Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2008, Qupperneq 50
Að keyra hringinn í kringum landið á smábíl
líkt og Toyota Yaris kostar tæpar ellefu þúsund
krónur. Fjölskyldubíllinn Volkswagen Passat eyðir
rúmum fimmtán þúsund krónum og Range Rov-
er tuttugu og átta þúsund. Verðið var miðað við að
bensínlítrinn kostaði 170 krónur.
Ef borið er saman að Yaris fari hringinn á ell-
efu þúsund krónum, kæmist Passat að Hoffelli í
Hornafirði og Range Rover að Tjörn í Aðaldal.
Í byrjun sumars 2007 kostaði bensínlítrinn í
kringum 125 krónur. Þá fór Toyota Yaris hring-
inn á átta þúsund krónum, Volkswagen Passat á
rétt rúmum ellefu þúsund og Range Rover rúmar
tuttugu þúsund krónum. Því hefur bensínverðið
hækkað um 27 prósent frá síðasta ári.
„Bensínverðið getur haft áhrif á ferðaval.
Fólk er farið að huga meira að því að fara í styttri
ferðir nær sínum heimahögum. Þetta mun hafa
margföld áhrif úti í samfélaginu,“ segir Runólfur
Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bif-
reiðaeigenda.
Nú er komið sumar og er það sá tími sem fólk
nýtir til að ferðast bæði innanlands og erlendis.
Bensínlítrinn hefur hækkað töluvert á síðasta ári
og fyrir vikið verður ferðalagið dýrara.
„Við höfum biðlað til stjórnvalda að koma til
móts við almenning með því að lækka skatta af
eldsneyti, þó það væri ekki nema tímabundið,“
segir hann, „því hefur ekki verið svarað með já-
kvæðum hætti.“
miðvikudagur 25. júní 200850 FERÐIR DV
xxxxxxxxxxx
xxxxxxxxxx
Mikill munur er á bensínkostnaði með því að fara hringinn í kringum landið á Yaris eða Range Rover. Margir
huga að ferðalögum á sumrin og eru til ýmis ráð til að lækka eldsneytiskostnaðinn:
Sneri heyi á Austurlandi
„Ég er dálítið erfiður því ég vil helst
ekki gista í tjaldi, að vakna blautur af
svita er ekki það sem ég sækist eftir,“
segir Björgvin Franz Gíslason leikari.
Síðasta sumar lét hann þó tilleiðast og
fór í tjaldferðalag um Austurland með
fjölskyldu og vinafólki. Vinur hans
þekkti til á bóndabæ í nágrenninu og
þeir félagarnir kíktu þangað: „Eftir
nokkrar mínútur var ég kominn upp
í traktor að snúa heyi á fullu, það var
magnað. Það færðist meira að segja
yfir mig ró og það gerist nú ekki oft.
Þegar okkur fannst við búnir að vera
voða duglegir kom kona frá bónda-
bænum og gaf okkur smurt brauð og
kakó, þetta var alveg ekta,“ segir hann.
Í sumar ætlar Björgvin að fara á djass-
hátíð á Seyðisfirði með fjölskyldunni,
en það er einn af hans uppáhalds-
stöðum. Ferðalagið í fyrra verður samt
seint toppað: „Ég og vinur minn erum
mjög æstir í að fá að snúa heyi aftur,
ég býð hér með fram aðstoð okkar ef
einhver vill aumka sig yfir okkur, við
erum duglegir og vinur minn er meira
að segja með meirapróf,“ segir leikar-
inn hress að lokum.
liljag@birtingur.is
„Ég er dálítið erfiður því Ég
vil helst ekki gista í tjaldi,
að vakna blautur af svita er
ekki það sem Ég sækist eftir.“
DýRaRa aÐ FERÐast
innanlands
Nokkrar leiðir
er til að spara
eldsNeytið
n Hafðu gott bil í næsta bíl á undan
til að losna við skrykkjóttan akstur í
röð.
n Hægðu á þér í tíma þegar þú
nálgast gatnamót þar sem standa
bílar, þú gætir losnað við að þurfa að
stoppa.
n Stilltu hraðann við aðra umferð
þegar þú nálgast hringtorg, þá gætir
þú losnað við að stoppa.
n notaðu allar akreinar til að halda
sem jöfnustum hraða, en stundaðu
þó ekki svigakstur.
n Stilltu hraðann fyrir umferðarljós
svo þú losnir við að stoppa.
n notaðu mótorinn við að hægja á
þér fyrir gatnamót.
n keyrðu einungis eina til tvær
bíllengdir í 1. gír áður en þú skiptir í 2.
gír. Skiptu frá 2. gír í 4. gír og úr 3.gír í
5. gír.
n aktu í eins háum gír og hægt er. Því
hærri sem gírinn er því minna
eldsneyti notar bíllinn
n Látið bílinn rúlla án gjafar niður
brekkur, reynið að ná upp hraða áður
en ekið er upp brekku svo hægt sé að
vera í hærri gír. aukið ekki gjöfina á
leiðinni upp.
n Smyrjið bílinn reglulega. gömul og
stífluð loftsía getur haft í för með sér
aukna eldsneytiseyðslu.
n Pumpið gjarnan 10-15% meira í
dekkin en handbókin segir til um, það
minnkar viðnám án þess að auka
hættu í umferðinni. réttur loftþrýst-
ingur getur minnkað eldsneytisnotk-
un um 5%, að auki endast dekkin
betur og aksturseiginleikar bílsins
batna.
n Fjarlægið farangursbox og
toppgrindur þegar þeirra er ekki þörf.
Toyota Yaris að keyra hringinn á
Toyota Yaris kostar tæpar ellefu
þúsund krónur.
Range Rover að keyra hringinn á
range rover kostar tuttugu og átta
þúsund krónur.
Volkswagen Passat að keyra
hringinn á volkswagen Passat kostar
rúmar fimmtán þúsund krónur.
„HVER KEMST
LENGST
FYRIR
10, 878 KR?“1
3
2
Verðið er yfirgengilegt
Bensínlítrinn er kominn yfir 170
krónur og er ferðalagið innanlands
orðið mun dýrara en í fyrra.