Frjáls verslun - 01.09.2013, Blaðsíða 116
116 FRJÁLS VERSLUN 8-9. 2013
guðMunduR Jóhann JónSSon, foRSTJóRi VaRðaR
Einhenda sér í verkin
1. Hvað ertu ánægðastur með í
íslensku atvinnulífi um þessar
mundir?
Þrátt fyrir að nú hafi blásið
á móti í fimm ár er hugurinn
og viljinn til að ná árangri enn
fyrir hendi. Auðvelda leiðin
hefði verið að leggja árar í bát
en sem betur fer er róið áfram.
Þrengingar gera það oft að
verkum að nýrra leiða er leitað
og segja má að það sé í gangi
í þjóðfélaginu því gróska er í
nýsköpun og stöðugt verið að
leita leiða til að bæta árangur.
2. Ríkisútgjöld í fjárlagafrum
varpinu fyrir árið 2014 eru
áætluð þau sömu og á þessu
ári. Ertu sáttur við þá niður
stöðu?
Það á auðvitað við í rekstri
hins opinbera eins og í fyrir
tækjarekstri og heimilis haldi
að haga þarf seglum eftir vindi.
Hið opinbera á að leita leiða
til að draga saman seglin og
tækifæri til þess eru án vafa
fyrir hendi. Það þarf hins vegar
að forgangsraða af vandvirkni,
setja fjármuni í verkefni
sem horfa til heilla þegar til
lengri tíma er horft og slá af
gæluverkefnin og annan óþarfa.
3. Núna eru fimm ár liðin frá
hruninu. Hvaða væntingar
hefur þú til næstu tveggja ára?
Ég er í eðli mínu bjartsýnis
maður og tel að saga þjóðar
innar vinni með okkur. Nú
verandi krísa fellir okkur ekki
frekar en þær fyrri, við komum
á endanum alltaf standandi
niður, Íslendingar. Við erum
hægt og sígandi á réttri leið,
ég hefði viljað sjá marga hluti
gerast hraðar en það birtir að
lokum.
4. Áttu von á auknum fjárfest
ingum í íslensku atvinnulífi á
næstunni?
Ekki á næstunni endilega
en þegar fram í sækir aukast
fjárfestingar. Stjórnvöld þurfa að
skapa jákvæðar kringumstæður,
auka tiltrú landsmanna og ann
arra á framtíð lands og þjóð ar.
Ef mönnum auðnast það mun
sækja í rétta átt.
5. Hver verða forgangsverkefni
þíns fyrirtækis á næstu sex
mánuðum?
Í sjálfu sér ekki ósvipuð þeim
sem verið hafa á síðustu árum.
Við höldum áfram að vinna
að uppbyggingu félagsins af
metnaði innan þeirra marka sem
efnahagsaðstæður leyfa. Verði
hefur vegnað mjög vel á síðustu
árum, heimili og fyrirtæki
hafa snúið viðskiptum sínum
til félagsins og styrkur þess
aukist jafnt og þétt. Við ætlum
einfaldlega að halda áfram á
þeirri braut.
6. Skuldavandinn hefur tekið
mestan tíma frá stjórnendum
síðustu árin en hver eru helstu
verkefni stjórnenda núna?
Skuldavandinn er auðvitað
ekki að baki en skortur á
eftirspurn eftir vörum og þjón
ustu leiðir til takmarkaðs tekju
vaxtar á sama tíma og viðvar
andi verðbólga leiðir til mikillar
útgjaldaaukningar. Þessar
kringumstæður gera það að
verkum að stjórnendur verða að
vera vakandi fyrir tækifærum á
öllum sviðum rekstrar, leiðum
til að draga úr kostnaði á sama
tíma og auka tekjur.
7. Ertu með eitt gott ráð handa
stjórnvöldum?
Að menn einhendi sér í verk
efnin, það þurfa ekki öll mál
að fara í nefndir og í langt ferli,
við þurfum ákvarðanir og í
framhaldi aðgerðir.
Guðmundur Jóhann Jónsson.
„Það á auðvitað
við í rekstri hins
opinbera eins og í
fyrir tækjarekstri og
heimilis haldi að haga
þarf seglum eftir
vindi.“