Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2013, Side 34

Frjáls verslun - 01.09.2013, Side 34
34 FRJÁLS VERSLUN 8-9. 2013 Stærsta lyfið okkar þar kom á markað núna 15. september sl. þegar einkaleyfið rann út og er staðdeyfingarplástur. Í Bandaríkjunum virkar kerfið þannig að fyrsta fyrirtækið sem fær samþykki hjá bandarísku lyfjastofnuninni (US Food and Drug Administration, FDA) fyrir nýju samheitalyfi eftir að hafa hnekkt einka ­ leyfis máli fyrir dómstólum fær 180 daga til að vera eitt á markaðinum með lyfið og þetta tímabil er þess vegna mjög verðmætt. Hver dagur af þessum 180 gildir og þar sem 15. september sl. var sunnudagur sendum við út þann dag um það bil 1.000 vörubretti með þessu nýja lyfi sem fóru í öll apótek í Bandaríkjunum, en þau eru yfir 40 þúsund talsins, og hvert þeirra hafði að minnsta kosti einn kassa af lyfinu á mánudagsmorgninum. Ekki eru öll ný lyf svona stór en þau eru um 30­35 á ári. Sum eru jafnvel mjög lítil í markaðslegu tilliti en þegar fyrirtæki er orðið eins stórt og Actavis er í dag þurfum við eiginlega að geta boðið upp á öll lyf.“ Hversu snemma þarf Actavis að hefja þróun á samheitalyfi til að verða fyrst til að fá framleiðsluleyfi bandarísku lyfjastofnunarinnar? „Það merkilega er að við byrjum þegar lyfið er enn í þróun hjá frumlyfjafram leið­ andanum. Við fylgjumst með því hvaða lyf eru í þróun hjá frumlyfjaframleiðendunum. Þá byrjum við strax að kanna hvaða sam ­ setning er möguleg á lyfinu. Þannig að áður en lyfið kemur á markað erum við búin að gera ítarlegar prófanir á mismunandi samsetningum, stöðugleikaprófanir og þvíumlíkt. Þegar svo frumlyfið kemur á markað tökum við það til prófunar og vonum að eitthvað af þeim samsetningum sem við höfum gert sé hin rétta eða nógu nálægt réttri virkun og ef við höfum góða tilfinningu fyrir því gerum við svokallaða klíníska tilraun til að bera saman frumlyfið og samheitalyfið. Að því búnu sendum við inn gögnin til FDA því að það þarf ævinlega að vera klínísk tilraun á bak við hvert nýtt lyf. Þetta er kapphlaup, það er unnið 24 tíma á sólarhring í kappi við tímann, en hvert svona lyf er hundraða milljóna dollara verðmætasköpun fyrir fyrirtækið. Við erum með sérteymi við þessa þróunarvinnu. Yfirmaður þróunar hjá Actavis er íslensk kona, dr. Hafrún Friðriksdóttir, og hún stjórnar teymi 1.500 þróunarmanna um allan heim. Hún er doktor frá Háskóla Íslands og við höf ­ um unnið saman í fjölmörg ár. Hún stjórnar þessari þróunarvinnu fyrir alla þessa markaði en óneitanlega ber Banda ­ ríkjamarkaður höfuð og herðar yfir alla aðra markaði. Hafrún er með bækistöðvar hjá mér í Bandaríkjunum.“ Styrkleikinn í fjárfestingunni í þróuninni Hvar liggja helstu styrkleikar Actavis eins og nú háttar og á hvaða sviðum gæti fyrirtækið helst bætt sig? „Helstu styrkleikar fyrirtækisins í dag eru að mínu mati að það fjárfestir mikið í þróunarstarfi. Við fjárfestum hlutfallslega meira í lyfjaþróun en keppinautar okkar. Mönnum þykir kannski súrt að fjárfesta með þessum hætti allan arðinn af félaginu, en þetta hefur borgað sig margfalt. Þetta höfum við gert í allmörg ár og á þessu ári höfum við fjárfest fyrir um það bil 600 milljónir dollara í þróunarstarfi. Um 400 milljónir dollara eru í samheitalyfjaþróun, um 30 milljónir dollara fara til þróunar á öndunarfæralyfjum og þar er það annar Íslendingur