Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2008, Síða 2
„Þeir sögðust ekki geta samþykkt
ljósrit af vegabréfinu hennar því
myndin væri allt of svört. En hvern-
ig er það, vildu þeir fá hvíta mynd af
svartri konu?“ spyr Jón Halldórsson
sem giftist konu frá Haítí um síðustu
áramót. Eiginkona hans, Nadege
Francois, hefur þó ekki fengið land-
vistarleyfi hér á landi og er Jón ósátt-
ur við viðmót Útlendingastofnunar í
máli sínu.
„Heiðvirð kona og vammlaus“
Jón kynntist Nadege upphaf-
lega í gegn um netsamskipti. Síðar
fór hann út til Dóminíska lýðveld-
isins, þar sem hún býr og starfar, og
þau giftu sig nokkru síðar. Giftingin
fór fram hjá ígildi sýslumanns þar í
landi. Útlendingastofnun gerir eng-
ar athugasemdir við giftinguna en
samþykkir hins vegar ekki þá papp-
íra sem þau hjónin hafa skilað inn til
að hún fái landvistarleyfi hér á landi.
Meðal þeirra skjala sem skila
þarf inn í þessu skyni er sakavott-
orð. „Í hennar landi er ekki gefið út
sakavottorð nema fólk hafi brotið af
sér,“ segir Jón. „Í vottorðinu sem hún
fékk segir að hún sé heiðvirð kona og
vammlaus. En það er ekki nóg.“
Ragnheiður Böðvarsdóttir, stað-
gengill forstjóra Útlendingastofnun-
ar, segist ekki geta tjáð sig um ein-
stök mál. Hún kannast ekki við að
algengt sé að erfiðlega gangi fyrir þá
sem sækja um landvistarleyfi að fá
sakavottorð: „Í tilvikum sem þessum
hefði ég talið að yfirvöld í viðkom-
andi landi gætu gefið út pappíra þar
sem þau staðfesta að ekki séu gefin
út sakavottorð ef fólk hefur ekki brot-
ið af sér,“ segir hún.
Bera hag barnanna fyrir brjósti
Eiginkona Jóns á tveggja ára dótt-
ur, Biöncku, sem hún hefur forræði
yfir. „Lögmaður á hennar vegum fór
með forræðismálið fyrir héraðsdóm
og hún var úrskurðuð með forræð-
ið. Í bréfi sem staðfestir það er barn-
ið sagt fætt árið 2006. Í vegabréfinu
segir hins vegar réttilega að barnið sé
fætt 2005. Útlendingastofnun neitar
því einnig að samþykkja þessi gögn,“
segir Jón.
Misræmi á milli gagna getur allt-
af komið upp á, að sögn Ragnheiðar.
„Þegar þannig er athugum við gögn-
in sérstaklega vel. Sér í lagi þegar um
börn er að ræða því við erum auðvit-
að að hugsa um öryggi þeirra,“ segir
hún. Ragnheiður ítrekar að hún tjái
sig ekki um einstök mál en segir það
vissulega stórt atriði ef misræmi er á
milli gagna.
Ragnheiður segir stjórnsýslu
vissulega vera mismunandi eftir ríkj-
um og tekið sé tillit til þess við af-
greiðslu umsókna ef það veldur erf-
iðleikum varðandi öflun gagna.
Hún bendir hins vegar á að nokk-
ur fjöldi fólks frá Haíti hafi landvist-
arleyfi hér á landi og kannast ekki við
að erfitt hafi verið að fá göng þaðan.
Auðsótt mál að fá frest
„Ég fór margsinnis niður í Útlend-
ingastofnun til að athuga hvort þeir
væru búnir að fara yfir gögnin. Þá var
mér einfaldlega tilkynnt að við fengj-
um enga flýtimeðferð,“ segir Jón.
Nú hefur hann innan við þrjátíu
daga til að afla nýrra gagna: „Þeir
telja sinn lágmarkstíma til að fara
yfir gögnin vera mun lengri en gefa
mér aðeins þrjátíu daga frá dagsetn-
ingu bréfsins til að afla gagna hinum
megin af hnettinum,“ segir hann.
Að sögn Ragheiðar er almennt
viðmið að fólk fái þrjátíu daga frest ef
gögn reynast ekki fullnægjandi. „Það
er hins vegar auðsótt mál að fá lengri
frest ef fólk er sannanlega að vinna í
því afla gagnanna,“ segir hún.
Eftir þessi samskipti við Útlend-
ingastofnun segir Jón að vel komi til
greina að hann flytji einfaldlega út til
að vera hjá konu sinni. „Það er alveg
til í stöðunni. Ég ætla hins vegar að
sjá til hvort Björn Bjarnason [dóms-
málaráðherra ] sé virkilega búinn að
loka landinu svona kirfilega fyrir út-
lendingum,“ segir Jón.
miðvikudagur 25. júní 20082 Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Hlynur Jónsson stefnir lögreglunni fyrir ólöglega handtöku:
Sonur dómara í mál við ríkið
„Ég er búinn að stefna ríkinu,“
segir Hlynur Jónsson, félagi í Frjáls-
hyggjufélaginu. Hann vill meina
að lögreglan hafi ekki haft rétt á að
handtaka hann síðasta sumar þegar
hann, ásamt félögum, seldi áfengi á
Lækjartorgi. Hlynur er ekki ókunn-
ugur heimi réttvísinnar en hann er
sonur Jóns Steinars Gunnlaugssonar
hæstaréttardómara.
