Læknablaðið : fylgirit - 01.04.2012, Blaðsíða 47

Læknablaðið : fylgirit - 01.04.2012, Blaðsíða 47
VISINDI A VORDOGUM FYLGIRIT 70 háttar fylgikvillar voru tíðari í eldri hópnum (37% sbr. 25% p=0,01). Ekki reyndist marktækur munur á legutíma og 5 ára sjúkdómasértæk lifun var sambærileg í báðum hópum (p=0,125). í fjölbreytugreiningu reynd- ust stigun, greiningarár og frumugráðun sjálfstæðir forspárþættir fyrir langtíma lifun. Aldur 75 ára reyndist hins vegar ekki vera neikvæður forspárþáttur (p=0,57). Ályktun: Langtímasjúkdómasértæk lifun eldri og yngri sjúklinga er sambærileg eftir skurðaðgerð við lungnakrabbameini. Niðurstöður okkar benda til þess að skurðaðgerð sé ekki síðri meðferðarkostur hjá eldri sjúklingum með skurðtæk æxli. 115 Lítil nýrnafrumukrabbamein og fjarmeinvörp Pétur Sólmar Guðjónsson', Elín Maríusdóttir2, Helga Björk Pálsdóttir2, Guðmundur Vikar Einarsson2, Eiríkur Jónsson2, Vigdís Pétursdóttir3, Sverrir Harðarson3, Martin Ingi Sigurðsson2, Tómas Guðbjartsson1-2 'Læknadeild HÍ, 2skurðlækningasvið, Tannsóknarstofu í meinafræði, Landspítala psg2@hi.is Inngangur: Nýgengi nýrnafrumukrabbameins (NFK) er vaxandi sem að verulegu leyti má rekja til fjölgunar lítilla æxla (s4 cm) sem greinast fyrir tilviljun við myndrannsóknir á kvið. Horfur lítilla NFK eru almennt taldar góðar og mælt er með hlutabrottnámi ef æxli eru undir 4 cm. Fjarmeinvörp lítilla nýmafrumukrabbameina (synchronous metastasis) hafa ekki verið rannsökuð áður hér á landi. Efniviður og aðferðir: Af 1102 sjúklingum sem greindust með NFK á tímabilinu 1971-2010 var litið sérstaklega á 257 æxli s4 cm og sjúklingar með meinvörp við greiningu bornir saman við sjúklinga án meinvarpa. Upplýsingar fengust úr sjúkraskrám og vefjagerð, TNM-stig og sjúk- dóma-sértæk lifun var borin saman í hópunum. Niðurstöður: Hlutfall lítilla NFK hækkaði úr 9% fyrsta áratuginn í 33% þann síðasta (p<0,001) á sama tíma og hlutfall tilviljanagreiningar jókst úr 14% í 39%. Alls greindust 25 af 257 (10%) sjúklingum með lítil NFK með fjarmeinvörp, oftast í lungum og beinum. Sjúklingar með meinvörp voru 1,9 árum eldri, æxlin 0,2 cm stærri og oftar staðsett í hægra nýra. Vefjagerð var sambærileg í báðum hópum en æxli greindust síður fyrir tilviljun hjá sjúklingum með meinvörp, blóðrauði þeirra var Iægri og bæði Fuhrman-gráða og T-stig hærra. Fimm ára lifun sjúklinga með meinvörp var 0% borið saman við 84% hjá viðmiðunarhópi (p<0,001). Ályktun: Við greiningu eru 10% sjúklinga með lítil NFK með fjarmein- vörp. Þetta er hærra hlutfall en í öðrum rannsóknum, en flestar þeirra ná aðeins til sjúklinga sem gengust undir nýmaskurðaðgerð. Sjúklingar með meinvörp em marktækt eldri, greinast oftar með einkenni, hafa stærri fmmæxli og verri lifun. 116 Heilaæðaáföll eftir opnar hjartaskurðaðgerðir á íslandi 2002-2006 Rut Skúladóttir1, Martin Ingi Sigurðsson2, Haukur Hjaltason1-3, Tómas Guðbjartsson1-2 'Læknadeild HÍ, 2hjarta- og lungnaskurödeild, 3taugadeild Landspítala rus2@hi.is Inngangur: Heilaæðaáföll er alvarlegur fylgikvilli opinna hjarta- skurðaðgerða og getur skert lifun og lífsgæði sjúklinga. