Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2008, Page 7
DV Fréttir mánudagur 30. júní 2008 7
PÓLSTJÖRNUMENN MEÐ NETPUNGA
Á HRAUNINU
sótt um dagsleyfi, sennilega hátt í tvö
ár. „Þetta er dapur veruleiki og þeir
hafa nokkur ár til þess að velta þessu
fyrir sér,“ segir Helgi. Þetta eigi einnig
við þá sem afpláni dóma í lausagæslu
á Kvíabryggju.
Eitthvað slæmt hefur gerst
Eftir að blaðamaður hafði sam-
band við yfirvöld á Litla-Hrauni var
netaðgangur tekinn af Pólstjörnu-
mönnum. Enn er þó hægt að virða
fyrir sér Myspace-síður þótt snurða
virðist hafa hlaupið á þráðinn. Á
vinalista Marinós Einars á Myspace-
síðunni er að finna nokkra þekkta
einstaklinga úr undirheimunum,
ásamt nokkrum fjölda áhugsamra
unglingsstúlkna. Þar á meðal er Ann-
þór Karlsson, sem hlotið hefur marg-
víslega dóma fyrir ofbeldis- og fíkni-
efnabrot. Hann situr nú inni vegna
aðildar að innflutningi á fíkniefnum,
sem hann er talinn hafa skipulagt
ásamt fleiri.
Aðgangur að flestum þessum vef-
síðum er takmarkaður að því leyti að
sá sem heldur henni úti þarf að sam-
þykkja hvern þann sem skoðar síð-
una. Þegar reynt er að opna vefsíðu
Marinós birtist nú viðvörunarskeyti
þar sem stendur: „Ó, eitthvað
slæmt hefur gerst.“
Einar Jökull Einarsson
hlaut níu og hálfs árs fangels-
isdóm vegna Pólstjörnumáls-
ins. Guðbjarni Traustason
var dæmdur í sjö ára og fimm
mánaða fangelsi og Marinó
Einar í fimm og hálft ár.
berglindb@dv.is, sigtryggur@dv.is.
Pólstjörnusmyglararnir
Marinó Einar Árnason,
Guðbjarni Traustason og
Einar Jökull Einarsson
hafa að undanförnu hald-
ið úti Myspace-vefsíðum
þrátt fyrir blátt bann af
hálfu fangelsisyfirvalda.
Á síðunum má sjá piltana
knúsast og hnykla
vöðvana og svo virðist
sem lífið leiki við þá.
Helgi Gunnlaugsson
segir hamingjuna vera á
yfirborðinu. Margrét
Frímannsdóttir segir
tæknina komna fram úr
stjórnendum fangelsisins
Ltila-Hraun Fangar fá aðeins að komast á
netið til þess að sinna fjarnámi. Pólstjörnumenn
höfðu fengið til sín svokallaðan netpung með
aðgang að þráðlausri 3g tengingu.
Leiddir fyrir dómara aldrei hafði
lögregla fundið jafnmikið magn sterkra
fíkniefna. Pólstjörnumenn fengu þunga
fangelsisdóma, allt að níu og hálft ár.
Unglingsstúlkur
hópast að
unglingsstúlkur
hópast að á
vinalistum
Pólstjörnumanna og
er félagsskapurinn
greinilega eftirsóttur.