Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2008, Síða 6
miðvikudagur 25. júní 20086 Fréttir DV
Hestakonan Sigurveig Sara Björnsdóttir er komin með nóg af háu bensínverði:
Ríður til að mótmæla
„Ég vil að menningin verði aftur
eins og hún var fyrr á öldinni sem
leið, að menn fari bara á hrossum út
í búð,“ segir Sigurveig Sara Björns-
dóttir, starfsmaður Íshesta, en hún
hefur fengið sig fullsadda af háu
bensínverði. Sara tók málin í sínar
hendur og ferðast nú ríðandi til og
frá vinnu.
Sara hefur útbúið hina bestu
aðstöðu fyrir hrossin úti í garði hjá
leigusala sínum, en sá fer að sögn
með henni í útreiðartúra. „Við ætl-
um bara að hafa þessar sláttuvélar
í garðinum,“ segir Sara og bendir á
að kostir hestsins sem fararskjóta
séu fleiri en bara bensínsparnaður.
„Þetta bæði dregur úr mengun og
fækkar banaslysum í umferðinni,“
bætir Sara við, auk þess sem hrossin
spara vinnuna í garðinum.
Yfirmaður Söru hjá Íshestum,
framkvæmdastjórinn Einar Bolla-
son, er einnig mikill fylgismaður
útreiða við dagleg störf. Hann lýsti
lausninni á bensínvandanum fyrir
hlustendum Bylgjunnar í viðtali um
daginn.
„Ég sagði bara mína skoðun á því
að ég vildi láta breyta þessum stóru
bílastæðahúsum niðri í bæ að hluta
til í hesthús og þjálfa bílastæðaverð-
ina upp í að sjá um hesta,“ segir Ein-
ar og bætir við að viðbrögðin hafi
ekki látið á sér standa. Yfir hann hafi
rignt bæði símtölum og tölvupóst-
um þar sem fólk lýsti hrifningu sinni
á þessum hugmyndum. „Menn hafa
gaman af þessu.“
Guðbrandi Sigurðssyni, aðal-
varðstjóra umferðardeildar lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu, líst
afar illa á aukna hestaumferð inn-
anbæjar. „Það gefur augaleið að það
færi ekki saman við borgarumferð-
ina,“ segir Guðbrandur og vísar í ný-
útgefna reglugerð um lögreglusam-
þykkt því til stuðnings.
Sigurveig Sara og
fararskjótinn Segir
hesta bæði ódýrari og
öruggari farkost en bíla.
Bensínið mun
hækka áfram
Bensínverð dælustöðvanna hækkaði um allt að fimm krónur á lítrann í gær. Bensínlítrinn kostar tæplega
helmingi meira en í júní á síðasta ári. Hagfræðilektor við Háskóla Íslands telur ekkert lát á hækkununum
og telur líklegt að bensínið rjúfi tvö hundruð króna múrinn.
„Það varð smávægileg breyting á
heimsmarkaðsverðinu til hækk-
unar. Það sem reið baggamuninn
var gengi krónunnar,“ segir Magn-
ús Ásgeirsson, innkaupastjóri elds-
neytis hjá N1, um hækkun elds-
neytisverðs. Forsvarsmenn annarra
olíufélaga tóku í sama streng. Bens-
ínstöðvar landsins hækkuðu elds-
neytisverð umtalsvert í gær.
Hækkun um allt að fimm
krónur í gær
Flestar bensínstöðvar á land-
inu hækkuðu verð á bensín- og
dísilolíulítranum um þrjár krónur
í gær. Þess eru dæmi að verð ein-
stakra stöðva hafi hækkað um allt
að fimm krónur milli daga. Til sam-
anburðar lækkaði bensínverð um
tvær krónur á árs tímabili frá júní
2006 til sama mánaðar 2007.
Um er að ræða síðasta verð-
stökkið í þeirri röð hækkana sem
dunið hefur yfir undanfarið. Ekki
sér enn fyrir endann á hækkunun-
um.
Þegar blaðamaður ræddi við
Magnús upp úr hádegi í gær sagði
hann heimsmarkaðsverð hráolíu-
tunnunnar hafa hækkað um rúm-
an dollar frá því hann mætti til
vinnu fyrr um morguninn. Magnús
vildi þó ekki segja til um hvort fleiri
hækkanir væru í vændum.
