Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2008, Qupperneq 18
miðvikudagur 25. júní 200818 FERÐIR DV
Asninn í myndunum um græna risann Shrek er ekki sá eini sem á ferðalögum hrópar í sífellu: „Erum við kom-
in?“ Börnum finnst oft sem ferðalög taki heila eilífð, og oft komast þau reyndar ansi nærri því. En þá er mikil-
vægt að hafa í handraðanum skemmtilega leiki til að stytta ungviðinu stundir. DV tók saman nokkra fjöruga
leiki sem henta vel á ferðalögum.
Bannað að Brosa
dags daglega er ekki mikið mál að sleppa því að
brosa. En um leið og þér er skipað að sleppa því
vandast málið.
Þátttakendur þurfa að sitja þannig að þeir sjái hver
framan í annan. markmiðið er að fá hina þátttak-
endurna til að brosa en sá sem er lengst alvarlegur
stendur uppi sem sigurvegari. Skemmtilegast er
auðvitað að gretta sig ógurlega til að reyna að fá
hina til að springa úr hlátri og tapa leiknum.
Hver er persónan?
Sá sem byrjar finnur sér þekkta persónu til að hugsa
um. Best er að haga valinu í samræmi við samsetn-
ingu þátttakenda þannig að allir viti hver viðkom-
andi er. Síðan skiptast hinir þátttakendurnir á að
spyrja spurninga sem hægt er að svara með já eða
nei.
Dæmi: „Er þessi persóna til í alvörunni?“ Ef svarið
er já fær sá sem spurði að reyna aftur. Ef svarið er
nei á næsti að gera. Sá vinnur sem giskar á rétta
persónu og hann velur síðan þá næstu sem hinir
giska á.
Gulur Bíll!
Sívinsæll og gamalkunnugur leikur er að fylgjast vel
með þeim bílum sem mætt er eða keyrt framhjá og
sá sem fyrstur sér gulan bíl potar létt í öxlina á
öðrum þátttakanda og hrópar: gulur bíll!
Þar sem gulir bílar eru heldur fáir á götunum er
þessi leikur yfirleitt leikinn meðfram öðru og má því
búast við að heyra hrópin skyndilega á jafnvel
meira en klukkutíma fresti.
Þeir sem vilja virkari leik geta breytt þemanu í til
dæmis „svartur bíll!“ eða jafnvel „jeppi!“ eða „rúta!“
Ekki þarf endilega að halda utan um hver fylgist
best með enda oft nægileg verðlaun að fá að pota í
sessunautinn.
Frúin í HamBorG
Tveir geta leikið þennan leik í einu. Sá sem byrjar
spyr: „Hvað keyptir þú fyrir peningana sem frúin í
Hamborg gaf þér í gær?“ og bætir síðan við
reglunum: „Þú mátt ekki segja svart og ekki hvítt,
ekki já og ekki nei.“
Hinn hugsar þá upp eitthvað sem hann keypti fyrir
peningana, til dæmis: „Ég keypti bolta.“ Sá sem spyr
heldur þá áfram að forvitnast um boltann og reynir
að fá hinn til að segja bannorðin. Þegar það tekst er
lotan búin og þátttakendur skipta um hlutverk.
síðasti BókstaFurinn
Þegar eldri börn og unglingar eru á ferðalagi er oft
sniðugt að fara í leik þar sem valið er þema, til
dæmis frægir leikarar. Sá sem byrjar segir nafn á
leikara og sá sem á að gera á eftir honum verður að
nefna annan leikara sem heitir nafni sem byrjar á
síðasta stafnum í nafni fyrri leikarans. Ef sá fyrsti
sagði adam Sandler, gæti sá næsti sagt reese
Witherspoon.
Þátttakendur detta úr leik ef þeir finna ekkert nafn
og á endanum situr einn eftir sem sigurvegari. Tveir
geta einnig vel farið í þennan leik.
Steiktar veislupyslur
Pylsur með heitu
kartöflusalati
uppskrift úr gestgjafanum
á bls. 29. í 8. tbl. 2007
Höf.: Sigríður Björk Bragadóttir
mynd: kristinn magnússon
fyrir fjóra
n 800 g kartöflur
n 2-3 laukar
n 25 g smjör
n 1 dl vatn
n 3/4 dl hvítvínsedik
n 1 tsk. sykur
n 1 tsk. salt
n nýmalaður pipar
n 6-8 þýskar grillpylsur eða aðrar sem
ykkur þykja góðar
Skrælið kartöflurnar, skerið þær
í 1 cm þykkar sneiðar og sjóðið í
saltvatni í um það bil 5 mín. Hellið
í sigti og látið bíða. Afhýðið laukinn
og skerið í þunnar sneiðar. Steikið
hann í smjörinu stutta stund, bætið
vatni og ediki saman við og sjóðið í
5 mín. Setjið þá sykur, salt og pipar
út í ásamt kartöfluskífunum. Hitið
vel í gegn. Steikið pylsurnar á pönnu
samkvæmt leiðbeiningum á umbúð-
um.
Gömlu Góðu pylsurn-
ar Geta orðið veislu-
matur í útileGunni
með smá fyrirhöfn.
eini útbúnaðurinn
sem þarf til að búa til
pylsur með heitu
kartöflusalati er
panna oG Grill.
FERÐalEIkIR
fyrir börn