Listin að lifa - 15.10.2001, Side 23
Eyðibýlið Strýta í Hamarsfirði. Rétt við bæinn er Strýtukambur, álfakirkja, að sögn
gamla fólksins. Á Strýtu ólust upp listamennirnir Ríkarður og Finnur Jónssynir.
Sauðakambur í Hamarsfirði, sést á miðri mynd, er þunnur blágrýtiskambur af
þeirri gerð sem nefndust tröllahlöð, en það er hlaðinn veggur gerður af tröllum.
Að baki þessara kamba gnæfir Búlandstindur með klettastallinum Goðaborg.
Norðan undir Goðaborg eru ókannaðar bæjarrústir, Selið á Búlandsdal, og þar
skammt frá, handan Búlandsár eru þrír merkilegir steinar, Goðsteinar.
gœta þess að spilla engu, heldur hina
ágjörnu kaupmenn á nœstu höfnum,
meðal annarra einn, Kylm að nafni,
sem hefur getið sér mestan orðstír
núlifandi manna með heimskulegri
grœðgi í steina. Á síðustu árum hafa
líka einstakir menn í Kaupmannahöfn
sent hingað skemmdarvarga. Einn
slíkur, Chrístian að nafiii, frá postu-
línsverksmiðjunni í Kaupmannahöfn,
dvaldist hér í sex vikur og réðst með
púðursprengingum, járnkörlum og
fleira á þessar vesalings klappir
hérna í nágrenninu. Hafði hann á
brott með sér hinar dýrmætustu kon-
ungsgersemar, svo sem hársteina,
kristalla og annað slíkt. “
Þannig mælti sá mæti maður
Sveinn Pálsson læknir fyrir rúmum
200 árum.
Frá því á 19. öld hefur búið gott
fólk á Teigarhorni sem vel hefur ann-
ast hársteina og kristalla í sjávarbökk-
um. Vonandi að svo verði um ókomin
ár. Það er vel þess virði fyrir eldri
borgara á ferð, og annað ferðafólk, að
líta inn á steinasafnið á Teigarhorni og
kynnast því í leiðinni hve merkilegt
ævistarf fyrsti kvenljósmyndari á Is-
landi, Nikólína Weywadt, skildi eftir
sig.
ýjhiqimcw Sveinssoiv,
Djúpavogi
Hugleiðingu Ingimars um náttúru-
vernd fylgja myndir af þremur nátt-
úruvættum sem ýmist tengjast tröllum
eða álfum. Ingimar var áður kennari
og skólastjóri á Djúpavogi, en er nú
að skrá sögu landslagsins á Suður-
fjörðum. Margt foiyitnilegt kemur í
Ijós þegar kafað er ofan í fróðleiks-
brunn eldra fólksins. Klettaborgirnar
eru margar á Austfjörðum og gaman
að heyra sögurnar sem tengjast þeim.
Við kunnum Ingimar bestu þakkirfyr-
ir. Gaman væri að fá fleiri slíkar frá-
sagnir. Víða leynast klettaborgir sem
þjóðsagnir hafa spunnist um.
Viðbót í
Þjónustubók
Lóuhreiður á Laugaveginum
(Kjörgarður 2. hæð) býður nú fé-
lögum í Félagi eldri borgara 15%
afslátt. Einnig er félagsmönnum
boðið frítt kaffi gegn framvísun
félagsskírteinis (I skipti).
Lóuhreiður býður upp á heimilis-
mat í hádegi. Einnig eru kökur,
bökur og ýmsir réttir á boðstól-
um. Opið erí Lóuhreiðri kl. 10-18
virka daga og kl. 10-16 á laugar-
dögum, til kl. 17 á löngum laugar-
dögum. Við viljum benda félags-
mönnum á að nýta sér þetta góða
tilboð og kynna sér staðinn í leið-
inni. Semja má um betri afslátt
fyrir hópa. Sími: 562-2165.
Borgarbílastöðin, sími 552-2440,
veitir eldri borgurum 15% afslátt.