sem stýrir því starfi, Stefán Jökull Sveinsson. Við fjárfestum í þróun á líf tæknilyfjum, svokölluðum biosimilars, sem eru flókin prótínlyf og er næsta kynslóð lyfja þar sem hver skammtur kostar milljónir. Við reiknum með þeim á markað 2018­2019 og eyðum um það bil 100 milljónum dollara í þróun þeirra á hverju ári. Síðustu 70 milljónirnar fara í þessi einkaleyfisvernduðu lyf sem við erum að framleiða núna. Þannig að stór hluti þróunarfjárfestingarinnar er enn ­ þá í samheitalyfjunum því að þau eru verulegur hluti af hagnaðinum hjá okkur. Annar styrkleiki er að við höfum getað laðað til okkar afskaplega gott fólk í gegnum árin. Ég kom til Actavis 2003 og var eini starfsmaðurinn í Bandaríkjunum. Ég setti upp skrifstofu í Hartford í Conne cti­ cut því að ég bjó þá í Connecticut og það skipti í sjálfu sér ekki máli hvar skrifstofan var. Síðan voru keypt tvö fyrir tæki, Amide Pharmaceuticals og Alpharma, og smám sigurður óLi óLafsson Allt byrjaði þetta hér í Hafnarfirði með örfáa starfsmenn að fram leiða lyf fyrir ís ­ lenskan markað. Í dag er umfangið 62 lönd, 17 þúsund starfsmenn og skráning á hlutabréfa ­ markaði í New York. Helstu keppinautar Actavis? Á lyfjamarkaði er það helst ísraelska lyfjafyrirtækið Teva. Það er eitt stærsta fyrirtækið í þessari grein í heiminum í dag og með ekki ósvipað viðskiptamódel og Actavis. Teva er mjög stórt á sviði sam heita lyfja en er einnig í einkaleyfis vernduðum lyfjum og sá keppinautur sem næst okkur stendur. Valeant er annar öflugur keppinautur, kanadískt fyrirtæki að uppruna en skráð í Banda ríkjunum. Það fyrirtæki hefur raunverulega verið byggt upp með samrunum og kaupum á fyrirtækjum. Þetta er mjög sérstakt fyrirtæki að fylgja eftir – að mörgu leyti líkt okkur utan Bandaríkjanna, er t.d. með svipaða starfsemi í Rússlandi, A­Evrópu og er að skoða SA­Asíu. Í Bandaríkjunum býður Valeant ekki sam ­ heitalyf heldur er þar einungis með einka leyfisvernduð lyf á boðstólum. Þetta er fyrirtæki sem hefur vaxið mjög hratt og sömuleiðis verðmæti þess á markaðinum. Ef við skoðum sam ­ heitalyfjamarkaðinn sérstaklega eru þar einkum tvö fyrirtæki: fyrirtæki sem nefnist Mylan og er skráð í Banda ríkj ­ unum og stórt á markaðinum þar en eilítið minna en Actavis. Það hefur verið að vinna í öðrum mörkuðum og er til dæmis næststærst í Frakklandi. Hitt fyrirtækið nefnist Sandoz. Það er hluti af frumlyfjafyrirtækinu Novartis sem alltaf hefur verið með til hliðar samheitalyfjafyrirtæki sem er að mestu leyti rekið sjálfstætt. Ég held að það sé að stórum hluta grunnurinn að velgengni Sandoz að ekki er verið að blanda þessum tveimur viðskipta lík ­ önum saman. Í kreppu eykst sala á samheitalyfjum Þegar kreppir að eykst jafnan salan á sam heitalyfjum. Þess sjást merki að efnahagslífið sé farið að ganga bet ur en við sjáum það jafnframt að í öll um löndum heims er að aukast notkun á samheitalyfjum. Fólk sér að það fær sambærileg lyf á mun lægra verði. Ef við berum saman t.d. Ísland og Bretland, þá er mun minna notað af samheitalyfjum á Íslandi enn þann dag í dag en í Bretlandi og það þó að hér kreppi að og ekki séu til nægilegir peningar á fjárlögum fyrir landspítalann. Ef við notuðum sama hlutfall af sam heita ­ lyfjum og Bretar gera gætum við lækkað lyfjareikning landsmanna veru ­ lega.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.