Listin að lifa - 15.10.2001, Blaðsíða 21
styðja. Aldraðir eiga að ekki aðeins að
vera þiggjendur, einnig þátttakendur í
starfi fyrir aðra. Erlendis er umræða
um sjálfboðið starf ofarlega á baugi.“
Er framtíðarnefndin búin að hitt-
ast? „Já, mörgum sinnum. Nefndin er
búin að setja af stað vinnu til að móta
grundvöll að niðurstöðum. Ahersla er
lögð á að afla upplýsinga sem víðast.
Við erum ekki að finna upp hjólið
sjálf!“ segir Jón og brosir. „Ljóst er að
húsnæðismál eru veigamikill þáttur,
en hvaða stefnu á að taka í þeim?
Einnig ber að nýta reynsluna í félags-
og heilbrigðismálum. Efnahagsmálin
eru alltaf viðfangsefni, en hvar er
veigamest að vinna að úrbótum? Full-
trúar eldri borgara hafa kvartað undan
samráðsleysi við stjórnvöld, en ég
vonast til að geta kallað þá til fundar á
næstu vikum. Nefndin mun reyna að
skila af sér sem fyrst eftir áramót.“
Skilaði Ár aldraðra árangri?
„Aðalatriðið var að vekja umræðu á
málum aldraðra - það tókst. Við fund-
uðum um allt land, umræður voru
góðar og fundimir vel sóttir. Margt
kom fram, meðal annars setti Ásgeir
Jóhannesson fram sínar hugmyndir
um eignalífeyri, og fór með okkur á
marga fundi. Áhersla var lögð á að
aldraðir eru hluti af þjóðfélaginu -
ekki sér þjóðflokkur! Þótt menn hafi
náð ákveðnum árafjölda eiga þeir að
vera þátttakendur í samfélaginu.
Þriðjudagurinn 11. september
breytti heimsmynd okkar. Sá dagur
sýndi mikilvægi þess að styrkja sam-
félagið, svo að það verði sem öflugast
athvarf fyrir alla þegna, ekki síst fyrir
aldraða sem sumir hafa ekki sama
þrek og áður. Kirkjan er sameiningar-
afl eins og aðrar góðar stofnanir þjóð-
félagsins. í ræðu biskups kom margt
athyglisvert fram sem menn ættu að
gefa góðan gaum að,“ segir forseti
kirkjuþings.
Brot úr ræðu biskups í upphafí
kirkjuþings: „Þriðjudagurinn 11.
september er öllum í fersku minni...
Viðbrögð kirkjunnar voru skjót, hún
opnaði helgidóma sína og bauð til
bœnastunda. Ég undraðist þann fjölda
fólks sem gekk fram kirkjugólfið,
tendraði lítil bœnaljós og lagði í kór-
tröppurnar. Bænaljósin brunnu þar og
mynduðu brátt Ijósahaf Ijós sam-
stöðu, Ijós vonar, Ijós trúar, gegn
myrkraöflum sundrungat; ön’ænting-
ar, mannfyrirlitningar...
Þungvægum og alvariegum spurn-
ingum er beint að talsmönnum trúar-
innar... um þátt trúarbragða í þessu,
um Islam og kristni, um ofbeldi, stríð
og trú, um endurgjald og fyrirgefii-
ingu. Samtal milli trúarbragðanna
hefur aldrei verið mikilvægara en nú,
samtal sem leiði til skilnings og gagn-
kvæmrar virðingar... Enginn er óhult-
ur þegar liið illa, djöfullega lætur til
skarar skríða...
Hið eina sem lœknað getur undir
manns og heims, leyst viðjar ótta og
ranglætis og rofið hlekki hatursins,
það er andi og áhrif Jesú Krists, náð
og líknin hans. Og þeirri náð og líkn
erum við helguð. Að vera kristin er að
láta þann anda leiða sig... “
Landssamband eldri borgara
ítrekar kröfur sínar til
stjórnvalda að:
• Skattleysismörk verði hækkuð tafarlaust í
viðurkenndar nauðþurftar tekjur.
• Ellilífeyrir verði ekki tekjutengdur.
• Dregið verði verulega úr tekjutengingum,
þannig að lífeyrisþegum sé ekki refsað fyr-
ir að reyna að eiga fyrir salti í grautinn.
• Komið verði á tekjuskattsþrepum, þannig
að þeir sem minnstar hafa tekjurnar greiði
lágmarksskatta.
• Lífeyrisþegar greiði aðeins fjármagns-
tekjuskatt af þeim hluta lífeyrisgreiðslna,
sem myndaður er af fjármagnstekjum.
• Tekið verði í alvöru á biðlistavandamálun-
um á sjúkrastofnunum fyrir aldraða, með
auknu fjármagni.
• Ellilífeyrir tengist aftur launaþróun.
v____________________________________________J
www.lyfja.is
Éeinþéttni-
Bjóöum beinþéttnimælingar
framkvæmdar af hjúkrunarfræðingum
Lyfju á eftirtöldum stööum:
Lyfja Laugavegi
Mánudaga og þriðjudaga kl. 9-16.30
Lyfja Smáratorgi
Miðvikudaga kl. 8-16 og
fimmtudaga kl. 8-12
Lyfja Smáralind
Fimmtudaga og
föstudaga kl. 13-17
nan
Mælingin kostar 950 kr.
LYFJA
fyrir heilsuna