Listin að lifa - 15.10.2001, Qupperneq 13
leikum, þar hlustar hver á annan og syngja
saman. Vináttubönd eru tengd milli þátttak-
enda í söngnum - og bæjarfélögin sem
styrkja þetta starf eiga þakkir skildar. Fátt
tengir fólk eins vel saman og söngurinn.
Hann gefur lífinu svo sannarlega lit og
ljóma.
Vísur um hvern kór fylgja þessum línum.
'JZjmnþukw 'Jíeósdóttiv,
forrmður FEBAN
Vorboðar Mosfellsbæ
Breiðist yfir hlýjan hug
Hljómur ekki þröngur.
Vekur alltaf vonaflug
Vorboðanna söngur.
Hörpukórinn Selfossi
Færir Ijúfan friðaróm,
fagnaðarrós út springur.
Inn í sálu hreinan hljóm
Hörpukórinn syngur.
Gaflarar Hafnarfirði
Andinn laðar ungan brag
út í vorið fríða.
Gaflaranna gleðilag
gaman er að hlýða.
Eldey Suðurnesjum
Lífdögg gefur Eldey í
óskalagið sanna,
stillt við brimsins stormagný
og strengi vorkvöldanna.
Hljómur Akranesi
Flytur sæll með bros á brá,
bjartri gleði vefur.
Hreinan tón og hjartans þrá
Hljómur söngnum gefur.
Þakkir í lok kóramóts
Af einlægni þökkum við öllum í kvöld
þá auðlegð er samhugur græðir.
I skapandi starfi fá vonirnar völd,
sem vorið og söngurinn glæðir.
Svo undirleik, stjórnun og umsjónarþátt,
sem alúð og hvatningu skarta,
við þökkum af alhug og syngjum öll sátt
með sólskin og gleði í hjarta.
Sigmundur Benediktsson
if éfízpk
'-o<wl
FEB
Reykjavík
i !> TIL:
m FRÁ:
ilinúi
Munið eftir jólakortinu okkar, kœra félagsfólk!
Munið að ágóðinn rennur í félagssjóð til að berjast fyrir
bættum kjörum allra eldri borgara á landinu.
Pöntunarsími: 588-2111. Pakki með 7 jólakortum og
7 jólamerkispjöldum í stíl er á 600 krónur.
Jólakortið, pökkun og umbrot, er hluti af undirbúningi
jólahátíðar hjá félagsfólki FEB í Reykjavik.
,,Jólakortið okkar
hlýtur að seljast
vel... það er svo
fallegt, “ segja þau
brosandi.
Amerískur hvíldarstóll
Ótrúlega þœgilegur!
13