Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2008, Side 70
Það hefur vart farið fram hjá
neinum að borgarstjórnarflokkur
sjálfstæðismanna skipti um oddvita
á dögunum. Eftir margra mánaða
þrúgandi og óásættanlega óvissu og
oft og tíðum óvægna meðferð tók
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson loks af
skarið og sagði sig lausan. Því skrefi
var hann vafalaust sjálfur fegnastur.
Þetta var löngu tímabært að margra
mati og nú er að sjá hvort þessi
gjörningur muni leiða borgarstjórn-
arflokkinn úr þeim ógöngum sem
hann hefur verið í í allan vetur.
Við þungum kyndlinum tók
Hanna Birna Kristjánsdóttir. Hún
hlaut annað sætið í prófkjöri fyrir
rúmum tveimur árum og því eðli-
legt og sjálfsagt að hún taki við af
Vilhjálmi. Hönnu Birnu bíður erf-
itt verk. Sjálfstæðismenn í borg-
inni standa á öndinni milli vonar
og ótta um hvort henni takist hið
ómögulega – að vinna aftur traust
þeirra kjósenda sem
studdu flokkinn í síðustu kosning-
um.
En það er á brattann að sækja.
Kjósendur Sjálfstæðisflokkins gera
oft og iðulega meiri kröfur til kjör-
inna fulltrúa sinna heldur en kjós-
endur annarra flokka. Þannig er
ekki nóg með að kjósendur Sjálf-
stæðisflokksins geri eðlilegar kröf-
ur til sinna fulltrúa um að standa
við gefin loforð heldur gera þeir enn
fremur miklar kröfur til þeirra um
festu, áreiðanleika og öryggi í öllum
þeirra störfum. Það á einkum við í
borgarstjórn Reykjavíkur þar sem
Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf
staðið fyrir kjölfestu og stöðugleika.
Því miður hefur mikið vantað
upp á þetta innan borgarstjórnar-
flokksins í vetur. Hver höndin upp
á móti annarri og í flestum málum
virðist einhver borgarfulltrúi hafa
einkaskoðanir sem ganga í berhögg
við stefnu hinna í borg-
arstjórnarflokknum. Á meðan borg-
arbúar hafa það á tilfinningunni að
borgarstjórnarflokkurinn sé ósam-
stiga munu þeir ekki treysta honum
aftur. Þá skiptir sú staðreynd litlu að
þau hafa staðið við flest kosninga-
loforðin, eitt af öðru. Það tekur ein-
faldlega enginn eftir þeim af aug-
ljósum ástæðum.
Brýnasta verkefni Hönnu Birnu
verður því að byggja upp trúverðug-
leika borgarstjórnarflokksins gagn-
vart kjósendum. Það verður ekki gert
með auglýsingaherferðum eða yfir-
lýsingum um að bræðralag og sam-
staða innan borgarstjórnarflokksins
hafi aldrei verið meiri. Það verður
einungis áunnið með því að borgar-
stjórnarflokkurinn sýni að hann geti
starfað í sameiningu inn á við sem
út á við. Enginn innan hópsins
trúi því að hann vegi þyngra
en liðið. Það mun skapa þá
festu og öryggi sem hefur svo sár-
lega vantað og er algjört lykilatriði
fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík.
Þá fyrst munu kjósendur byrja að
treysta borgarstjórnarflokknum aft-
ur.
miðvikudagur 25. júní 200870 Umræða DV
Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
Stjórnarformaður: Hreinn loftsson
framkVæmDaStjóri: Elín ragnarsdóttir
ritStjórar:
jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is
og reynir traustason, rt@dv.is
fulltrÚi ritStjóra:
janus Sigurjónsson, janus@dv.is
fréttaStjóri:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
auglýSingaStjóri:
ásmundur Helgason, asi@birtingur.is
DrEifingarStjóri:
jóhannes Bachmann, joib@birtingur.is
dv á netinu: dv.is
aðalnúmer: 512 7000, ritstjórn: 512 7010,
áskriftarsími: 512 7080, auglýsingar: 512 70 40.
