Listin að lifa - 15.10.2001, Page 47

Listin að lifa - 15.10.2001, Page 47
bryggjii í litlu sjávarþorpi í einum af Vestfjörðunum og klukkan var þrjú á aðfangadag jóla. Fljótlega var ákveð- ið, að þar sem vaktir væru í reynd uppleystar, skyldu menn taka lífinu með ró. Jafnframt var tilkynnt að mat- ur yrði ekki framreiddur fyrr en eftir útvarpsmessu eða kl. sjö. Sjómennirn- ir stóðu nú í röðum til að komast í bað og snyrta sig fyrir hátíðina. Menn sátu hljóðir við hátalarana á meðan messan stóð yfir. Nokkrir rauluðu með í hálf- um hljóðum „Heims um ból“ og „í Betlehem er barn oss fætt“, að öðru leyti ríkti friður og ró. Gengið var til matsalar með vissri eftirvæntingu. Enginn hafði fengið að koma þangað inn eftir að lagst hafði verið að bryggju. Það var lokað hús, en kaffi sent í lúkarinn á hitakönnum og kex og brauð með. Það var skiljan- legt að viss spenna ríkti. Kokkurinn sem stóð í eldhúsinu hafði verið um borð í einum túr áður, svo að hann var núna í öðrum túr. Hann var „útlærður.“ Það er að segja, að hann var með próf sem mat- reiðslumaður, sem hafði ekki hjálpað honum mikið í fyrri túmum. Ekki síst hafði gætt vissrar tortryggni eftir að hann hafði borið fram djúp- steikta ýsu með frönskum kartöflum, sem nánast leiddi til uppreisnar. Að leyfa sér að skemma góðan fisk með slíku framferði! Menn höfðu lýst því yfir, að það væri makalaust að skóla þyrfti til að útskrifa „eitur- brasara", en það var samnefnari yfir flesta kokka sem störfuðu á togaraflotanum, jafnvel þó að menn borðuðu matinn sinn og þrifust vel af. Þegar inn í salinn kom var ljóst að það voru komin jól. Fjórar rauðar per- ur voru komnar í ljósin í loftinu, og band með litlum, íslenskum pappírs- fánum hafði verið strengt á milli horna í salnum. Það rann upp fyrir öll- um að nú átti að segja „gleðileg jól.“ Menn tókust fast í hendur og horfðu með aðdáun á kokkinn, sem var í- klæddur drifhvítum galla og með for- láta háa, hvíta stromphúfu. Sest var við borðin sem búið var að leggja diska og hnífapör á. Athyglisvert var að horfa yfír salinn. Þessir veðurbitnu harðjaxlar, alla jafna órakaðir og jafn- vel skítugir af vinnuumhverfinu voru nýrakaðir og baðaðir, í hreinum skyrt- um og vel greiddir. Það lá við að ungi maðurinn, sem segir þessa sögu, þekkti suma þeirra ekki, svo mikil var breytingin. Menn voru ekki allir með það á hreinu, af hverju grautardiskurinn var ofan á matardisknum, en það skýrðist fljótt. Súpa var borin fram fyrst. Einn gerði athugasemd við þetta, sagðist vera vanur að éta grautinn á eftir að- almatnum, en enginn hreyfði frekari andmælum þegar þeir brögðuðu á súpunni, þessari ljúffengu blómkáls- súpu. Sumir vildu ábót, en kokkurinn taldi það ekki ráðlegt. í framhaldinu voru súpudiskarnir teknir af borðinu og fram var borið ávaxtafyllt lamba- læri með brúnuðum kartöflum, græn- um baunum og sultu. Hvílíkt sælgæti! Og hvernig þessir brynjuðu, harð- gerðu sjómenn umgengust félaga sína við matborðið: „Viltu gjöra svo vel að rétta mér sósuskálina? Vildirðu vera svo vænn og renna til mín kartöflun- um?“ Þetta var mikill munur frá deg- inum áður þegar vart var sitjandi við matborðið á Þorláksmessu vegna veð- urs og þeir fengu saltfisk með tilheyr- andi. Þá var orðalagið þannig: „Réttu mér hamsaskálina, helvítis viðrinið þitt, áður en þú ert búinn að éta allt úr henni.“ Eða: „Ætlið þið að gramsa allt seidda brauðið, andskotarnir ykkar, áður en ég fæ nokkuð?“ Nú var endanlega ljóst að það voru jól og þá sýndu allir sinn innri mann sem var allt annar maður en sá sem þú stóðst með á dekkinu í amstri dags eða nætur. Eftir að allir höfðu fengið nægju sína af jólasteikinni var borinn fram grautur í fallega skreyttum skál- um sem kokkurinn kallaði „fromase“. Sem betur fer hafði hann lært á ís- lenska togarasjómenn því að allir fengu nægju sína. Að máltíð lokinni gerðist mikill merkisatburður. Hver af öðrum gengu þessir harðgerðu menn til matreiðslumannsins, tóku í hönd hans, hneigðu sig og sögðu: „Takk fyrir matinn og gleðileg jól.“ Já, hvílík sjón. Menn fóru nú fram í, sumir í lúkarinn, aðrir sátu í salnum yfir lúkarnum og hlustuðu á útvarpið. Að öðru leyti var hljótt. Enginn metingur. Ekk- ert pólitískt þras. Menn sátu bara hver með sínar hugsanir og áreittu engan. Þeir voru tveir yngstir í áhöfninni sem áttu það sameiginlegt að þetta voru fyrstu jólin þeirra á sjó. Báðir áttu konu og barn heima. Þetta var erfiður tími, hugurinn var hjá þeim sem þeir unnu mest. Sama hefur eflaust verið með þá eldri, en þeir vildu ekkert ræða málin, núna átti að rikja ró og friður. Ungu mennirnir ákváðu að brjóta aðeins upp vandræðaganginn sem á þeim var og klæddust útiklæðum. Annar átti fallega, nýlega lopapeysu. Hinn snjáða en hreina úlpu. Þessu klæddust þeir, fóru síðan í sjóstígvélin sín og gengu frá borði. Lítil brekka lá upp að byggðinni. Nokkur snjór lá yfir öllu. Vindur var ekki mikill, en frostið beit í kinnarnar og stígvélin voru hál. Þeim lá heldur ekkert á, ætl- uðu að skoða plássið aðeins og snúa svo til skips. í öllum húsum, sem gengið var framhjá, loguðu ljós. Inn um gluggana mátti sjá fólk á ferli og víða glitti í jólatré. Sú sjón bætti ekki hugsanagang ungu mannanna, sökn-

x

Listin að lifa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.