Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2008, Blaðsíða 71
DV Ættfræði miðvikudagur 25. júní 2008 71
40 ára í dagTil
hamingju
með
afmælið
30 ára afmæli
n malgorzata Czachorowska Laugarnesvegi 37, Reykjavík
n Petra nicola deutrich Selparti, Selfoss
n Yousef ibrahim Hvassaleiti 46, Reykjavík
n Friðrik Þorbjarnarson Lyngmóum 2, Garðabær
n Sturla Halldórsson Faxaskjóli 16, Reykjavík
n Sigurður Hrafn kristjánsson Barðastöðum 23, Reykjavík
n Sigurbjörg Felixdóttir Furugrund 76, Kópavogur
n arnar már Símonarson Grófarsmára 10, Kópavogur
40 ára afmæli
n nhat duy nguyen Tómasarhaga 22, Reykjavík
n jan Winclawski Egilsbraut 1, Neskaupstaður
n víðir jónsson Vaðlatúni 28, Akureyri
n Björn axelsson Rimasíðu 27c, Akureyri
n Þórður geir jónasson Hofteigi 8, Reykjavík
n Steinn Helgason Laufvangi 1, Hafnarfjörður
n kristín Sigurðardóttir Karlagötu 24, Reykjavík
n anna guðrún Sigurjónsdóttir Eyjabakka 1, Reykjavík
n Sigríður Ágústsdóttir Morthens Hrauntungu 69,
Kópavogur
n ragnar Árnason Hvassaleiti 75, Reykjavík
n Sverrir arnar Baldursson Grundartanga 13, Mosfellsbær
n Sigurður g valdimarsson Sogavegi 54, Reykjavík
n Brynja reynisdóttir grænuási 4, Raufarhöfn
n Sölvi rafn rafnsson Hólagötu 43, Njarðvík
n Þóra Björg gylfadóttir Bústaðavegi 53, Reykjavík
50 ára afmæli
n Henryk Paciejewski Hraunbæ 40, Reykjavík
n Zlatko novak Fjólugötu 2, Akureyri
n drago maglic Hvammseyri, Egilsstaðir
n Piotr Slizewski Kleppsvegi 56, Reykjavík
n viðar Elliðason Löngubrekku 6, Kópavogur
n Helgi Halldórsson Snælandi 8, Reykjavík
n reynir Sigurðsson Eyrarvegi 7, Akureyri
n Ólafur ingi Óskarsson Brekkutanga 17, Mosfellsbær
n Pétur Þorleifsson Álfheimum 42, Reykjavík
n magnús garðarsson Gvendargeisla 12, Reykjavík
n jakob ragnarsson Klapparhlíð 34, Mosfellsbær
n Birgir Snorrason klettagerði 1, Akureyri
n jóna Brynja Tómasdóttir Eiðistorgi 1, Seltjarnarnes
n valdimar guðmundsson Brimhólabraut 30, Vestmanna-
eyjar
n Hallgerður a jóhannesdóttir Hásölum 3, Kópavogur
n jóna Sigurveig Ágústsdóttir Hallfreðarstöðum 2,
Egilsstaðir
60 ára afmæli
n kristín Ásgeirsdóttir Sævargörðum 1, Seltjarnarnes
n gunnar Þór geirsson Skógarseli 7, Reykjavík
n arnar Sveinsson Frakkastíg 12a, Reykjavík
n guðrún Sigríður Egilsdóttir Lindasmára 11, Kópavogur
n Sigurður guðjónsson Borg, Höfn
n Páll Sigurðarson Kjarnagötu 12, Akureyri
n anna valdimarsdóttir Lambastaðabraut 6, Seltjarnarnes
n Helgi Friðþjófsson Asparfelli 4, Reykjavík
n reynir adolfsson Kópavogsbraut 4, Kópavogur