Umbrot: dv. Prentvinnsla: landsprent. Dreifing: árvakur.
dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
SameINUÐ SIGRUm VÉR
Jón TrausTi reynisson riTsTJóri skrifar. Íslenska þjóðin glímir við vantraust á alþjóðavettvangi.
Traust á tímum kreppunnar
Leiðari
Fyrirtæki mæta mótbyr með misjöfnum hætti. Sum þeirra ákveða að fórna trausti fyrir skamm-vinnan ágóða. Í frétt DV í gær mátti lesa um þá ákvörðun Heimsferða að smyrja eldsneytis-
hækkunum, gengisbreytingum og fleiru ofan á auglýst
tilboðsverð á sólarlandaferðum. Þeir sem ákveða að
taka tilboðsferðum Heimsferða borga jafnvel 50 pró-
sent hærra verð heldur en auglýst var.
Aðrar ferðaskrifstofur, svo sem Úrval Útsýn, Sumar-
ferðir og Plúsferðir, gera þetta ekki. Þær klína ekki
hækkandi kostnaði í bakið á viðskiptavinum sínum.
Eins og forstjóri Úrvals Útsýnar nefndi leggur hann ekki sérstakt
flugfreyjugjald á farmiða ef flugfreyjur fá launahækkun. Fleiri
dæmi eru um að fyrirtæki taki á sig hækkanir áður en þeim er velt
beint yfir á neytendur. Þannig reið IKEA á vaðið í vetur og lýsti því
yfir að fyrirtækið stæði fast á auglýstu verði.
Þegar kreppir að reynir hver að bjarga sér. Nú reynir fyrst og fremst
á traust. Við höfum og munum sjá hverjir ákveða að velta byrðinni
yfir á almenning og hverjir hlaupa undir bagga.
Íslenska þjóðin glímir við vantraust á alþjóðavettvangi. Flótti fjár-
festa frá krónunni og hátt skuldatryggingarálag er til marks um
það. Ástæðan virðist fyrst og fremst vera sú að sérfræðingar vita
hversu stórskuldug þjóðin er. Þjóðin gerði mistök með þessari
skuldsetningu og sýpur nú seyðið af því. Þetta gerðist
ekki þannig að almenningur hafi skyndilega ákveðið
að taka upp óhóflega lífshætti og eytt um efni fram,
heldur var fjármagni dælt inn í landið, að því er virð-
ist meðal annars vegna þeirra háu vaxta sem útlend-
ingum buðust hér. Enginn hefur viljað taka ábyrgð á
þeim mistökum sem hér hafa orðið, hvorki yfirvöld
né bankarnir. Án ábyrgðar verður ekki traust.
Svartsýni þjóðarinnar eykst stöðugt, samkvæmt
væntingavísitölu Gallups. Þjóðin treystir því ekki að
vörn verði snúið í sókn. Ráðamenn reyna hvað þeir
geta að auka traust á efnahagslífinu, með jákvæðum yfirlýsingum
um það og krónuna. Yfirlýsingar eru í sjálfu sér ekki neitt, ef þær
valda ekki viðbrögðum hjá fólki. Og þær valda engum viðbrögð-
um hjá fólki ef það treystir þeim ekki.
Kannski það sé að koma í bakið á ráðamönnum að hafa frá ár-
inu 2006 ítrekað þverskallast við að viðurkenna vanda efnahags-
lífsins, stungið höfðinu í sandinn og loks kennt erlendum óvinum
og síðan alheiminum um ófarirnar. Öll þessi viðbrögð hafa reynst
gagnslaus og eftir stendur að yfirlýsingar leiðtoganna hrökkva af
almenningi og viðskiptalífinu eins og vatn af gæs. Til að geta leyst
vandann verða leiðtogarnir að endurheimta traustið með því að
horfast beint í augu við hann og axla ábyrgð.