Herkvaðning
neytendafrömuða
Síðasta útspil sjálfskipaðra neyt-
endafrömuða er eins konar her-
kvaðning sem gengur eins og sinu-
eldur manna á milli í tölvupósti. Þar
eru kaupendur eldsneytis hvattir til
að sniðganga tvö stærstu olíufélög
landsins til að koma af stað verð-
stríði. Þó er ljóst að ekki er við olíu-
félögin ein að sakast.
16. júní síðastliðinn náði heims-
markaðsverð á olíu methámarki
þegar tunnan kostaði tæpa 140
dollara. Síðan þá hefur verðið
lækkað um fimm dali, þótt enn sé
það æði sveiflukennt. Ofan á það
leggst lágt gengi krónunnar. Hún
tók hressilega dýfu í gær og lækkaði
um tæp þrjú prósent. Líkt og Magn-
ús bendir á er þar fólgin aðalástæða
hækkunar bensínverðsins í gær.
Tæp helmingshækkun
á aðeins ári
Með ólíkindum er hversu hratt
bensínverð hefur hækkað síðast-
liðið ár. Í júní á síðasta ári seldi
Skeljungur bensínlítrann á 124,6
krónur. Síðan þá hefur lítrinn hækk-
að um tæpan helming og kostar nú
hjá sama félagi 176,4 krónur. Bens-
ínverðið hafði ekki tekið nándar
viðlíka stakkaskiptum árin áður.
Fyrir ári kostaði 6.230 krónur að
fylla fimmtíu lítra bensíntank. Nú
fást aðeins um 35 lítrar fyrir sama
fé.
Lítrinn fer yfir tvö
hundruð krónur
„Það er stöðugt vaxandi eftir-
spurn eftir orku, sérstaklega olíu og
bensíni,“ segir Guðmundur Ólafs-
son, lektor í hagfræði við Háskóla
Íslands. „Sú eftirspurn mun ekki
minnka í bráð.“ Guðmundur telur
öruggt að bensínverð sé ekki á leið
niður, heldur komi þvert á móti til
með að hækka áfram.
Sá ótti sem verst
hrjáir marga er að
bensínlítrinn læð-
ist yfir hið geigvæn-
lega tvö hundruð króna
mark. Aðspurður hvort
honum finnist líklegt
að verðið fari svo hátt
fyrir áramót segist Guð-
mundur telja það geta
gerst.
HafSTeinn gunnar HaukSSon
blaðamaður skrifar hafsteinn@dv.is
Guðleg ábending
um að gæta sín
„Auður heimsins safnast til
þess landsvæðis sem aldin-
garðurinn var í upphafi. Þetta
held ég að sé guðleg ábend-
ing til allra um að gæta sín og
gera sig klára,“ segir Gunnar
Þorsteinsson, forstöðumaður
Krossins, um þær miklu bens-
ínhækkanir sem landsmenn
og fólk um allan heim hafa
orðið áþreifanlega vör við. „Við
eigum að hafa það í huga að
það er einn sem öllu stýrir og
stjórnar. Atburðarásin er fyrir-
sögð og þetta er hluti af henni.
Hækkandi bensínverð kemur
mér ekki á óvart. Auður er vald
og valdið er flutt á þennan
stað og það verður notað gegn
hinum vestræna manni. Menn
skyldu gæta sín. Það er tími til
kominn að skoða stöðu sína.
Maður spyr sjálfan sig
þegar þessar fjár-
málahremming-
ar eru um allan
heim og eng-
inn ræður við
neitt hvort
þetta sé þetta
lokahrun
sem við
eigum von
á eða hvort
við fáum
einhvern frest.
Kannski Geir H.
Haarde komi því
til leiðar.“
„Guðmundur telur öruggt að bensínverð
sé ekki á leið niður, heldur komi þvert á
móti til með að hækka áfram.“
Verð
bensín-
lítrans
20
04
1
05
,9
0
k
r
ó
n
u
r
20
05
1
09
,6
0
k
r
ó
n
u
r
20
06
1
26
,9
0
k
r
ó
n
u
r
20
07
1
24
,6
0
k
r
ó
n
u
r
20
08
1
76
,4
0
k
r
ó
n
u
r