n Thelma k jóhannesdóttir Vættaborgum 6, Reykjavík
70 ára afmæli
n viðar Ottesen Bláhömrum 4, Reykjavík
n gunnar Sigmarsson Leirubakka 1, Seyðisfjörður
n guðmundur arason Fjarðarási 1, Reykjavík
n Ásdís Halldórsdóttir Berserkseyri, Grundarfjörður
n Finnur gærdbo Ólafsbraut 56, Ólafsvík
75 ára afmæli
n anna gísladóttir Brúnalandi 32, Reykjavík
n kári Tyrfingsson Snorrabraut 56, Reykjavík
n jón Bergsson Ketilsstöðum, Egilsstaðir
n kolfinna Árnadóttir Vallholtsvegi 17, Húsavík
n rannveig Haraldsdóttir Fögrubrekku 27, Kópavogur
80 ára afmæli
n ingiríður Helga Leifsdóttir Grandavegi 47, Reykjavík
n Sigurjón richter Gnoðarvogi 80, Reykjavík
n Benedikt jasonarson Kambaseli 29, Reykjavík
85 ára afmæli
n Fjóla H Halldórsdóttirn Skaftahlíð 4, Reykjavík
gunnlaugur guðmundsson Ársölum 1, Kópavogur
anna L Hertervig Hvanneyrarbraut 58, Siglufjörður
90 ára afmæli
n Sigríður Skúladóttir Austurbrún 6, Reykjavík
n Hrefna Hermannsdóttir Hlíðarvegi 45, Siglufjörður
n Ása guðmundsdóttir Dalbraut 20, Reykjavík
SigurSteinn D. gíSlaSon
aðSTOðarÞjÁLFari kr í mEiSTaraFLOkki karLa í knaTTSPYrnu
ÁstrÁður Magnússon
FramkvæmdaSTjÓri BLikkSmiðjunnar auðÁSS EHF.
Ástráður fæddist í Reykjavík en ólst upp
í Kópavogi. Hann lauk gagnfræðaprófi frá
Gagnfræðaskóla verknáms 1965, prófi frá
Loftskeytaskóla Reykjavíkur 1967, lauk sveins-
prófi í blikksmíði við Blikksmiðjuna Vog 1973
og öðlaðist meistararéttindi 1977.
Ástráður starfaði í Blikksmiðju Austurbæj-
ar og í Blikkveri. Hann stofnaði blikksmiðjuna
AuðÁs ehf. í Kópavogi 1988 og hefur starfrækt
hana síðan.
Ástráður sat í stjórn Félags blikksmiða
1975-76, var varaformaður félagsins, sat í
stjórn Lagnafélags Íslands og var ritari og síð-
an formaður Lionsklúbbsins Munins í Kópa-
vogi.
Fjölskylda
Ástráður kvæntist 24.6. 1973 Jónínu Þor-
björgu Hallgrímsdóttur, f. 1.1. 1952, húsmóð-
ur. Hún er dóttir Hallgríms Péturssonar og
Fannýjar Sigríðar Þorbergsdóttur sem bæði
eru látin.
Börn Ástráðs og Jónínu Þorbjargar eru
Fanný Björk Ástráðsdóttir, f. 3.5. 1973, sjúkra-
liði, búsett í Hveragerði en maður hennar er
Þór Hreinsson þjóðfræðingur og eru börn
þeirra Aþena Íris og Ástráður Hreinn; Íris Ósk
Ástráðsdóttir, f. 31.12. 1977, sjúkraliði í Reykja-
vík, en maður hennar er Björgvin Arnarsson
húsasmíððameistari og eru börn þeirra Hörð-
ur Breki og Jökull Logi; Hallgrímur Pétur Ást-
ráðsson, f. 1.8. 1982, nemi.
Hálfsystir Ástráðs, sammæðra: Guðrún
Ingvarsdóttir, f. 23.6. 1931, d. 2.11. 1992.