Það var síðasta sumar sem Frjáls-
hyggjufélagið tók sig til og setti upp
sölubás á miðju Lækjartorginu. Til-
gangurinn var að selja bjór á spott-
prís til gangandi vegfarenda. Athæfið
er ólöglegt en Hlynur og félagar vildu
mótmæla einokun ríkisins á áfeng-
issölu hér á landi. Eftir að þeir voru
búnir að senda tilkynningar til allra
fjölmiðla komu þeir sér fyrir og gerðu
sig tilbúna til þess að selja fyrsta
bjórinn. Álengdar stóð lögreglan og
beið þess sama. Um leið og fyrstu
viðskiptin höfðu farið fram var salan
stöðvuð. Aftur á móti var Hlynur
handtekinn og í kjölfarið fang-
elsaður. „Ég er að sækja
málið á þeirri forsendu að
það megi ekki handtaka
mann nema til þess að
stöðva áframhaldandi
brot en í mínu tilviki
var málið upplýst og
því engin forsenda
fyrir handtökunni,“
segir Hlynur. Málið
var þingfest fyrir Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í
lok maí síðastliðinn.
Hann segir máls-
sóknina
spurn-
ingu
um
prinsipp enda telur hann að lög-
reglan hafi brotið á sér. Hlynur
krefst ekki hárra miska-
bóta, eða hundrað og
fimmtíu þúsund
króna. Aðspurður,
að því gefnu að
hann vinni mál-
ið, hvort hann
kaupi bjór fyrir
peningana, seg-
ir Hlynur hlæj-
andi: „Maður
veit aldrei.“
valur@dv.is
Jón Steinar
Gunnlaugsson
Sonur hæstaréttar-
dómarans er farinn
í mál við ríkið.
Síminn sýknaður
Síminn var í gær sýknaður í
Héraðsdómi Reykjavíkur. For-
svarsmenn Loftmynda höfðu
stefnt Símanum til greiðslu
skuldar, þeir töldu Símann
skulda sér um 60 milljónir króna
vegna ljósmyndasamnings sem
gerður var árið 1999 til 5 ára.
Síminn taldi sig ekki vera skuld-
ugan þar sem samningur-
inn var útrunnin og greitt
hafði verið
reglulega
fyrir not
af mynd-
um á samningstímanum. Dóm-
ari tók undir orð Símans og var
hann sýknaður. Loftmyndir voru
dæmdar til að greiða 500 þúsund
krónur í málskostnað.
Væntingar
minni
Væntingavísitala Gallup
hefur lækkað um tæp átján
prósent frá því í síðasta mán-
uði og mældist nú um það bil
sextíu og átta stig. Vísital-
an mælir hvernig íslenskir
neytendur meta stöðuna og
horfurnar í efnahags- og at-
vinnulífinu um þessar mund-
ir. Væntingavísitalan er ríflega
helmingi lægri nú en á sama
tíma í fyrra og hefur aðeins
tvisvar áður mælst lægri.
Klósettdóni
handtekinn
Tveir karlmenn voru hand-
teknir á skemmtistaðnum Hvíta
húsinu á Selfossi um síðustu
helgi eftir að þeir veittust að
lögreglumönnum sem þar voru
óeinkennisklæddir við eftirlits-
störf. Lögreglumennirnir höfðu
haft afskipti af öðrum mannin-
um þar sem hann var að ónáða
konur inni á kvennasnyrtingu.
Þá ræddu þeir við hann og gerðu
honum grein fyrir með skilríkj-
um að þeir væru lögreglumenn
að störfum. Skömmu síðar á
öðrum stað í húsinu hitti maður-
inn á lögreglumennina og ógnaði
þeim með ýmsum tilburðum og
öskrum. Enn síðar veittist mað-
urinn aftur að lögreglumönnun-
um og naut við það aðstoðar fé-
laga síns. Báðir voru handteknir
í kjölfarið.
FÆR KONUNA
EKKI HEIM TIL SÍN
Jón Halldórsson er ósáttur við vinnubrögð Útlendingastofnunar. Hann giftist konu frá
Haítí um áramótin. Hún hefur þó ekki fengið landvistarleyfi hér. Misræmi er í gögnum
sem yfirvöld á Haítí létu Jóni í té um fæðingardag dóttur eiginkonunnar. Jón segir yfir-
völd þar í landi spillt og erfitt sé að eiga við þau. Hann gagnrýnir þann skamma tíma sem
hann fær til að afla nýrra gagna.
„Hvernig er það,
vildu þeir fá hvíta
mynd af svartri
konu?“
ErlA HlynSdóttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
Hjónin geta ekki verið saman jón Halldórsson og nadege
Francois giftu sig um áramótin á Haíti. Hún hefur þó ekki
getað flust til íslands þar sem hún fær ekki landvistarleyfi.
tengdapabbinn vúdúprestur Haíti er
að mörgu leyti ólíkt íslandi og til að
mynda starfar faðir nadege sem
vúdúprestur. jón er í góðum samskipt-
um við tengdaföður sinn.
Fær ekki að koma til Íslands
misræmi er í þeim gögnum sem
fengust frá yfirvöldum á Haíti
um fæðingarár Biöncku, dóttur
nadege. Erfiðlega gengur að fá
samræmd gögn og því koma
þær mæðgur ekki til jóns í bráð.