Listin að lifa - 15.10.2001, Blaðsíða 39

Listin að lifa - 15.10.2001, Blaðsíða 39
„Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum og Drottni |esú Kristi" Amen Enn á ný færist yfir okkur vetur hér á norðurhjara veraldar, með myrkri og kulda. Margir kvíða þess- ■L um árstíma, geta jafnvel ekki notið sumarbirtunnar þess vegna. En haustið lék svo við okkur að við urð- um varla vör við myrkrið fyrr en frostið beit í kinn ^ og vetur gekk í garð. Veturinn færir okkur fleira en dimmu og frost. Des- ember færir okkur árstíma sem flestir hlakka til og barnið í okkur þráir. Fæðingarhátíð frelsara vors og að- ventu hennar. Aðventuboðskapur kristninnar er Drottinn kemur. Latneska orðið „adventus“ þýðir tilkoma/að koma... og allan desember njótum við tíma kærleika og innri birtu og undirbúum komu frelsarans. Undirbúningurinn er kærleiksþáttur okkar... og við hreinsum heimili okkar til að sýna hátíðinni virðingu, bökum og undirbúum allt til að gleðja fjölskyldu okkar og aðra jólagesti. Við höfum öll upplifað jólin á mismunandi hátt, á mis- munandi tímum við mismunandi aðstæður. Margir af eldri kynslóðinni hafa upplifað bernskujólin við meiri fábreytni og einfaldleika en við gerum í dag. En jólaminningin skilur eftir ljóma heilagleikans sem við svo upplifum aftur í sér- hvert sinn er texti jólaguðspjallsins hljómar: „Yður er í dag frelsari fæddur sem er Kristur Drottinn í borg Davíðs...“ Við sitjum aftur prúðbúin á gamla kirkjubekknum, með fjölskyldunni í kringum útvarpið eða í betristofu, þar sem húsbóndinn les úr Biblíunni. Fæðingarhátíð frelsarans gengur í garð með þessum orðum guðspjallsins. Fæðingar- hátíð Jesú Krists er okkur mikil hátíð og við bjóðum allt það besta sem við eigum. Sá þáttur hefur ekki breyst. Við fögnum komu frelsarans. Þessa hátíð gefur okkur Guð, Guð hann skapar allan lífsfögnuð, án hans gæsku aldrei sprytti rós, án hans náðar dæi sérhvert Ijós. Þessi Ijós, sem gleðja ykkar geð, Guð hefur kveikt, svo dýrð hans gætuð séð, jólagleðin Ijúfa lausnarans, leiðir ykkur nú að jötu hans. Þannig skrifar Matthías Jochumsson um jólin, þakkar Guði hans miklu gjöf. Kristur er fæddur, þýðir að Guð sé kær- leikur, andstæða við hatur, græðgi og öfund. Kærleikur, sem yfirgefur okkur ekki, lofar ekki að taka frá okkur sárs- auka, en lofar að Guð sé við hlið okkar þegar okkur líður illa. „... því svo elskaði Guð heiminn að hann gaf son sinn eingetinn til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf.“ Aðventa jólanna fyllir okkur löngun til að gleðja aðra, gefa af okkur, rétta fram hjálparhönd. Það getum við gert á margan hátt. Margir eiga erfitt og margir kvíða jólahátíð- inni vegna veikinda, ástvinamissis eða annarra sársauka- fullra atburða. Að gefa fellst ekki endilega í að gefa fjár- muni. Hlýtt viðmót og hlý orð eru mörgum stórar gjafir. Dreifum hlýju og elsku, miðlum öðrum af hinni miklu helgi, sem við finnum innra með okkur, gleði og kærleik jólanna, jólaskapinu. Við biðjum kærleiksríkan Drottinn vom og Jesú Krist að leiða þetta fólk og styrkja í sorg og erfiðleikum. Haustið, sem var svo blítt við okkur, var ekki eins blítt úti í heimi, þar sem ófriður geisar nú á milli þjóða eða þjóðabrota. Við spyrjum oft, þessa dagana, hvar er náunga- kærleikurinn? Hvemig er hægt að koma á friði? Bæði ég og þú getum gert eitthvað, eitthvað sem hefur áhrif á allan heiminn. Látum okkur dreyma um heim án stríðs, trúum guðspjallinu og gerumst friðflytjendur. Gerum bæn heilags Franz frá Assisi að okkar bæn og segjum: Drottinn lát mig vera verkfæri friðar þíns. Hjálpa þér til að leiða inn kærleika, þar sem hatur ríkir, trú þar sem efinn ræður von þar sem örvænting drottnar. Hjálpa mér að fyrirgefa, þar sem rangsleitni er höfð í frammi; skapa eindrægni þar sem sundrung ríkir, að dreifa Ijósi þar sem myrkur grúfir, og flytja fögnuð þar sem sorgin býr. Fagnaðarboðskapurinn boðar, að allir menn séu bræður og systur, að enginn sé öðrum æðri. Játum því, lifum því. Guð gaf okkur þá dýrmætustu gjöf sem hægt er að gefa, er hann sendi okkur frelsara vorn Jesú Krist „...til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki held- ur hafi eilíft líf.“ Við þökkum Drottni Guði fyrir hans stóru gjöf og biðjum, öll saman, um frið í heiminum. Honum til dýrðar, okkur til blessunar. Guð gefi okkur öllum gleðileg jól í Jesú nafni, amen. DTmuuí/ c6juáu'm %,oeqa/, djákni í Garða- og Bessastaðasókn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Listin að lifa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.