Læknablaðið : fylgirit - 01.04.2012, Blaðsíða 24

Læknablaðið : fylgirit - 01.04.2012, Blaðsíða 24
VISINDI A VORDOGUM FYLGIRIT 70 Markmið: Markmið þessarar rannsóknarinnar er að greina (descriptive analysis) þá meðferð sem veitt er foreldrum sem leita til göngudeildar barna með svefnvandamál á Kvenna- og barnasvið Landspítala. Vitað var í upphafi að fjölskyldur sem þangað leita fá ekki allar sömu leiðbein- ingarnar. Aðferð: Gögnum var safnað haustið 2011, bæði frá foreldrum og sérfræð- ingi í hjúkrun sem veitti meðferðina. Þátttakendur voru 12 fjölskyldur, með börn á aldrinum 6 mánaða til 2 ára, en þá hafði mettun nást. Gögnin voru hljóðupptökur bæði af viðtölum og hugleiðingar sérfræðingsins eftir viðtölin. Þau voru síðan innihaldsgreind í leit að merkingu sam- kvæmt aðferðum eigindlegrar aðferðarfræði Sandelowski (2000). Niðurstöður: Innihaldsgreiningin sýndi sjö þemu: 1) Koma á sambandi, 2) Góð upplýsingasöfnun, 3) Hvatning, 4) Aukin skilningur/kennsla, 5) Umhverfisþættir, 6) Atferlismeðferð, 7) Upprifjun/endurskoðun. Misjafnt var hvað hvert þema var notað í langan tíma í hverju viðtali, sum þeirra komu fram í öllum viðtölum önnur ekki. Þau koma ekki fyrir í fast ákveðinni röð heldur fléttast þau saman. Atferlismeðferð hafði minna vægi í meðferðinni í heild en búist var við í upphafi. Á sama tíma höfðu hvatning og umhverfisþættir meira vægi. Ályktun: Vísindalegur ávinningur þessarar rannsóknar er nákvæm greining á meðferð sem foreldrar barna með svefnvandamál fá og er grunnur. að meðferðarrannsóknum þessa hóps, þar sem möguleiki verður á að bera saman ólíkar áherslur í meðferð. Sú þekking sem verður til er einnig hægt að nota til að byggja upp kennsluefni varðandi efnið. Þessi greining mun skerpa á því hvað meðferðin byggir á og þannig mun þjónustan til þessa skjólstæðingahóps verða markvissari. 46 Lyfjaeitranir og aðrar eitranir í börnum Dagmar Dögg Ágústsdóttir1, Guðrún Bryndís Guðmundsdóttir1'2, Sigurður Þorgrímsson1'3, Theódór Friðriksson1'1, Ásgeir Haraldsson1'3 'Læknadeild HÍ, 2barna- og unglingageðdeild Landspítala, 3Barnaspítala Hringsins, 4bráðasviði Landspítala í Fossvogi asgeir@landspitali. is Inngangur: Eitranir eru alvarlegt vandamál. Þeim má skipta í fjóra flokka eftir ástæðu inntöku: óviljandi slys, misnotkun, sjálfsvígstilraunir og annað eða óvíst. Óviljandi slys eru algengasta orsök eitrunar hjá yngstu börnunum en sjálfsvígstilraunir hjá þeim eldri. Markmið: Að finna helstu ástæður eitrana hjá börnum á íslandi og meta faraldsfræðilega þætti. Aðferðir: Fundnir voru einstaklingar (0-18 ára) sem komu vegna lyfja- eitrana eða annarra eitrana á Barnaspítala Hringsins eða bráðamót- tökuna í Fossvogi á tímabilinu 2005 til ársloka 2010. Úr sjúkraskrám var safnað upplýsingum um faraldsfræðilega og klíníska þætti. Notuð voru kí-kvaðrat og binominal próf við tölfræðiútreikninga. Niðurstöður: 472 eitranir í 397 börnum féllu undir skilyrði rannsóknar- innar, 190 drengir (40,3%) og 282 stúlkur (59,7%) (p<0,001). Meðalaldur var 12,2 ár ± 6,2 ár (stúlkur 13,5 ár og strákar 10,3 ár, miðgildi: 15 ár, tíðasta gildið: 17 ár). 