Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2008, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2008, Page 10
Mikið uppnám varð á Ben-Gurion- flugvellinum í Tel Aviv í Ísrael í gær í þann mund sem Nicolas Sarkozy, Frakklandsforseti, og Carla Bruni, eiginkona hans stigu um borð í flug- vél sína. Skyndilega kvað við skot- hvellur og í sömu andrá féll lögreglu- maður úr vaktstöðu sinni sem var í þó nokkurri hæð. Öryggisverðir um- kringdu forsetahjónin og Ehud Ol- mert, forsætisráðherra Ísraels. For- setahjónunum var fylgt með hraði um borð í vélina, og öryggisverðir með brugðnar byssur fylgdu Olmert í skothelda bifreið. Talsmaður ísraelsku lögreglunn- ar, Mickey Rosenfeld, sagði að lög- reglumaðurinn hefði svipt sig lífi með skoti í höfuðið í sömu andrá og Sarkozy gekk um borð í vélina. Þeg- ar ljóst var að um enga hættu væri að ræða fyrir forsetahjónin frönsku, eða forsætisráðherra Ísraels fór sá síðarnefndi um borð í flugvélina og kvaddi Sarkozy og Bruni með virkt- um og útskýrði hvað gengið hafði á. Aldrei var um neitt tilræði við Sark- ozy að ræða. Ísraelsk útvarpsstöð upplýsti að umræddur lögreglu- maður hefði verið í um eitt hundr- að metra fjarlægð frá flugvél forseta- hjónanna. Þriggja daga heimsókn Forsetahjónin höfðu verið í þriggja daga heimsókn til Ísrael og hafði Sarkozy meðal annars rætt við Ehud Olmert forsætisráðherra og Mahmoud Abbas, forseta Palestínu. Þegar Sarkozy ávarpaði ísraelska þingið sagði hann meðal annars að „það gæti aldrei orðið friður“ nema Ísraelsmenn deildu yfirráðum yfir Jerúsalem með Palestínumönnum og létu af uppbyggingu landnema- byggðar á hersetnu svæðunum. Nú þegar eru komnar sprungur í vopnahlé Ísraels og Gaza-svæðisins, sem samþykkt var fyrir milligöngu Egypta síðastliðinn fimmtudag. Systursamtök Hamas, Islamic Jihad, gengust við tveimur flugskeytaárás- um í gær og sögðu þær fyrstu við- brögð við drápi á foringja samtak- anna og öðrum Palestínumanni á Vesturbakkanum. Vopnahléið frá fimmtudeginum inniheldur að Ísraelsmenn haldi að sér höndum á Gaza-svæðinu og létti á efnahagsþvingunum gagnvart því, en nær ekki til Vesturbakkans. Hamas stendur við vopnahlé Hamas-samtökin á Gaza-svæð- inu ætla að virða vopnahléssamn- inginn og sjá til þess að sá fjöldi vopnaðra hópa sem séu þar geri slíkt hið sama. Sami Abu Zuhri, embætt- ismaður Hamas, hvatti alla palest- ínska hópa til að virða samkomulag- ið. „Hamas-samtökunum er mikið í mun að standa við samninginn,“ sagði hann. Ísraelskir embættis- menn voru í gær ekki reiðubúnir til að segja fyrir um með hvaða hætti þeir hygðust bregðast við flugskeyta- árásunum. Það hefur löngum verið álitamál hvort Hamas-samtökin séu í stakk búin til að hafa hemil á vopn- uðum hópum á Gaza-svæðinu. En hvað sem því líður voru Islamic Jih- ad, systursamtök Hamas, einn fárra hópa sem lýstu því opinberlega yfir að hann myndi virða ákvæði vopna- hlésins sem samið var um í síðustu viku. miðvikudagur 25. júní 200810 Fréttir DV erlendarFréttir ritstjorn@dv.is Endurnýjun lífdaga Bretinn John Lowndes saknaði svo mjög tedrykkju með föður sínum að tíu árum eftir lát hans ákvað hann að gera eitthvað í málinu. Í samvinnu við leirgerð- armanninn Neil Richardson lét hann útbúa tekönnu úr ösku föður síns. Öskunni var blandað saman við leir og nú getur hann daglega rifjað upp samveru- stundir sínar og föður síns yfir góðum tebolla. „Pabbi myndi skilja þetta. Það eina sem hefði verið betur við hæfi væri bjórglas,“ sagði Lowndes um uppátæki sitt. Skítalykt af málinu Fyrr í vikunni olli óvenjulegur laumufarþegi því að flugvél Am- erican Airlines tafðist um marga klukkutíma í Miami, á leið til Bogota í Kólumbíu. Skunk ein- um hafði tekist að lauma sér inn í farangursrýmið og þegar ótt- inn tók völdin hjá honum gerði hann það sem hann er þekktur fyrir. Fnykurinn sem hann sendi frá sér barst með ógnarhraða um farangursrýmið og þeir far- þegar sem þá þegar voru komir um borð flýðu vélina með hönd fyrir vitum sér. Rændu fjórum ferðamönnum Fjórir þýskir ferðamenn lentu í klóm sómalískra sjóræningja í gær. Ferðamennirnir, tveir karl- menn, ein kona og barn, höfðu siglt út fyrir landhelgi sjálfstjórn- arhéraðsins Puntland, og var, að sögn varaforseta Puntlands, haldið föngnum í fjalllendi í Sómalíu. Sjórán eru arðbær atvinnu- vegur við strendur Sómalíu og reglan er að gíslar njóti ágætis- meðferðar, enda dýrmæt vara í augum sjóræningja. Hafsvæðið fyrir utan Sómalíu er talið eitt það viðsjárverðasta í heimi. SjálfSvíg við kvEðjuathöfn Nicolas Sarkozy og Carla Bruni Forsetahjónin voru í þriggja daga heimsókn í ísrael. KolBeiNN ÞorSteiNSSoN blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is Vopnahlé á Gaza-svæðinu er í hættu vegna flugskeytaárásar og ísraelskur lögreglu- maður framdi sjálfsmorð í sömu andrá og Frakklandsforseti kvaddi Ísrael í gær. ehud olmert Öryggisverðir mynduðu skjaldborg um forsætisráðherra ísraels. Með brugðnar byssur Öryggisverðir brugðust skjótt við atvikinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.