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna tíðni og áhættuþætti heilaæðaáfalla eftir opnar hjartaskurðaðgerðir á íslandi. Efniviður og aðferð: Afturskyggn ratmsókn á 876 sjúklingum sem gengust undir opna hjartaskurðaðgerð á Landspítala 2002-2006. Sjúklingunum var skipt í tvo hópa; þá sem fengu heilaæðaáfall eftir aðgerð (n=20) og viðmiðunarhóp (n=856). Heilaæðaáfall var skil- greint sem heilaslag með einkennum sem stóðu yfir í >24 klst eða skammvinna heilablóðþurrð (TIA) ef einkenni gengu til baka < 24 klst. Hóparnir voru bomir saman m.t.t. fylgikvilla, dánartíðni innan 30 daga, langtíma heildarlifunar og áhættuþættir heilaæðaáfalls metnir með einþáttargreiningu. Niðurstöður: Alls fengu 20 sjúklingar (2,3%) heilaæðaáfall, þar af 17 heilaslag. Sautján sjúklingar gengust undir kransæðahjáveituaðgerð (70%) en þrjár aðgerðanna vom gerðar á sláandi hjarta. Sjúklingar með heilaæðaáfall voru 5,4 árum eldri, höfðu marktækt lægri líkamsþyngd- arstuðul og hærra EuroSCORE (7,4 sbr. 5,2, p=0,004). Áhættuþættir hjarta- og æðasjúkdóma voru sambærilegir í hópunum. Alvarlegir fylgikvillar, þ.á.m fjöllíffærabilun, vom fjórfalt algengari hjá sjúklingum með heilaæðaáfall (p=0,002), heildarlegutími þeirra tæplega viku lengri og magn blóðgjafa helmingi hærra (p=0,017). Dánartíðni innan 30 daga í hópi sjúklinga með heilaæðaáfall var 20% en 3% í viðmiðunarhópi (p=0,005). Eins og fimm ára lifun var 75% og 65% hjá sjúklingum með heilaæðaáfall borið saman við 95% og 86% í viðmiðunarhópi (logrank próf, p=0,007). Ályktun: Tíðni heilaæðaáfalls eftir hjartaaðgerð á íslandi er lág (2,3%) og í samræmi við stærri erlendar rannsóknir. Eldri sjúklingar með lágan líkamsþyngdarstuðul og hátt EuroSCORE em í aukinni áhættu. Dánarhlutfall innan 30 daga er verulega aukið, einnig legutími og tíðni alvarlegra fylgikvilla. 117 Gáttatif eftir opnar hjartaaðgerðir - forspárþættir og gerð spálíkans Sólveig Helgadóttir1, Martin Ingi Sigurðsson2, Inga Lára Ingvarsdóttir', Davíð O. Amar3, Tómas Guðbjartsson1-2 ’Læknadeild HÍ, 2hjarta- og lungnaskurðdeild, 2hjartadeild Landspítala solveighelgadotlir@gmail.com Inngangur: Gáttatif er algengur fylgikvilli opinna hjartaaðgerða. Markmið rannsóknarinnar var að kanna forspárþætti gáttatifs eftir hjartaaðgerðir hér á landi, útbúa áhættulíkan og kanna langtíma lífs- horfur sjúklinga. Efniviður og aðferðir: Afturskyggn rannsókn sem náði til sjúklinga sem gengust undir kransæðahjáveitu- (n=734) og/eða ósæðarlokuskiptaað- gerð (n=156) á Landspítala 2002-2006. Ein- og fjölþáttagreining var notuð til að meta áhættuþætti gáttatifs og sjúklingar með gáttatif bornir saman við þá sem höfðu reglulegan hjartslátt. Niðurstöður: Tíðni gáttatifs var 44%, marktækt hærri eftir ósæðarloku- skipti en hjáveituaðgerð (74% vs 37%). Sjúklingar með gáttatif vom marktækt eldri, oftar konur, vom með lægra útfallsbrot hjarta og hærra EuroSCORE. Ekki var munur á lyfjameðferð hópanna fyrir aðgerð. Sjúklingar með gáttatif lágu lengur á sjúkrahúsi og höfðu marktækt hærri tíðni fylgikvilla og skurðdauða <30 daga (0,7 vs 4,8%, p=0,001). Langtímalifun sjúklinga sem fengu gáttatif var marktækt verri, en lifun í hópunum var 92% sbr. 98% ári frá aðgerð og fimm ára lifun 83% sbr. 93%. í fjölbreytugreiningu reyndust ósæðarlokuskipti (OR 4,4), saga um hjartabilun (OR 1,8), hærra EuroSCORE (OR 1,1) og aldur (OR 1,1) sjálf- stæðir forspárþættir gáttatifs. Þessir forspárþættir voru notaðir til að sníða áhættulíkan til að spá fyrir um líkur á gáttatifi eftir aðgerð (tafla). Ályktun: Næstum helmingur sjúklinga greindist með gátttif eftir aðgerð sem er óvenju hátt hlutfall. Þessir sjúklingar voru mun líklegri til að fá fylgikvilla eftir aðgerð, legutími þeirra var lengri og lifun verri. Með niðurstöðum rannsóknarinnar var okkur unnt að sníða áhættulíkan sem LÆKNAblaöið 2012/98 47
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.