59,5 % einstaklinganna voru 15-18 ára og 25,0 % barnanna voru 4ra ára eða yngri. Enginn lést á tímabilinu af völdum eitrunar. Á aldursbilinu 0-9 ára voru eitranir algengari hjá drengjum (p<0,009) en 10-18 ára hjá stúlkum (p<0,001). Algengustu efni til inntöku voru verkjalyf (önnur en ópíöt) og voru stúlkur (N=91; 76,5%) fleiri en drengir (N=28; 23,5%) (p<0,001), 44,5% (N=53) þessara einstaklinga voru lagðir inn, 7 á gjörgæslu. Af þeim 328 sem tóku inn lyf eða efni vegna andlegrar vanlíðunar eða neyslu fengu 318 (97,0%) frekari meðferð eða ráðleggingar. Ályktanir: Niðurstöðurnar samræmast erlendum rannsóknum. Flestar eitranir voru í yngstu börnunum og meðal unglinga. Athygli vekur að drengir eru fleiri í yngsta hópnum en stúlkur í þeim eldri. Nánast öll böm sem tóku lyf sem sjálfskaðandi hegðun fengu áframhaldandi meðferð. Eitranir eru algengt og alvarlegt vandamál sem vert er að fyrirbyggja með öllum tiltækum ráðum. 47 Heyrnarskaði og jafnvægistruflanir hjá börnum með heilahimnubólgu Einar Freyr Ingason1, Einar Jón Einarsson1, Hannes Petersen1-2, Ásgeir Haraldsson1-3 Læknadeild Háskóla íslands, 2Landspítala, 3Barnaspítala Hríngsins asgeii®landspitali.is Inngangur: Heilahimnubólga af völdum baktería er hættulegur sjúk- dómur. Margir fylgikvillar eru þekktir, þar á meðal jafnvægistruflanir og heyrnarskerðing. Mikilvægt er að þekkja slíka fylgikvilla og bregðast við þeim. Markmið: Að meta heyrnar- og jafnvægisskerðingu eftir heilahimnu- bólgu barna. Efniviður og aðferðir: Fundin vom böm (0,5-18 ára), greind með heilahimnubólgu af völdum baktería á ámnum 1990-2010. Þátttakendur svöruðu spurningalistum um svima, jafnvægi og heyrn. Gert var jafn- vægispróf þar sem kraftplata mældi aðlögunarhæfni stöðustjórnunar- kerfis, stöðugleika og líkamssveiflu. Tvenns konar heyrnarpróf vom framkvæmd, hreintónspróf og mat „otoacustiskra emissiona". Niðurstöður: Alls fékk 81 barn boð um þátttöku, 37 komu til rann- sóknar, fædd á árunum 1996-1982. Alls voru þrjú (8,1%) úr hópi heilahimnubólgubarna með heymarskerðingu, þar af vom tvö sem voru með áður greint heyrnarleysi á öðm eyra (>90 dB). Ein stúlka greindist með miðlungs til mikillar heyrnarskerðingar (45-80 dB) á vinstra eyra. Af þeim sem ekki vom heyrnarskertir höfðu 48,65% þátttakenda hrein- tónsþröskuld a20 dB í einni eða fleiri tíðnum. Jafnvægismæling sýndi að heilahimnubólgubörnin voru að meðaltali með stærri sveiflu í fram aftur stefnu en viðmiðunarhópurinn bæði með opin og lokuð augun, munurinn var marktækur þegar hóparnir eru með opin augun (p=0,027). Ályktun: Niðurstöðumar sýna að heymarskerðing í kjölfar heilahimnu- bólgu er um 8,1% hérlendis sem er sambærilegt við erlendar rannsóknir. Einnig sést að líkamssveifla er meiri hjá heilahimnubólgubörnum sem bendir til fráviks f stöðustjórnun. Mikilvægt er að fylgja börnunum eftir og veita þeim aðstoð sem þurfa. Þörf er á frekari rannsóknum hvort hægt sé að hindra bólguskemmdir samhliða heilahimnubólgu. 48 Heilablæðingar hjá fyrirburum - tíðni, áhættuþættir og afleiðingar Jóhanna Gunnlaugsdóttir1, Laufey Ýr Sigurðardóttir1-2, Þórður Þórkelsson1,2 ‘Læknadeild Háskóla íslands, 2Barnaspítala Hringsins. thordth@landspitali. is Inngangur: Lífslíkur fyrirbura hafa aukist mikið á undanförnum ára- tugum. Flestir þeirra verða heilbrigðir einstaklingar, en fötlun er þó algengari meðal fyrirbura en fullburða barna. Ein helsta orsök fötlunar hjá þeim er heilablæðing. Markmið rannsóknarinnar var að kanna tíðni heilablæðinga hjá fyrirbumm hér á landi, helstu áhættuþætti og afleið- ingar þeirra. Efni og aðferðir: Gerð var afturskyggn tilfellaviðmiða rannsókn. Aflað var upplýsinga um tíðni, áhættuþætti og afleiðingar heilablæðingar meðal fyrirbura fædda eftir 24-30 vikna meðgöngu hér á landi á 20 ára tímabili (1988 til 2007). Til samanburðar vom fundin börn sem ekki 24 LÆKNAblaðið 2012/98
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.