Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2008, Side 24
miðvikudagur 25. júní 200824 FERÐIR DV
Það þarf ekki að fara langt til að upplifa ótrúlegar söguslóðir á Íslandi og komast í kynni við eigin rætur.
Blaðamaður tók saman fimm sögulega staði á landinu sem enginn getur sleppt því að heimsækja um ævina.
SöguSlóÐIR
við þjóðveginn
Borg á MýruM
Staðurinn
Borg á mýrum stendur rétt utan við Borgarnes fyrir
botni Borgarvogs. Staðurinn sést frá þjóðvegi eitt.
Sagan
Þekktust er Borg á mýrum fyrir að hafa verið heimili
skáldsins og hetjunnar Egils Skallagrímssonar.
Skalla-grímur kveldúlfsson, faðir Egils, nam þar
land fyrstur manna. Sonur Egils, Þorsteinn, reisti
fyrstu kirkjuna á Borg . Síðan þá hefur verið þar
kirkjustaður.
Sú kirkja sem nú stendur á Borg var reist árið 1880.
kirkjan er ákaflega falleg og ekki er altaristafla
enska málarans W. g. Collingwood sem hana prýðir
síðri. meðal þess sem fyrir augu ber á Borg er
minnisvarði Ásgríms Sveinssonar um Egil,
Sonatorrek, sem ber óvenjulegum stíl Ásgríms
fagurt vitni og glæðir staðinn lífi.
SkriðuklauStur
Staðurinn
Skriðuklaustur stendur í Fljótsdal á austurlandi
miðja vegu milli fornu höfuðbólanna valþjófsstaða
og Bessastaða.
Sagan
Árið 1493 var stofnað munkaklaustur af Ágústínus-
arreglu á staðnum. Hlaut hann þá nafnið Skriðu-
klaustur, en hafði áður heitið Skriða. nokkru síðar
var reist þar kirkja. Lagðist hún af um 1792. í dag
stendur yfir fornleifauppgröftur í kringum minjar frá
þessum tíma.
Þekktast er Skriðuklaustur fyrir að hafa verið
bústaður rithöfundarins gunnars gunnarssonar. Lét
hann reisa þar eitt fallegasta hús sem stendur á
íslandi og bjó þar síðustu æviárin. Hann ánafnaði
íslenska ríkinu húsið að honum gengnum en þar er
rekið fræðasetrið gunnarsstofnun í dag.
Húsið var teiknað af þekktum þýskum arkitekt, Fritz
Höger, og er í þýskum sveitasetursstíl. Það er því
æði framandi á að líta og líkt og gestir þess séu
klipptir inn í myndina Sound of music þegar þeir
heimsækja staðinn.
reykholt
Staðurinn
reykholt stendur um tuttugu mínútna akstur frá
Borgarnesi við afleggjara frá þjóðvegi eitt. í næsta
nágrenni eru miklar náttúruperlur á borð við Hraun-
fossa og Surtshelli.
Sagan
að reykholti bjó einn fremsti fræðimaður
íslandssögunnar, Snorri sjálfur Sturluson. Hann var
uppi 1178-1241 og skrifaði mörg stórvirki sem enn
lifa með íslensku þjóðinni. Þar á meðal er Heims-
kringla, saga noregskonunga, og Edda sem við
hann er kennd. í Eddu er að finna ómetanlegar
heimildir um forna goðafræði og kveðskaparreglur.
Fræg er sagan af morði Snorra en hann var myrtur
af lénsmönnum Hákonar noregskonungs að
reykholti. Síðustu orð hans voru „Eigi skal höggva“.
Líklegast kemur fæstum á óvart að banamenn hans
virtu þá beiðni að vettugi.
Eitt elsta mannvirki landsins er einnig að finna að
reykholti, Snorralaug. Hún ber verkfræðikunnáttu
forfeðra okkar gott vitni en stokkar eru notaðir til
að veita heitu hveravatni í laugina. í dag er unnið að
rannsóknum, uppgreftri og kynningu í miðalda-
fræðum og sögu sveitarinnar að reykholti. Þar
stendur einnig falleg stytta til minnis um Snorra
Sturluson.
Borgarkirkja Er ákaflega
snotur og dæmigerð fyrir
íslenskar sveitakirkjur.
Sonatorrek Expressionisminn
eins og hann gerist villtastur;
Ásgrímur Sveinsson er engum
líkur.
Snorrastofa Falleg jafnt
innan sem utan og stútfull af
þjóðlegum fróðleik.
Snorralaug Stokkar eru notaðir
til að veita heitu vatni í laugina
úr nærliggjandi hverum.
Skriðuklaustur Hús gunnars
gunnarssonar er allt í senn
framandlegt, tígulegt og fallegt.
Fornleifauppgröftur vekur
mikla athygli ferðamanna.