Alsystkini Ástráðs eru Kristinn V. Magn-
ússon, f. 20.3. 1940, fyrrv. framkvæmdastjóri
á Húsavík; Guðmar Magnússon, f. 14.5. 1941,
fyrrv. verslunarmaður, búsettur í Garðabæ;
Sigurbjörg Magnúsdóttir, f. 22.4. 1943, bú-
sett í Kópavogi; Ragnar Snorri Magnússon, f.
27.6. 1944, skrifstofumaður í Kópavogi; Loft-
ur Magnússon, f. 10.10. 1945, fyrrv. skólastjóri,
búsettur í Hafnarfirði.
Foreldrar Ástráðs: Magnús Loftsson, f. 15.7.
1908, d. 31.10. 1988, bifreiðarstjóri í Kópavogi,
og Jónína S. Ásbjörnsdóttir, f. 24.8. 1910, d.
7.10. 1983, húsmóðir.
sigurbjörg Felixdóttir er þrítug í dag:
Betlaði peninga í afmælisgjöf
„Ég ætla bara að hafa gaman á afmælisdag-
inn. Það verður bara léttur dagur í vinnunni og
svo borða ég eitthvað gott með fjölskyldunni,“
segir Sigurbjörg Felixdóttir, afmælisbarn dags-
ins, sem er þrítug í dag. Hún segir ekki ákveðið
hvað verði borðað eða hvar. Þó sé ekki ólíklegt
að hún fari með manni sínum og syni á Red
Chili þar sem mágkona hennar vinnur.
Veisla til að fagna tímamótunum var hald-
in síðasta laugardagskvöld. „Þetta var bara
haldið heima hjá mömmu. Ég bauð nánustu
vinum og fjölskyldu, svona tuttugu og fimm
manns, og það var djammað fram á rauða-
nótt,“ segir Sigurbjörg hlæjandi. Og afmæl-
isveislum fylgja ósjaldan gjafir. „Ég fékk smá
pening því við fjölskyldan erum að fara til
Spánar í júlí. Evran er svo há að maður var
farinn að betla peninga í afmælisgjöf,“ seg-
ir Sigurbjörg. Og hlær aftur. „Svo fékk ég líka
föt, skartgripi og snyrtivörur. Hrukkubana og
svoleiðis vesen.“ Á Spáni hyggst litla fjölskyld-
an dveljast í sumarhúsi í Torrivieja í tvær vik-
ur. Sigurbjörg er bjartsýn á að fertugsaldurinn
eigi eftir að reynast henni vel. „Já, já, er ekki
sagt að fertugsaldurinn sé nýi tvítugsaldur-
inn?“ spyr hún. Og hlær.
Sigursteinn fæddist á Akranesi og ólst
þar upp. Hann var í Barnaskóla Akraness og
stundaði nám við Fjölbrautaskóla Vesturlands
á Akranesi.
Sigursteinn var deildarstjóri fyrir UPS –
Hraðsendingar frá 2000 en hóf síðan störf við
Vöruhótelið hjá Eimskip og hefur verið verk-
stjóri þar frá 2005.
Sigursteinn byrjarði ungur að æfa knatt-
spyrnu. Hann æfði og keppti með yngri flokk-
um ÍA upp í 2. flokk og lék fyrsta ár sitt í 2.
flokki með ÍA. Hann flutti síðan til Reykjavíkur
haustið 1985, lék með 2. flokki KR 1986 og 1987
og lék sína fyrstu meistaraflokksleiki með KR í
lok tímabilsins 1987. Hann flutti þá aftur upp
á Skaga og lék með meistaraflokki ÍA 1988-
1998. Hann lék síðan aftur með meistaraflokki
KR frá 1999-2003. Þá spilaði hann með Stoke í
hálft ár, 1999-2000. Hann lék síðan eitt tímabil
með meistaraflokki Víkings 2004 og var jafn-
framt aðstoðarþjálfari liðsins.
