslun - 01.09.2013, Page 10
10 FRJÁLS VERSLUN 8-9. 2013 Það kemur of mörgum á óvart að fram s ókn­ar menn skuli eiga erfitt með að standa við kosningaloforð sitt um al menna skulda ­leiðréttingu heimilanna. Það er eins og margir hafi haldið að þeir fengju ávísun senda heim til sín tíu dögum eftir kosningar og heimi lis bókhaldið yrði komið í lag eftir erfið ár frá hruni – svona með einum smelli; fallegri kanínu undir hatt in um. Að allt félli í ljúfa löð. Því var lofað, er sagt. Núna eru hins vegar margir reiðir og von svikn ir, það hafa engar ávísanir bor ist í sumar og haust og ekkert bólar á þeim. Skrítið! Og í ofanálag láta þeir verst sem sögðu í kosn inga baráttunni að loforð fram ­ sóknarmanna væru óraunhæf – en linna núna ekki látum um að loforðin verði efnd þótt þeir séu í prinsippinu algerlega á móti þeim. Það er hins vegar rangt að skuldamálin hafi verið stærsta málið í kosn ingunum; það voru atvinnumálin. Kjósendur vildu fá nýtt blóð, skipta um áhöfn í stjórnar ráðinu, í von um að atvinnulíf og hag vöxt ur næðu sér betur á strik. Auðvitað lá það allan tímann fyrir að fram ­ sóknar menn ættu erfitt með að standa við þetta loforð um að lánveitendur gæfu eftir skuldir. Fyrst og fremst vegna þess að Framsóknar flokk ur inn er ekki lánveitandi íbúða lána í landinu. Raunar gekk kosn ingaloforð flokks ins út á að samið yrði við svonefnda hræ gamma, erlenda kröfuhafa, um að þeir gæfu eftir af kröf um sín um og féð yrði notað til að létta á verð tryggð um íbúða lánum. Það grátbroslega í þessari umræðu um þetta kosn ingaloforð er hversu mikið ósætti er innan samfélagsins um hvort lækka eigi skuldir íbúða ­ lána yfir höfuð. Sumir íbúðaeigendur skulda ekki neitt, aðrir lítið og svo eru það þeir sem skulda mikið. Þar fyrir utan eru það þeir sem eiga ekki íbúðir, hvað með þá? Þetta er flókið. Vandinn er sá að fjölmargir lántakendur, einstaklingar og stórfyrirtæki, með svonefnd gengisbundin lán hjá bönkunum, sem Hæstiréttur dæmdi ólögleg, hafa fengið leiðréttingu eftir hrunið en eftir standa verðtryggð íbúðalán hjá Íbúðalánasjóði og líf ­ eyris sjóðum þar sem minna hefur verið fellt niður. Meira að segja nýju bankarnir fengu útlánasöfn sín með stórfelldum afslætti og hagn aður þeirra eftir hrun byggist á endurmati þessara útlána. Í kosningabaráttunni voru flestir sammála um að ekki kæmi til greina að galtómur ríkissjóð ur greiddi tvö til þrjú hundruð milljónir í niðurfell­ ingu íbúða lána – enda gekk fléttan út á að féð yrði sótt til erlendu hrægammanna. Illa staddir íbúðar ­ eigendur sem kusu framsóknarmenn út á skulda ­ leið rétt ing una gerðu það eingöngu vegna þess að þeir töldu sig ekki hafa neinu að tapa úr því sem komið væri; loforðið um skjaldborg heimilanna hjá síðustu ríkis stjórn væri hvort sem er svikið. Að vísu ræða loforðasérfræðingar um að það lof orð hafi verið allt öðru vísi; loðnara, þokukennd ara og ekki eins afgerandi. Það segir sennilega meira um kjósendur en stjórn málamenn trúi þeir því í kosningabaráttu að hægt sé að kippa skuldamálum heimila í lag í einum grænum – og fá ávísanir sendar heim til sín fljótlega eftir kosningar. Stundum getur verið erfitt að átta sig á hvorir séu meiri tækifærissinnar; kjósendur eða frambjóðendur. Það furðulega er hins vegar að Sig mundur Davíð skuli ekki búinn að ráða tvær til þrjár erlendar lögfræðistofur til að semja við erlendu kröfu hafana; byrja að minnsta kosti á viðræðum við þá. Kosningaloforð hafa flest hver á sér annan brag en venjuleg loforð. Þau eru ekki tekin eins alvarlega. Langflestir vita að brugðið getur til beggja vona um efndir þeirra. Þetta á við um alla stjórnmálaflokka. Það er vegna þess að þeir lofa á kostnað annarra; skattborgara. Stjórnmálamenn eiga fyrst og fremst að hugsa um stóru myndina; efnahagsstjórn lands ins, og tryggja að farið sé að lögum og reglum og að atvinnulífið gangi vel fyrir sig í örvandi um hverfi. Þegar lofað er alls kyns fjáraustri og fram kvæmdum hér og þar ber að hafa varann á. Svo eru það kosningaloforð þeirra sem segjast ætla að svíkja öll sín kosningaloforð og vinna sig ur fyrir vikið. Þeir þykja mjög sniðugir og loforð þeirra til eftirbreytni. Eða þá kosningaloforð þeirra sem skáru fé til Landspítalans á hverju ári í sinni stjórnartíð en ná núna ekki andanum yfir því að ekki sé sett stóraukið fé til spítalans því þar sé allt á fallandi fæti vegna niðurskurðar þeirra undanfarin ár. Það er því ekki öll vitleysan eins þegar kemur að kosningaloforðum. Kjósendur verða auðvitað að meta hvað sé raun ­ hæft og hvað ekki. Treysta á eigið mat. Loforð fram sóknarmanna höfðu og hafa engar forsendur til að standast – nema féð komi frá kröfuhöfum, erlendu hrægömmunum. Það á eftir að koma í ljós. Það er of ódýrt að kjósendur gefi sér að hægt sé að kippa skuldamálum í lag með því að draga kanínuna undan hattinum. Það er jafnódýrt og að trúa því að alþjóðlega fjármálabólan og hrunið hafi verið Sjálfstæðisflokknum og Geir Haarde að kenna en fjöldi fólks trúði því og var samþykkt óþokkabragðinu um að draga hann til ábyrgðar í pólitísk réttarhöld fyrir Landsdómi. Reglan er þessi þegar kemur að kosningaloforð­ um: Eftir því sem meiru er lofað af fjáraustri og framkvæmdum þurfa kjósendur frekar að hafa var ann á. Vegna þess að loforð stjórnmálamanna eru á kostnað annarra; oftast skattborgara – og stundum hrægamma. Efndir kosningaloforða Jón G. Hauksson Það er eins og margir hafi haldið að þeir fengju ávísun senda heim til sín tíu dögum eftir kosningar. Leiðari Í Evrópu einni eru yr 50.000 plastframleiðendur. Fæstir vita að íslenska fyrirtækið Promens hefur náð leiðandi stöðu á þessum stóra markaði og hefur auk þess haldið innreið sína í Asíu með verksmiðjum á Indlandi og í Kína. Fjögur þúsund starfsmenn Promens þróa og framleiða lausnir fyrir allrahanda fyrirtæki í matvæla-, lyfja-, snyrtivöru-, efnavöru- og bílaiðnaði í 43 verksmiðjum í 20 löndum. Samanbrotna skeiðin er aðeins ein af fjöldamörgum plastvörum frá Promens sem fólk kemst í snertingu við á hverjum degi. Við framleiðum 160 milljónir skeiða á ári.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.