Listin að lifa - 15.10.2001, Blaðsíða 16

Listin að lifa - 15.10.2001, Blaðsíða 16
„Hún vann alltaf í Menntaskólanum við ræstingar. Tryggvi sendi henni huggulegt kort með viðurkenningu fyrir hennar störf á 100 ára afmælinu," svarar Kristín fyrir stöllu sína. Við ræðum um afkomendur og í ljós kemur að Kristín á 23 afkomendur, en Jóhanna 15. Eg dáist að liðleika Kristínar við kaffiborðið, en sú hundrað ára snýst með kaffikönnuna eins og ung stúlka. „Mér finnst ég ekkert gömul enn. Gleymi bara aldrinum, er ekkert að spekúlera í honum. Mér finnst lífið al- veg dásamlegt. Ég hef alltaf miklu meira að sýsla en ég kemst yfir.“ Inni í litlu kompunum, eins og Kristín kallar samliggjandi herbergin sín þrjú, tifa prjónamir. Lopapeysa er í fæðingu. „Hvort ég hlusta á útvarp? Já, maður reynir nú að fylgjast með á meðan maður hefur glóru. Talað mál og útvarpssagan er besta útvarpsefnið.“ Síðustu heilræðin frá Kristínu em: „Að hugsa vel til sjálfrar sín og annarra - fínnast ekki að allir hafi það gott nema maður sjálfur. Verst, ef svoleiðis festist í fólki, það em nú aldeilis vandræði." Þær fylgja mér báðar tii dyra. Hurðin lokast. Eftir stendur lítið hvítt hús sem andar af kærleika og gömlum fastmótuðum lífsgildum. Forréttindi að hafa fengið að kíkja þangað inn. Ég geng út í nútímann með öll sín óleystu vandamál. Það er þriðjudagur 11. september... '%.SucV&. TRYGGINGASTOFNUN W RÍKISINS Breytingar á almannatryggingum Lagabreytingar i. júlí sl. leiddu til breytinga á almannatryggingum. Rétt þykir að tilgreina hér það helsta sem snertir ellilífeyrisþega: • Sérstök heimilisuppbót var lögð niður, en hún var einungis greidd einstæðum lífeyrisþegum án annarra tekna en greiðslna almannatrygg- inga. Hún gat mest orðið 7.409 kr. Skerðing hennar var 100%, þ.e. hún skertist um krónu á móti hverri krónu sem viðkomandi hafði í tekjur. • Tekjutryggingarauki er nýr víð- tækari greiðsluflokkur til tekjulágra einstaklinga, sem kemur í stað sér- stakrar heimilisuppbótar. Nú geta hjón og sambýlingar átt rétt á tekju- tryggingarauka sem áttu ekki rétt á greiðslu sérstakrar heimilisuppbótar áður. Einhleypingar fá hæst 14.062 kr. á mánuði í tekjutryggingarauka, en hjón og sambýlingar geta mest fengið 10.548 kr. á mánuði hvort um sig. Ekki þarf að sækja sérstak- lega um tekjutryggingarauka. Rétt er að benda á, að þeim sem fá greidda dvalarheimilisuppbót, verð- ur ekki ákvarðaður tekjutryggingar- auki. Astæðan er sú að hjá þeim getur greiðsla tekjutryggingarauka leitt til lækkunar dvalarheimilisupp- bótar og þar af leiðandi lækkunar ráðstöfunartekna vegna ívilnunar- venju skattyfirvalda. • Hætt er að skerða grunnlífeyri vegna sambúðar eða hjúskapar, þegar báðir aðilar eru lífeyrisþegar. Hingað til hafa hjón eða sambúðar- fólk hvort um sig fengið 90% af fullum örorku- eða ellilífeyri, en eftir 1. júlí breytinguna fá þau sömu upphæð og einstaklingar hafa fengið. Óskertar mánaðargreiðslur eru nú 18.424 kr. Breyting seni aðeins snertir ellilíf- eyrisþega: • Tekjumark (frítekjumark) tekju- tryggingar ellilífeyrisþega er nú 32.512 kr. á mánuði. Áður var tekjumark vegna almennra tekna 22.380 kr. en gat farið upp í 32.512 kr. þegar viss hluti tekna var lífeyr- issjóðsgreiðslur. Þetta breytist og nú er aðeins eitt tekjumark í stað tveggja. Hjón, sem bæði eru lífeyr- isþegar, geta því samtals haft 65.024 kr. í mánaðartekjur áður en tekjutrygging skerðist. Ef aðeins annað hjóna er lífeyrisþegi mega samanlagðar tekjur þeirra nema 109.784 kr. á mánuði áður en tekju- trygging fer að skerðast. Tekjur um- fram þessar upphæðir koma til skerðingar á greiðslunt tekjutrygg- ingar um 45%. Sœjmmdu'v Steþíiissoiv Fólk er eindregið hvatt til að senda inn spurningar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Listin að lifa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.