Frjáls verslun - 01.09.2013, Blaðsíða 106
106 FRJÁLS VERSLUN 8-9. 2013
BRynJólfuR BJaRnaSon, fRaMKVæMdaSTJóRi fRaMTaKSSJóðS íSlandS
Afnám gjaldeyrishafta
1. Hvað ertu ánægðastur með í
íslensku atvinnulífi um þessar
mundir?
Að sjávarútvegur er vonandi
að komast út úr óvissutíma
og að hér á landi er frjótt og
dugmikið fólk, sem hefur alla
burði til að auka hagsæld til
framtíðar
2. Ríkisútgjöld í fjárlagafrum
varpinu fyrir árið 2014 eru
áætluð þau sömu og á þessu
ári. Ertu sáttur við þá niður
stöðu?
Já, ef frumjöfnuður næst nú, en
hallinn hefur verið gríðarlegur á
undanförnum árum. Það þarf að
ganga lengra í forgangsröðun til
að ná fram langtímahagræðingu
í ríkisrekstrinum. Það ásamt
skattalækkun myndi auka kraft
atvinnulífsins.
3. Núna eru fimm ár liðin frá
hruninu. Hvaða væntingar
hefur þú til næstu tveggja ára?
Mínar væntingar eru þær að
stigin verði afgerandi skref til
að íslenskt efnahagslíf muni til
allrar framtíðar verða líkt því
sem þekkist í löndum sem við
viljum bera okkur saman við.
Afnám gjaldeyrishafta er efst
á blaði, en einnig er mikilvægt
að stuðla að hækkun eigin fjár
fyrirtækja svo þau hafi burði
til að takast á við framtíðina og
auka fjárfestingar. Bankarnir
hafa í „endurskipulagningu“
sinni á fyrirtækjum afskrifað
of lítið og því geta fyrirtækin
ekki fjárfest, sem er grunnur
að framtíðarvexti. Eignarhald
banka á fyrirtækjum skapar
óheilbrigt umhverfi og er aðeins
réttlætanlegt í skamman tíma.
Sá tími er liðinn.
4. Áttu von á auknum fjár
festingum í íslensku atvinnu
lífi á næstunni?
Í augnablikinu er ekki tilefni
til mikillar bjartsýni um það.
Eigið fé margra fyrirtækja gefur
lítið svigrúm til fjárfestinga og
haftaumhverfi laðar ekki að
utanaðkomandi fjárfesta.
5. Hver verða forgangsverkefni
þíns fyrirtækis á næstu sex
mánuðum?
Forgangsverkefnin eru nú sem
fyrr að ná sem bestri ávöxtun
á eignir Framtakssjóðsins og
með því skapa góðan arð fyrir
eigendur hans. Langstærstur
hluti tekna fyrirtækja í eigu
Framtakssjóðsins er erlendur
og góður rekstrarárangur þeirra
fyrirtækja því mikilvægur fyrir
gjaldeyrisöflun þjóðarbúsins.
6. Skuldavandinn hefur tekið
mestan tíma frá stjórnendum
síðustu árin en hver eru helstu
verkefni stjórnenda núna?
Ég óttast að stjórnendur muni
áfram glíma við skuldavanda
og orka þeirra muni í of miklum
mæli beinast að því að verja
stöðuna fremur en að sækja
fram.
7. Ertu með eitt gott ráð handa
stjórnvöldum?
Móta trúverðuga stefnu um
kraftmikið og heilbrigt at
vinnulíf. Upplýsa þjóðina um
mark viss skref í átt að afnámi
hafta, uppgjör við kröfuhafa
og opinberar fjárfestingar.
Slíkt skapar meiri vissu fyrir
at vinnulífið og raunhæfara um
hverfi til fjárfestinga og lang
tímaáætlana.
„Bankarnir hafa í
„endurskipulagn
ingu“ sinni á fyrir
tækjum afskrifað
of lítið og því geta
fyrirtækin ekki fjár
fest, sem er grunnur
að framtíðar vexti.“
Brynjólfur Bjarnason.
Virðing
RéttlætiVR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Þau fyrirtæki sem þegar hafa öðlast jafn-
launavottun eru: Íslenska gámafélagið,
IKEA, ISS, Parlogis, Johan Rönning, Land-
mælingar Íslands, Deloitte, KPMG, Logos,
Ölgerðin og Securitas.
Óútskýrður launamunur kynjanna innan
VR er nú 9,4%. Með Jafnlaunavottun VR
geta framsækin fyrirtæki látið gera faglega
úttekt á því hvort innan veggja þeirra séu
greidd mishá laun fyrir jafnverðmæt störf.
jafnlaunavottun.vr.is
Jafnlaunavottun VR er fyrir öll fyrirtæki og opinberar
stofnanir. Hún staðfestir að konur og karlar fái sömu
laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.
Leiðréttum
launamun kynjanna