Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2008, Page 60
miðvikudagur 25. júní 200860 FERÐIR DV
ir því að varpið er ekki hafið. Gaml-
ar vinnuvélar, brúnar og ryðgaðar
liggja hálfar í grasinu. Vegarspottinn
hverfur og vörður vísa okkur leið. Við
göngum yfir læk, yfir mýri og upp á
hól. Dalurinn blasir við mér í allri
sinni dýrð. Hundurinn baðar sig í
lækjarsprænum. Ég þakka guði fyrir
að vera ekki í Reykjavík.
Reyndar á Guð eftir að minna á
sig. Daginn eftir vaknar Claus við
vondan draum. Við morgunverkin
fær hann sár á höndina. Þegar hann
lítur á sárið sér hann kross. Hann
sýnir mér sárið. Það er ekki um að
villast. Þetta er kross. Svo fær hann
tölvupóst frá Þýskalandi. Afi hans
liggur á dánarbeðinum. Hann er
hundrað og tveggja ára. Við kvöld-
matarborðið segist Claus þess viss
að krossinn sé teikn.
Þetta er Júróvisjónlag
Það er Júróvisjónpartí á Hótel
Djúpavík. Ég og Ási erum þess full-
vissir að íslenska lagið komist áfram.
Erum búnir að skeggræða keppn-
ina og fylgdumst af athygli með fyrri
undankeppninni. Við vitum að ís-
lenski riðillinn er mun erfiðari og
sjálf Svíagrýlan er næst á svið eftir ís-
lenska hópnum.
Kvöldið nálgast og Héðinn, son-
ur Ásu og Evu, hringir. Hann er á
Ísafirði og spyr hvort vanti eitthvað
í búið. Ási heldur nú það. „Snakk og
ídýfu fyrir tólf manns,“ segir hann og
ég og Claus horfum á hvor annan.
Við erum bara sex á hótelinu en það
kemur ekki að sök. Það er Júróvisjón-
kvöld og öllu tjaldað til.
Eins og í öllum Júróvisjónpartí-
um er veðjað um hvaða lög komast
áfram. Þegar úrslitin eru tilkynnt
kemur í ljós að við erum með sjö af
tíu þjóðum rétt. Óg Ási á trúlega spá
kvöldsins því hann vissi allan tím-
an að sjóræningjalagið frá Lettlandi
væri öruggt í úrslit.
Hey, hey, hey, we say, ho, ho, ho.
Meira um Sigur Rós
Vikan líður. Ástralskur ferðalang-
ur spyr okkur ráða. Hann ræktar
ávexti í heimalandi sínu og langar til
að hefja innflutning til Íslands. Tveir
hollenskir puttaferðalangar ílengj-
ast og þegar við heyrum í jeppa fyrir
utan þjóta allir út til að stoppa hann.
Þau skilja við okkur kát og glöð en
ég hugsa með sjálfum mér að frekar
myndi ég hjóla en vera alltaf upp á
aðra kominn með far.
Svo koma pílagrímarnir. Ég segi
pílagrímar því stöðugur straum-
ur er af fólki til Djúpuvíkur sem vill
sjá verksmiðjuna þar sem Sigur Rós
hélt tónleikana með eigin augum. Á
fimmtudagskvöldi birtast tveir slíkir
pílagrímar frá Brooklyn í New York.
Heita Reif Larsen og Katie Holt; eru
par, kvikmyndagerðarmenn og hann
rithöfundur. Þau eru eingöngu kom-
in til Íslands til að feta í fótspor Sig-
ur Rósar – Reif hvíslar að mér að í
Reykjavík hafi hann séð sjálfan Jónsa
sitja á kaffihúsi!
Morguninn eftir er planaður túr
í verksmiðjuna. Claus er leiðsögu-
maðurinn okkar. Við hittumst í morg-
unkaffinu og ég gæði mér á kaffi og
brauði með bók í hönd. Bókin heit-
ir Grónar götur eftir Knut Hamsun.
Ég hafði valið hana af handahófi úr
bókahillunni á leiðinni í morgun-
kaffið.
Ég stoppa við lýsingar Knuts
Hamsun á dvölinni á elliheimilinu
þangað sem hann var fluttur eftir að
hann var dæmdur til fangelsisvistar
fyrir föðurlandssvik.
„Nú geng ég lengi og rösklega,
þegar ég fer á göngu til þess að hafa
ekkert að kenna sjálfum mér. Ég geri
það fyrir nóttina, til þess að vinna
mér inn svefn. Svefn er betri en mat-
ur, ólíkt betri. [...] Svefninn er hin
óviðjafnanlega vitleysa, að ég finn
peninga í vasa mínum, sem ég hef
aldrei týnt, en hef samt leitað að.“
Og mér verður hugsað til göngu-
ferðanna með Tínu og langra, bjartra
sumarnótta, og allt í einu finn ég fyr-
ir örlitlum sting í hjartastað. Bráðum
mun ég þurfa að kveðja víkina djúpu,
gönguferðirnar og matseldina henn-
ar Evu. En ekki strax. Ég á ennþá
eftir að fara með Claus og Banda-
ríkjamönnunum út í verksmiðju og
helgin bíður með loforð um gott veð-
ur og Júróvisjóngleði.
En hvað með Knut Hamsun?
Hvernig blandast hann inn í þessa
blaðagrein?
Jú, þegar við stöndum á fætur til
„Ætli ég hafi ekki hoRft upp á eitt, tvö...“
hún teluR í huganuM, „...ein Sex heiMili
hveRfa. ef fleiRi hveRfa veRðuR á endanuM
vonlauSt að búa héRna.“
Framhald á
næstu síðu
aðeinS tveiR neM-
enduR eRu við náM í
tRékylliSvík. fólki
fÆkkaR í hReppn-
uM og eva SiguR-
bJöRnSdóttiR hefuR
áhyggJuR. Það veRð-
uR SaMt nóg af fólki
í dJúpuvík í SuMaR.
hótelstjórar Eva Sigurbjörns-
dóttir ásamt Ásbirni Þorgilssyni.
Leitarðu tilbreytingar?
Þráirðu kyrrð?
Viltu sjá stórbrotið landslag?
Hér er það allt saman
Hótel Djúpavík
Símí: 451 4037 - djupavik@snerpa.is - www.djupavik.is
H
ild
ur
H
lín
Jó
ns
dó
tt
ir
/ h
ild
ur
@
dv
.is