Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2008, Síða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2008, Síða 54
miðvikudagur 25. júní 200854 FERÐIR DV DagsvERk aÐ kLÍFa DROTTNINgUNa Fjölskylduganga á Vífilfell Þeir sem ekki hafa tíma í langt ferða- lag í sumar geta þrátt fyrir það leyft sér að fara í stutta fjallgöngu skammt frá bænum. Vífilfell er fjall skammt frá Reykjavík og tekur aðeins um 15 mín- útur að komast þangað. Gengið hef- ur verið á Vífilfell í fjölda ára og er það góð tilbreyting frá Esjunni. Gangan tek- ur ekki langan tíma og hentar því ung- um sem öldnum. Gæti verið frábært og stutt ferðalag að fara með fjölskyld- una. Bæði er hægt að fara eftir kvöld- mat eða helgardag og þá er tilvalið að keyra áfram til Hveragerðis, skella sér í sund og fá sér ís í Eden. Stutt en gott ferðalag. Vífilfell er 655 metra hátt fjall. Ferðin upp er smá áreynsla en þykir ekki erfið fyirr vana fjallgöngumenn. Börn ættu ekki að eiga í neinum vandræðum með það. Dálítið klifur er í lokin upp á topp- inn svo maður þarf að leggja það á sig til að klára. Þegar upp er komið er út- sýnið ægifagurt og er hægt að sjá langt í allar áttir. Það er að segja ef heiðskírt er. Allt frá Snæfellsjökli að Eyjafjallajökli. Flestir eru vanir að fara á Bláfjallasvæð- ið á vetrartíma með skíðin og því góð ástæða að skoða það að sumri til. Farðu með Fjölskylduna í stutta Fjallgöngu. „Líkast til var Herðubreið Stef- áni ómeðvitað tákn fyrir líðan hans hverju sinni, uppruna hans og liðna æsku, þegar náttúran var mikilfeng- legri, sauðir vænni og hestar betri en nokkurn tímann fyrr eða síðar í Íslandssögunni,“ segir Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur í grein sem hann ritaði um listmálarann og afreksmanninn Stefán Jónsson frá Möðrudal. Einatt málaði Stefán myndir af Herðubreið, sem blasir við frá Möðrudal. Stefán kallaði sig Stórval. Munnmælasögur hafa þegar gert Stórval nánast goðsagnakennd- an. Stefán var þrekmaður mikill og varð frægur af því að hafa grafið sig í fönn í mörg dægur til að sitja af sér illviðri. Hann bjargaði sér frá því að sofna og vakna aldrei aftur með því að syngja „Ó, blessuð vertu sumar- sól“ með hárri raust á meðan bylur- inn geisaði. Fjallið Herðubreið var valið þjóð- arfjall Íslendinga í kosningu sem fram fór árið 2003. Hún hefur geng- ið undir gælunafninu „drottning ís- lenskra fjalla“ og ófáir hafa spreytt sig í því að klífa fjallið. Herðubreið er 1.682 metra hátt móbergsfjall í Ódáðahrauni, norðan Vatnajökuls. Fjallið myndaðist við eldgos undir jökli. Gosið hefur að lokum náð upp úr jöklinum, því að á toppnum má sjá hraunlög. Að klífa Herðubreið er heiðarlegt dagsverk. Fjallið er nokkuð bratt og skriðurnar eru lausar. Gönguleið- in er greinileg og vegslóði liggur fast upp að fjallsrótunum þar sem lagt er á brattann. Í góðu skyggni er útsýnið frá toppi Herðubreiðar mikilfenglegt. Til suðurs gefur að líta Vatnajökul með Kverkfjöllum, Dyngjujökli og flæðunum þar sem Jökulsá á Fjöllum streymir undan jöklinum yfir hraun og sanda. Til austurs gefur að líta Snæfell, sem er ívið hærra móbergs- og líparítfjall. Snæfell er hæsta fjall landsins utan jökla. sigtyggur@dv.is Þjóðarfjallið Herðubreið hefur orðið mörgum að yrkisefni: Herðubreið Þjóðarfjall íslendinga hefur orðið bæði málurum og skáldum að yrkisefni. Hin hliðin Þegar gengið er á Herðubreið sést fjallið frá öðru sjónarhorni. Á toppnum göngugarpar tjölduðu við fjallsræturnar að kvöldi, gengu á fjallið í bítið daginn eftir og gengu svo til náða í kverkfjöllum. Á Vesturöræfum í grennd við Snæfell er kjörlendi hreindýra. Snæfell er í baksýn. Óbeisluð orka kringilsáin æðir í áttina að jökulsá, þar sem nú er Hálslón. dv-mYndir SigTrYggur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.