Sigursteinn var ráðinn þjálfari 2. flokks
karla hjá KR 2005, tók við þjálfun meistara-
flokksliðsins á seinni hluta tímbilsins 2005,
varð síðan aðstoðarþjálfari meistaraflokks KR
og hefur verið það síðustu þrjú keppnistíma-
bil.
Sigursteinn er sigursælasti knattspyrnu-
maður í meistaraflokki karla hér á landi í
meira en sjötíu ár. Hann varð Íslandsmeistari
með ÍA 1992, 1993, 1994, 1995 og 1996, og varð
bikarmeistari með ÍA 1993 og 1996. Hann varð
Íslandsmeistari með KR 1999, 2000, 2002 og
2003 og bikarmeistari 1999.
Sigursteinn var valinn besti leikmaður úr-
valdsdeildarinnar 1994. Hann hefur leikið 22
A-landsleiki.
Fjölskylda
Sigursteinn kvæntist 1994 Önnu Elínu Dan-
íelsdóttur, f. 9.1. 1972, bókhaldara hjá Tóna-
stöðinni. Hún er dóttir Daniel Oven O‘Neil
og Elínbjargar Magnúsdóttur frá Bergsholti í
Melasveit.
Börn Sigursteins og Önnu Elínar eru Magn-
ús Sveinn, f. 30.7. 1999; Unnur Elín, f. 7.11.
2004; Teitur Leó, f. 24.4. 2006.
Systkini Sigursteins eru Halldóra Lilja
Gunnarsdóttir, f. 1956, d. 2006, húsmóðir á
Seltjarnarnesi; Örn Arnar Gunnarsson, f. 1959,
sjómaður í Vestmannaeyjum; Rúnar Gunn-
arsson, f. 1960, starfsmaður við Sementsverk-
smiðjuna á Akranesi; Teitur Gunnarsson, f.
1964, verkstjóri í Vöruhóteli Eimskips.
Foreldrar Sigurteins eru Gísli Víglundsson,
f. 1935, fyrrv. starfsmaður Steypustöðvarinnar
í Reykjavík, og Margrét Teitsdóttir, f. 31.8. 1937,
fyrrv. sjúkraliði á Akranesi og síðar í Reykjavík.
Eiginmaður Margrétar er Guðlaugur Eiríks-
son, f. 1927, fyrrv. leigubílstjóri í Reykjavík.
Ætt
Margrét er systir Sveins Teitssonar, gullald-
arliðsmanns ÍA, föður Árna, meistaraflokks-
manns og landsliðsmanns. Systir Margrétar er
Ester, kona Þórðar Þórðarsonar, gullaldarliðs-
manns ÍA og landsliðsmanns, og móðir Teits
og Ólafs Þórðarsona, meistaraflokksmanna
ÍA, landsliðsmanna og þjálfara, sem og Þórð-
ar, föður meistaraflokksmannanna Þórðar
Þórðarsonar og Stefáns Þórðarsonar. Þá er Est-
er móðir Lilju, móður meistaraflokksmanns-
ins Unnars Arnar Valgeirssonar.
Margrét er dóttir Teits, sjómanns á Akra-
nesi, Benediktssonar, sjómanns á Bjargi á
Akranesi, Teitssonar í Skarðsbúð, Benedikts-
sonar. Móðir Benedikts var Þorbjörg Kristj-
ánsdóttir. Móðir Teits sjómanns var Guðný
Guðlaugsdóttir. Móðir Margrétar er Unnur
Sveinsdóttir í Nýlendu, Ingjaldssonar og Ólaf-
ínu Ásmundsdóttur.
Sigursteinn heldur upp á afmælið með fjöl-
skyldunni.
sigurbjörg Felixdóttir Hélt upp á afmælið um
síðustu helgi. Tveggja vikna sumarhúsadvöl á
Spáni er svo handan við hornið.
60 ára í dag