Læknablaðið : fylgirit - 01.04.2012, Side 40

Læknablaðið : fylgirit - 01.04.2012, Side 40
VÍSINDI Á VORDÖGUM FYLGIRIT 70 við örflögugreiningar á genatjáningu sé mikilvægt skref í að auka nákvæmni og endurtakanleika. 93 Greinóttri formgerð brjóstkirtilsþekjufrumna er stjórnað af Sprouty-2 Valgarður Sigurðsson1-2- Sævar Ingþórsson11 Bylgja Hilmarsdóttir1'2' Sigríður Rut Franzdóttir1'2' Eiríkur Steingrímsson3, Magnús K. Magnússon1-2,1, Þórarinn Guðjónsson1-2 ’Rannsóknastofu í stofnfrumufræðum, Lífvísindasetri HÍ, 'rannsóknastofa í blóðmeinafræði, tífefna- og sameindalíffræðistofu, læknadeild HÍ, 'rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði, iæknadeild HÍ saevarmglhors@gmail.com Inngangur: Greinótt formgerð er vel varðveitt þroskunarfræðilegt ferli sem er mikilvægt fyrir eðlilegan þroska og viðhald margra líf- færa. Týrosín kínasa viðtakar, þar með talið Epidermal Growth Factor Receptor (EGFR) og innanfrumu stjómprótein þeirra, Sprouty prótein- fjölskyldan, eru taldir vera mikilvægir stýrlar á greinóttri formgerð Markmið: Markmið rannsóknarinnar er að kanna tjáningarmynstur Sprouty-2 í brjóstkirtli, og hlutverk þess í greinóttri formgerð brjóstkirt- ilsins. Aðferðir: Notast var við mótefnalitanir til að skilgreina tjáningarmynstur Sprouty-2, ennfremur var notast við vef úr músum til að rannsaka tjáningarmynstur Sprouty-2 á mismunandi þroskastigum brjóstkirtilsins. Notast var við RT-PCR, Westem Blot, Þrívíða frumuræktun og RNA- interference til að skilgreina frekar hlutverk og mikilvægi Sprouty-2 í eðlilegri þroskun brjóstkirtilsins. Niðurstöður: í þessari rannsókn sýnum við að Sprouty-2 er aðallega tjáð í kirtilþekju í brjóstkirtlinum, bæði í göngum og kirtilberjum. Tjáning Sprouty-2 eykst á meðgöngu og á mjaltastigi í músabrjóstkirtli, og helst í hendur við aukna virkni EGFR. í þrívíðri ræktun með stofnfrumulínunni D492 má sjá að sprouty er tjáð yst á greinum greinóttra frumuþyrpinga, en minna á milli greinóttra enda. Niðursláttur á Sprouty-2 með RNA- interference leiddi til aukins frumufars. Niðursláttur leiddi ennfremur til aukningar í myndun greinóttra þyrpinga, sem bendir til taps á neikvæðri stjórnun greinóttrar myndunar. í samrækt með æðaþeli mynda D492 með niðurslegið Sprouty-2 nánast eingöngu bandvefsfrumulíkar þyrp- ingar, sem líkjast þeim frumuþyrpingum sem sjást eftir bandvefsum- breytingu (epithelial to mesenchymal transition, EMT) Ályktun: Þessar niðurstöður benda til þess að Sprouty-2 sé mikilvægt stjórnprótein í greinóttri formgerð og að afbrigðileg stjórnun geti leitt til óeðlilegrar þroskunar, þar með talið bandvefsumbreytingar í brjóstkirtl- inum. 94 Umritunarþátturinn p63 er nauðsynlegur fyrir þroskun og viðhald öndunarfæraþekju Ari Jón Arasonu, Þórarinn Guðjónssonu Magnús Karl Magnússon1'2'3 'Rannsóknastofu í stofnfrumufræðum, Lífvísindasetri HÍ, 2rannsóknastofu í blóðmeinafræði Landspítaia, 3rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði, læknadeild HÍ tguctjons@hi.is Inngangur: Truflun á vefjabyggingu og starfsemi sýndarlagskiptrar þekju efri loftvega getur leitt til þrálátra sýkinga og sjúkdóma á borð við langvinna lungnateppu og krabbameina. Umritunarþátturinn p63, sem er nauðsynlegur fyrir myndun lagskiptrar húðþekju, er tjáður í grunn- frumum þekjuvefs efri loftvega, en þær eru taldar sjá um endurnýjun annarra þekjufrumna þar. Hlutverk p63 í þessum vef er hins vegar að mestu óþekkt. p63 hefur tvö megin splæsform; TA-p63 (transactivation domain) og A-N-p63. Markmið rannsóknarinnar var að kanna tjáningu