Listin að lifa - 15.10.2001, Blaðsíða 9

Listin að lifa - 15.10.2001, Blaðsíða 9
Gamli spítalinn „Gudmanns Minde“, Aðalstræti 14 á Akureyri, sem Eggert Johnsen læknir reisti árið 1836. Friðrik Gudmann kaupmaður keypti húsið að áeggjan Bernhards Steincke og gaf bænum það til notkunar fyrir sjúka. Spítalinn var vígður við hátíðlega athöfn 7. júlí 1874 í viðurvist landshöfðingja og annarra stórmenna. Mynd frá Minjasafni Akureyrar. Svefn, rúm og rekkjuvoðir: Nú skal vitnað í íslenska þjóðhætti eftir séra Jónas Jónasson frá Hrafnagili sem var prestur í Grundarþingum 1884 til 1910 og Einar Ólafur Sveinsson segir um í formála að verið hafi lærður vel og spekingur að mannviti. Jónas lýsir mest þjóðháttum á 18. og 19. öld. Svefn var venjulega heldur lítill bæði sumar og vetur þar sem vinnu- frekja var mikil. Rúmin voru venju- lega heldur léleg hjá almenningi. Und- irsængur höfðu ekki nema sumir, en margir lágu á heydýnum og var oftast einhver vernefna utan um heyið, venjulega úr grófu íslensku vaðmáli. Stundum voru dýnur gerðar úr dýjamosa, stundum úr þangi. Rekkjuvoðir voru úr þykku vað- niáli. Þykk brekán yfir. Hjá heldri mönnum og bændum voru fiðursæng- ur undir, oftast úr rjúpnafiðri eða sjó- fugla. Koddar voru eins og sængurnar. Yfir var þá oft yfirsæng og lök af líni. Æðardúnn oftast í yfirsængunum eða kofnadúnn. Brekánin voru þykk og þung. Nærfellt allir lágu allsberir í rúmunum, nema heldra fólk lá í nátt- skyrtum. Oftast voru 2 saman í rúmi og mörg böm saman í rúmi. Hreinlæti hrakar: Lengi hefur hljómað við í útlendum ferðabókum og sögum um ísland hvað íslendingar væru óþrifnir. Fornmenn voru hrein- látir mjög og þess oft getið í sögunum að þeir væru að laugu. En eftir það að eymdin og afturförin fór að þyngja á landsmönnum eftir siðaskiptin mun þeim hafa hrakað í þessu sem öðru. Hugsunarhátturinn fór að seyrast og gerast húsgangslegur og dapur á 17. og 18. öld. Öll fegurðar- og sóma- tilfinning fór að sljóvgast og dofna. Sama var með þrifnaðinn. Fyrst og fremst stafaði óþrifnaðurinn af illum húsakynnum. Rakinn var verstur. Allt rann út í slaga, einkum þar sem rign- ingasamt var. Húsin hripláku í rign- ingum svo að oft þurfti að setja trog og dalla undir leka í rúmunum. Allt þetta gerði megnasta óloft í bæina. Rakinn feygði og ýldi loftið. Þá bætti það ekki til, sem sums staðar var siður, að hafa forir á hlað- inu nálægt bæjardyrum og ræsi fram öll göngin og út í forina til að flytja lekavatn. Var þá hellt í ræsið því sem til féllst í bænum og út átti að fara. Auðvitað var óloftið óskaplegt sums- staðar í baðstofunum. Þær voru oftast heldur lágar og gátu því ekki haft mikið loftrúm. Þar sem kýr voru inni eða sauðkindur bætti það ekki um. Svo var nú oft lýsi misjafnt sem brennt var og ljósareykur mikill. Baðstofur vom allar svartar upp í rjáfur og blátt hryðjaðist upp frá brjósti þeirra er inni voru, enda var oft eins og þoka í baðstofum uppi af reyk. Svo barst fúaloftið rakt og rotnað framan úr göngunum og þegar kalt var inni rann 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Listin að lifa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.