Listin að lifa - 15.10.2001, Blaðsíða 3

Listin að lifa - 15.10.2001, Blaðsíða 3
Listin að lifa Útgefandi: Landssamband eldri borgara, Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík, sími 535-6000, fax 568-1026. Formaður: Benedikt Davíðsson. Blaðstjórn: Helgi K. Hjálmsson, formaður, Bryndís Steinþórsdóttir, ritari, Stefán Olafur jónsson, gjaldkeri, Hafsteinn Þorvaldsson, meðstjórnandi, ásamt ritstjóra. EFNISYFIRLIT Leiðari: Dropinn holar steininn, Helgi Hjálmsson.........3 Kynning Úrval-Útsýn: Úrvals haustfagnaður................4 Frá FEB í Reykjavík: Sumarferðir 2002....................6 Jólasveinagetraun........................................6 Öldrunarþjónusta fyrr og nú: Halldór Halldórsson......8-10 Fimmfalt kóramót: Bjarnfríður Leósdóttir.............12-13 Gengið inn í gamla tímann: í kaffi hjá Kristínu......14-16 Frá Tryggingastofnun: Breytingar á almannatryggingum....16 Kynning: Gula Banana Boat E-gelið.......................17 Heitir vangadansar frá sjötta áratugnum..............18-19 Hringjari og kirkjumálaráðherra: Rætt við Jón Helgason.. .20-21 Náttúruperlur 8i náttúruvernd: Ingimar Sveinsson.....22-23 Dvalar- og fræðasetur að Laugum í Sælingsdal............24 Frá Félagi aldraðra í Borgarfjarðardölum.............26-27 í brennidepli: Hafsteinn Þorvaldsson....................28 Listrænn gleðigjafi: Rætt við Hjalta Þórðarson.......30-32 Okkar innri málefni: Pétur Guðmundsson..................34 Gullárin: Pétur Guðmundsson.............................34 Fræðsluhornið: Bryndís Steinþórsdóttir...............36-37 Heyrnar- og talmeinastöð íslands: Sigríður Snæbjörnsdóttir. ...37 Frá Patreksfirði: Vestmannaeyjaferð Birtu...............38 Jólahugvekja: Nanna Guðrún Zoéga djákni.................39 Hagstæðari vaxtakjör fyrir félagsmenn LEB...............22 Kynning: Öryggismiðstöð íslands.........................40 Sameiginlegur kjarafundur...............................42 Orð og efndir: Ólafur Ólafsson.......................44-45 Viðbrögð við kröfum aldraðra............................45 Lítil minning um jól: Axel Ágústsson.................46-48 Silfurlínan Vinur og ferðafélagi .......................48 Ógleymanleg jólaferð: Vilborg K. Jónsdóttir.........50-51 Krossgátan okkar........................................52 Bætur lækka - laun hækka: Stefanía Björnsdóttir.........54 Ritstjóri: Oddný Sv. Björgvins - ob@simnet.is Auglýsingastjóri: Árni Hróbjartsson - memo@itn.is Umbrot: Áslaug J. - jmj@islandia.is wfi/ Prentvinnsla: Prentsmiðjan Hjá GuðjónÓ -'22ST' Forsíðumyndin er frá Höfða við Mývatn - jólalegt andrúm yfir voldugu grenitré og sólskyggðri snjóbreiðu. Klettatanginn Höfði gengur út í Mývatn að austan, hét áður Hafurshöfði. Þar er vinsælt að njóta skjóls og útsýnis yfir Mývatn. Kálfastrandar- vogur liggur meðfram Höfða með sínum sérstæðu hraundröngum, Klösum og Kálfastrandarstrípum. Ljósmyndari: Rafn Hafnfjörð Dropinn holar steininn Félög eldri borgara vítt og breitt um landið sinna mikilvægum félagsþjónustustörfum bæði ein sér og í samvinnu við sveitar- félögin. Mikilvægt er að eldra fólk gangi í félögin og taki þátt í félagsstarfinu. Með því geta þau lagt lóð sín á vogarskálina til betra og innihaldsríkara lífs. Með því styrkja þau líka Landssambandið, sem stöðugt vinnur að bættum kjörurn eldra fólks. Þótt við ramman reip sé að draga miðar alltaf eitthvað fram á veg. Kjörorð okkar er dropinn holar steininn og mál- gagnið er að sjálfsögðu blaðið okkar, Listin að lifa, sem við leggjum metnað í að gera sem veglegast úr garði. Blaðið er bæði til skemmtunar og fróðleiks, jafnframt því að vera mál- gagn eldri borgara. Stöðugt er unnið að fréttum og viðtölum við félaga okkar, svo að blaðið verði sannara málgagn okkar allra, svo að við fáum meiri breidd í viðhorfin og fréttum af störfum hinna íjölmörgu félaga eldri borgara um land allt. í þessu blaði, sem nú kemur út, erum við með hefðbundna þætti til fróðleiks og skemmtunar. Fræðsluhornið hennar Bryndísar Steinþórsdóttur er á sínum stað, grein Flalldórs Halldórssonar læknis um öldrunarþjónustu fyrr og nú; viðtöl við áhugaverða einstaklinga; fréttir af trygginga- og heilbrigð- ismálum; kjaramálin eru alltaf í brennidepli og stöðugt er vak- in athygli á því sem betur má fara í þjóðfélagi okkar. Sérstaka athygli vil ég vekja á frétt hér í blaðinu af fundi, sem haldinn var í Garðabæ með þingmönnum kjördæmisins. Vegna niðurskurðar í heilbrigðiskerfinu þarf fjöldi einstak- linga að bíða eftir læknisþjónustu, sem verða oft á tíðum ó- sjálfbjarga og líða óbærilegar kvalir, að óþörfu. Því spyr ég, hvað er eiginlega að? Sjúkrahús og sjúkrastofnanir eru byggð með fullkomnustu tækjum og tólum, en deildir og fjöldi rúma standa auð vegna þess að ekki eru til fjármunir til að halda uppi eðlilegri þjónustu. Biðlistar þeirra, sem þurfa nauðsyn- lega á þjónustu að halda, lengjast stöðugt. Þetta er slæm og óviturleg stefna, sem verður að breyta strax. Staðreyndin er að allir myndu hagnast ef þessu yrði breytt. Eg var að heyra um konu sem var búin að bíða lengi eftir að fá gervilið, og var á biðlista til þess að fá lagfæringu sinna mála. Hún var svo „heppin" að detta í tröppum og brjóta sig illa. Hún var flutt snarlega á slysadeild og þaðan í bæklunaraðgerð. Þar með var hún búin að fá þá lagfæringu, sem hún annars hefði e.t.v. þurft að bíða eftir í nokkur ár. Það er hart, að kerfið sé þannig, að sá teljist heppinn, sem slasast. Við skulum vona að þeir sem ráða vakni og átti sig á því hvemig komið er. Því miður er það oft svo að brotna þarf á ráðamönnum sjálfum, til þess að eitthvað gerist. varaformaður LEB
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Listin að lifa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.