DómstóLL götunnar
Hvað finnst þér um eyðileggingu veggjakrots á einkaeign?
„mér finnst það rangt ef þetta er í
enkaeign og ef eigandi hússins vill að
þetta sé þarna. Þetta getur flokkast
undir list og það á ekki að skemma
svona nema með samþykki eiganda.“
Sebastían Alexandersson,
38 ára verkefnastjóri
„mér finnst það ömurlegt, það er réttur
hvers manns að krota eins og honum
sýnist á sína eigin byggingu.“
Atli Viðar Þorsteinsson,
24 ára verktaki
„mér finnst það ömurlega leiðinlegt að
það skuli vera skemmt, það á ekki að
mála yfir flottar myndir.“
Hafdís Inga Karlsdóttir,
43 ára mötuneytisstarfsmaður
„Ég er eiginlega fylgjandi því að mála
yfir það. fordæmið sem það skapar að
skrifa jafnvel á eigin veggi hvetur aðra
unglinga að gera það á sinn hátt.“
Kristján Andrésson,
75 ára eftirlaunaþegi
sanDkorn
n Samsæriskenning er komin
á kreik um fall krónunnar, og
aldrei þessu vant eru bank-
arnir söku-
dólgarnir.
Mörgum
að óvörum
högnuðust
bankarnir
gríðarlega á
fyrsta fjórð-
ungi þessa
árs, þrátt
fyrir hrap á hlutabréfamark-
aði og fall krónunnar. Bank-
arnir voru sagðir hafa grætt á
gengisfallinu. Nú hefur Pétur
Gunnarsson Eyjubloggari
eftir ónafngreindum heimild-
armanni að bankarnir séu að
fella krónuna til að hagnast að
nýju fyrir milliuppgjör þessa
ársfjórðungs, sem miðast við
næsta mánudag.
n Geir H. Haarde forsætisráð-
herra tjáði sig um fall krón-
unnar á málþingi fjárfesta í
Lundúnum
í gærmorg-
un. Ekki
verður sagt
að hann
hafi ver-
ið í þægi-
legri stöðu
í ljósi þess
að íslenski
hlutabréfamarkaðurinn hefur
meira en helmingast að virði
frá því í fyrra og krónan hef-
ur fallið um tæp 50 prósent
frá áramótum. Hann sagði
veikingu krónunnar í kjölfar
stórframkvæmda hafa verið
viðbúna. Nú sé gengið hins
vegar „ýkt“.
n Mörgum íslenskum ferða-
mönnum í Evrópusamband-
inu finnst ýkt að þurfa að
borga 50 prósent meira fyrir
hlutina nú en í síðasta sum-
arfríi. Týpískur bjór í spænsk-
um ferðamannabæ kostar
nú 400 krónur í staðinn fyrir
240 krónur. Algengt verð á
einstaklingspitsu er 10 evrur,
en nú er það ekki 800 krónur,
eins og í fyrrasumar, held-
ur 1.300 krónur. Það jafnast
á við góðan mat á kaffihúsi í
Reykjavík og er töluvert hærra
verð en Hrói höttur hefur inn-
heimt fyrir 16 tommu pitsu á
tilboði síðustu daga.
n Einn íslenskra ferðamanna
sem liðið hefur fyrir lækkun
krónunnar er sjónvarpsmað-
urinn Eg-
ill Helga-
son, sem
sendi frá
sér hjálp-
arbeiðni
á bloggi á
dögunum.
Síðan þá
hefur krón-
an lækkað töluvert meira. Nú
hefur Egill brugðið á það ráð
að dveljast á grískri smáeyju
við lítil lífsgæði. Gárungarnir
segja að silfur Egils hafi á ör-
skotsstund breyst í brons Egils
þar ytra.
FAnney BIrnA
JónSdóttIr
stjórnarmaður í Heimdalli
„Á meðan borgarbúar
hafa það á tilfinning-
unni að borgarstjórn-
arflokkurinn sé ósam-
stiga munu
þeir ekki treysta hon-
um aftur.“