Frjáls verslun - 01.09.2013, Blaðsíða 39
FRJÁLS VERSLUN 8-9. 2013 39
H
jónin Ásgeir J.
Guðmunds
son hús
gagna smíða
meistari og
María Sig
mundsdóttir stofnuðu fyrirtækið
árið 1956 og er Ásgeir stjórnar
formaður þess í dag. Fyrstu árin
var lögð áhersla á framleiðslu
húsgagna fyrir heimili svo sem
borð, stóla, sófa og svefnsófa
en það var svo í kringum 1973
sem byrjað var að framleiða
skrifstofuhúsgögn og síðan þá
hafa þau verið í aðalhlutverki.
„Við höfum unnið með
íslenskum hönnuðum á liðn
um áratugum og í dag eru
vinsælustu skrifstofuhúsgögnin
Flexhúsgögnin sem Guðrún
Margrét Ólafsdóttir og Oddgeir
Þórðarson hönnuðu fyrir okkur,“
segir Guðmundur Ásgeirsson,
framkvæmdastjóri fyrirtækisins
og sonur Ásgeirs og Maríu.
„Við framleiðum húsgögnin
í ýmsum viðartegundum og
fjölbreyttu litavali en það er mun
meira um hvít og grá húsgögn
í dag en áður.“ Rafdrifnu Flex
Tskrifborðin seljast vel en þá
getur fólk stillt hæð borðanna
að vild og því bæði setið og
staðið við borðin. Í Flexhús
gagnalínunni er að finna fjöl
breytt úrval húsgagna svo sem
skilrúm, sófa og fundarborð.
„Guðrún Margrét og Oddgeir
hönnuðu líka nýja stólaseríu
fyrir okkur, EX, og er um að
ræða skrifstofu og fundastóla
sem við framleiðum. Mjög góð
stígandi er í sölu stólanna og
koma þeir vel út bæði verð og
gæðalega. Rúmlega þriðjung
ur af kostnaðarverði EX10
skrifstofu stólsins er íslensk
framleiðsla og er stóllinn 90%
íslensk hönnun en aðeins hjól
og kross eru stöðluð erlend
framleiðsla og því ekki annað
hægt að segja en að stóllinn
sé íslenskur skrifstofustóll. Þá
erlendu íhluti sem við kaupum
til landsins í stólana fáum við í
iðnaðarpakkningum og flytjum
því ekki neitt loftrými til landsins
þannig að stólarnir eru mun
umhverfisvænni en aðrir stólar.“
Sérhannað og -framleitt
Erla Sólveig Óskarsdóttir
hús gagnahönnuður hannaði
stól ana Spuna og Sprota fyrir Á.
Guðmundsson sem ætlaðir eru
fyrir skrifstofur og aðra vinnu
staði. Hún hannaði einnig stólinn
Speki sem er ætlaður í skóla og
segir Guðmundur að nýlega hafi
fyrirtækið selt einum viðskipta
vini tæplega 900 stóla, sem þyki
gott á íslenskum markaði. „Við
seljum stólana bæði bólstraða
og óbólstraða og framleiðum
þá í ýmsum gerðum svo sem
staflanlega og á hjólum.“
Margir viðskiptavinir kaupa
staðlaða vöru sem framleidd er
hjá Á. Guðmundssyni en auk
þess er vara sérhönnuð fyrir
viðskiptavini. „Við getum fram
leitt allt í verksmiðju fyrirtækis
ins og þá munar mikið um að
verksmiðjan er vel tækjum
búin og einnig er einstaklega
mikil verkþekking hjá okkar
góða starfsfólki og kemur það
viðskiptavinum okkar til góða.
Við höfum í gegnum tíðina
framleitt gæðavöru á góðu
verði og höfum þekkingu til að
hjálpa viðskiptavinum að velja
réttu vöruna. Þeir sem versla
við Á. Guðmundsson fá góða
þjónustu og góða vöru á sam
keppnishæfu verði.“
Stockholm furniture fair
Á. Guðmundsson hefur skoð
að möguleika á útflutningi og
verða húsgögn frá fyrir tækinu
til sýnis á stórri sýningu í
Stokkhólmi í vetur, Stockholm
Furniture Fair. „Þetta er aðal
húsgagna sýningin sem er
hald in á Norður löndunum ár
hvert og verð ur þetta í þriðja
skipti sem við tökum þátt í henni.
Við erum ekki farin að selja út
en höfum verið í sambandi við
nokkra aðila í Skandinavíu sem
hafa verið áhugasamir. Þetta
er ekki auðveldur markaður.
Flutningskostnaður er mikill og
er mikil samkeppni á erlendum
mörkuðum.“
á. Guðmundsson framleiðir og selur skrifstofuhúsgögn sem íslenskir húsgagnahönnuðir eiga heiðurinn
af. Lögð er áhersla á góða þjónustu og vandaða vöru á samkeppnishæfu verði.
Íslensk hönnun og
handverk
TexTi: sVaVa JónsdóTTir / Myndir: Geir ólafsson oG fleiri
Á. Guðmundsson
Guðmundur Ásgeirsson.
„EX 10-skrifstofustóll:
Svart eða hvítt leður, þú
velur og við bólstrum í
ykkar litum.“
Flex-skrifstofuhúsgögn. Hönnuðir: Guðrún Margrét Ólafsdóttir og
Oddgeir Þórðarson.
Flex-skilrúm með hljóðísogi.
Spuni 400: Hönnuður Erla
Sólveig Óskarsdóttir.
Spuni 600 með snúningi og borð.
Spuni
150, skrif-
stofu- og
fundastóll
á hjólum.