Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2008, Blaðsíða 20
miðvikudagur 25. júní 200820 FERÐIR DV
SungIÐ
í sveitinni
Það er fátt skemmtilegra en vel heppnuð útilega í góðra vina hópi. Þegar líður á kvöldin vill oft færast fjör í leikinn og
gítar og söngur taka völdin. Gott er að huga að því áður en lagt er af stað í útileguna að finna skemmtilega söngtexta
á netinu og prenta þá út svo að allir geti tekið þátt í fjörinu. DV rifjar upp nokkur góð lög sem henta vel í útileguna.
STÁL OG HNÍFUR
Þegar ég vaknaði um morguninn
er þú komst til mín.
Hörund þitt eins og silki
andlitið eins og postulín.
Við bryggjuna bátur vaggar hljótt
Í nótt mun ég deyja.
Mig dreymdi dauðinn segði komdu fljótt
það er svo margt sem ég ætla þér að segja.
Ef ég drukkna, drukkna í nótt
ef þeir mig finna.
Þú getur komið og mig sótt
þá vil ég á það minna.
Stál og hnífur er merkið mitt
merki farandverkamanna.
Þitt var mitt og mitt var þitt
meðan ég bjó á meðal manna.
LÉTTUR Í LUNDU
Léttur í lundu ég lagði af stað
Á sömu stundu þér skaut þar að.
Ég bauð þér upp í bílinn, ég blístraði á skrílinn.
Ég held ég hafi aldrei lent í öðru eins.
Léttur í lundu ég lagði af stað.
Á sömu stundu þér skaut þar að.
Ég bauð þér á ball í Stapa,
á því var engu að tapa.
Ég held ég hafi aldrei lent í öðru eins
Gaman er að koma í Keflavík, kvöldin þar þau
eru engin lík.
Í sveitinni þeir eiga engin slík.
Léttur í lundu ég lagði af stað
Á sömu stundu þér skaut þar að.
Ég bauð þér á ball í Stapa,
á því var ekki að tapa.
Ég held ég hafi aldrei lent í öðru eins
ÞAÐ BLANDA ALLIR LANDA UPP
TIL STRANDA
Það blanda allir landa upp til stranda
og vanda sig svo við að brugga bjór.
Síðan drekkur fólkið þennan fjanda
og viðskiptahópurinn er stór.
Þeir selja hver öðrum slíkan varning
og úrvalið af tegundum er gott.
Þó þeir stundi líka ýmsan barning
þá lifa þeir víst ótrúlega flott.
Já, það blanda allir landa upp til stranda
og standa í þessu nótt sem nýtan dag.
En unglingarnir valda mörgum vanda
þeir kunna ekki foreldranna fag.
Úr turnunum súrhey börnin reykja
og steikja sér svo smáfugla á tein.
Næstum því í hlöðunum þau kveikja
svo gamla fólkið rekur bara upp vein.
Já, það blanda allir landa upp til stranda
og standa í þessu nótt sem nýtan dag.
En unglingarnir valda mörgum vanda
þeir kunna ekki foreldranna fag.
NÍNA OG GEIRI
Ef þú vilt bíða eftir mér
á ég margt að gefa þér,
alla mína kossa ást og trú,
enginn fær það nema þú.
Nína átti heima á næsta bæ.
Ég næstum það ekki skilið fæ,
hún var eftir mér alveg óð.
Ég fékk bréf og í því stóð:
Ef þú vilt bíða eftir mér
á ég margt að gefa þér,
alla mína kossa ást og trú.
Engin fær það nema þú.
Ég las það og þaut svo strax af stað.
Mér stóð ekki á sama ég segi það.
En Nína grét og gekk mér frá,
hún gat ei skilið sem ég sagði þá:
Nína góða gráttu ei.
gleymdu mér, ég segi nei.
Þú ert enn of ung góða mín
og ég get alls ekki beðið þín.
Til Reykjavíkur lá mín leið.
Langan tíma þar ég beið.
Ég alltaf reyndi en illa gekk
að gleyma bréfinu sem ég fékk.
Ef þú vilt bíða eftir mér
á ég margt að gefa þér
alla mína kossa ást og trú.
Enginn fær það nema þú.
Ég vissi að aldrei fengi ég frið
fyrr en Nínu ég sættist við.
Hugurinn stöðugt hjá henni er,
hún skal víst fá að giftast mér.
Ég ók í skyndi upp í sveit,
æskustöðvarnar mínar leit.
En Nína leit mig ekki á,
ég enn ei skil það sem hún sagði þá:
Geiri elskan gráttu ei,
gleymdu mér ég segi nei.
Þú vildir mig ekki veslings flón,
því varð ég að eiga hann vin þinn Jón.
Barnastundir
Í sumar bjóða þjóðgarðarnir að
venju upp á dagskrá fyrir yngstu
ferðalangana. Í svokölluðum barna-
stundum sem standa í klukkustund
í senn sýnir landvörður krökkunum
undur náttúrunnar og fer með þeim
í skemmtilega leiki. Þetta er tilval-
in leið til að kynnast öðrum krökk-
um á ferðalagi um Ísland og fræðast
á sama tíma um blóm, skordýr og
kletta. Á Snæfellsnesi verða þessar
stundir frá klukkan 11 til 12 á laug-
ardagsmorgnum í allt sumar, í Ás-
byrgi milli 11 og 12 á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum og í
Skaftafelli eru barnastundir á sama
tíma bæði á laugardags- og sunnu-
dagsmorgnum. Á meðan getur full-
orðna fólkið brugðið sér í stutta
gönguferð því í upplýsingamið-
stöðvum þjóðgarðanna fást bæk-
lingar um merktar gönguleiðir og
hversu langan tíma tekur að ganga
hverja leið. Einnig getur verið gam-
an að lesa sér til um svæðið því í
bæklingunum eru líka upplýsingar
um gróðurfar og annað á svæðinu.
Barnastundir eru ókeypis og allir
eru velkomnir. liljag@dv.is
Vatnajökulsþjóðgarður -
Jökulsárgljúfur krakkar
skoða jurtir með landverði.
H
ild
ur
H
lín
Jó
ns
dó
tt
ir
/ h
ild
ur
@
dv
.is
GISTING Í VOPNAFIRÐI
FERÐAÞJÓNUSTA BÆNDA
SYÐRI VÍK VOPNAFIRÐI
Upplýsingar gefur Kristín í síma: 473 1199 - GSM: 848 0641 - fax: 473 1449 -
holmi56@vortex.is
Tvö sumarhús, 4 og 8 manna, einnig sér hús með 6
tveggjamanna herbergjum og eldunaraðstöðu.
Gott aðgegi fyri fatlaða.
Uppbúin rúm og svefnpokapláss.
Veiðileyfi seld á silungarsævði í Hofsá