og hlutverk p63 splæsiforma í þroskun og viðhaldi sýndarlagskiptrar lungnaþekju. Aðferðir: Notast var við frumuræktunarlíkan þar sem lungnafrumulínan VA10 var ræktuð í loft-vöka rækt (Air Liquid Interface, ALI) til að líkja eftir sýndarlagskiptri öndunarfæraþekju. p63 var slegið niður í VA10 með RNA þöggun (VA10p63kd). Áhrif niðursláttar voru síðan metin með frumuskiptinga- og skriðprófum, með mótefnalitunum og western blettun. Þekjumyndunarhæfileiki frumnanna var skoðaður með ALI ræktun. Öldrunarástand (senescence) frumna var metin með beta- galactosidasa litun. Niðurstöður: Litun fyrir A-N-p63 leiddi í ljós að tjáning er bundin við grunnfrumur í lungnaþekju. Engin tjáning á TA-p63 var til staðar. Bæling á tjáningu p63 Ieiddi til minnkunar í frumufjölgun og minni hæfni til frumuskriðs. í framhaldi kom í ljós skert geta VA10p63kd frumna til sára- viðgerða. VA10p63kd frumur sem ræktaðar eru í ALI kerfinu ná ekki að mynda heilsteypta lungnaþekju, líkt og VA10 gerir. Þekjan myndar ekk- ert rafviðnám (transepithelial electrical resistance, TER) og er gegndræp fyrir flúrmerktum natríum jónum. Ennfremur ná frumurnar ekki að mynda marglaga þekju.Hægt er að örva VA10 til seytifrumusérhæfingar með interleukin-13 en þessi eiginleiki tapast hjáVA10p63kd Ályktun. D-N-p63 virðist vera ráðandi splæsform p63 í lungnavef. Þöggun á p63 í VA10 leiðir til minni frumufjölgunar, skertum skriðhæfi- leikum, takmarkaðrar getu við sáraviðgerðir og skertri hæfni til að mynda starfhæfa þekju. Lagskipting er nánast engin, rafviðnám ekkert og gegndræpi aukið. VA10p63kd geta ekki sérhæfst í seytifrumur þrátt fyrir örvun með IL-13. Þessi rannsókn rennir stoðum undir mikilvægi p63 í myndun og viðhaldi sýndarmarglaga öndunarfæraþekju. 95 Hlutverk miR200 fjölskyldunnar í bandvefsumbreytingu stofnfrumna í brjóstkirtli Bylgja Hilmarsdóttir1'2, Valgarður Sigurðsson12, Jón Þór Bergþórsson1-2, Sigríður Rut Franzdóttir1'3, Ólöf Gerður ísberg12, Þórarinn Guðjónssonu, Magnús Karl Magnússonu'3 'Rannsóknastofu í stofnfrumufræðum, Lífvísindasetri Læknagarðs, 2rannsóknastofu í blóðmeinafræði, Landspítala,3rannsóknastofu í lyfja og eiturefnafræði, HÍ byhl@hi.is Inngangun miRNA eru einþátta RNA sameindir sem stjóma tjáningu próteina eftir umritun. miRNAgeta ýmist verið æxlishvatandi eða æxlis- hamlandi og er tjáning þeirra oft riðluð í krabbameinum. miRNA-200 fjölskyldan (miR-200a,-200b,-429,-200c,-141) tekur þátt í að viðhelda starfsemi og útliti eðlilegrar þekju og hamlar ífarandi æxlisvexti með því að þagga niður lykilprótein í bandvefsumbreytingu krabbameins- frumna (e. EMT; þekjufrumur taka upp svipgerð bandvefsfrumna), t.d. ZEBl, ZEB2, fibronectin og moesin. Við höfum sýnt fram á að æðaþel hvetur EMT ferlið í D492 stohifmmulínu í þrívíðri rækt og þamiig búið til brjóstastofnfrumulínu með bandvefssvipgerð, D492M. Markmið þess- arar rannsóknar var að skoða methyleringarmunstur á stýrilsvæðum miR200 fjölskyldumiar fyrir og eftir EMT í D492 og einnig áhrif miR200c yfirtjáningar í D492M. Efniviður og aðferðir: Tjáning um 500 miRNA var skoðað með örflögu- greiningu í D492 og D492M. Einnig var framkvæmt qRT-PCR og bisulfite raðgreining, D492M frumur vom sýktar með yfirtjáandi miR200c vektor. Áhrif miR200c yfirtjáningar skoðuð með westernblettun, þrívíðri rækt, frumuskriðsprófi og mótefnalitun. Niðurstöður: Við EMT í D492 verður mikil breyting á tjáningu miRNA. Tjáning miR200 fjölskyldunnar er minni í D492M en fmmum fyrir 40 LÆKNAblaðið 2012/98

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.