Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2008, Side 29
DV Fólkið mánudagur 30. júní 2008 29
Sumar
Smellurinn
Nýtt lag með hljómsveitinni Hjaltalín fór að
heyrast í viðtækjum landsmanna í síðustu viku
en eins og glöggir hlustendur hafa kannski tekið
eftir er hér um að ræða lag af nýjustu plötu Páls
Óskars í útfærslu stórsveitarinnar.
„Lagið heitir Þú komst við hjartað í mér og
Högna söngvara fannst þetta bara svo frábært
lag að hann hafði samband við Palla sem var al-
veg til í að leyfa okkur að útsetja það. Högni út-
setti það svo skömmu fyrir sautjánda júní. Lagið
var svo tekið upp á einum góðum degi í Hljóðrita
í Hafnafirði af Sigurði Guðmundssyni eða Sigga
í Hjálmum. Nokkrum dögum seinna var það svo
komið í útvarpsspilun,“ segir söngkonan Sigríð-
ur Thorlacius í Hjaltalín.
„Útsetningin á laginu er í rauninni alls ekkert
svo fjarri upprunalegu útgáfunni. Þetta er svona
svolítill house-fílingur í laginu en með þessum
klassísku hljóðfærum og stóru útsetningum
verður svolítið annar hljómur í laginu.“
Lítið hefur borið á hinum týpíska sum-
arsmelli fyrir þetta sumarið en staðfest-
ir Sigríður að Þú komst við hjartað í mér sé
sannkallaður sumarsmellur. „Þetta er algjör
sumarsmellur, alveg æðislegur í grillveisl-
urnar.“
Hjaltalín er skipuð tíu liðsmönnum og
oft á tíðum bætast fleiri meðlimir við sveit-
ina. Þessi stóri hópur hélt í stutt og þétt tón-
leikaferðalag í júní sem Sigríður segir að hafi
bara heppnast nokkuð vel. „Þetta var lítill og
samanþjappaður túr. Við héldum tvenna tón-
leika í Danmörku og tvenna í Bretlandi. Þetta
voru auðvitað misjöfn gigg en öll mjög góð.
Aðallega voru þau þó misjöfn fyrir þær sak-
ir að það voru mismargir á tónleikunum. Fá-
mennustu tónleikarnir voru í Brighton en það
er einmitt málið þegar maður er í svona stórri
sveit að það þurfa allavega að vera fleiri gestir
á tónleikunum en eru í hljómsveitinni. Það rétt
slapp þarna í Brighton en þó þetta hafi verið
fáir áhorfendur þá voru þeir góðir og tónleik-
arnir heppnuðust einstaklega vel.“
krista@dv.is
Páll Óskar í Hjaltalínsbúningi:
aðdáendur
röggu
Þjóðin dáist flestöll að Stuð-
mannapíunni fyrrverandi,
Ragnhildi Gísladóttur enda um
frábæra söngkonu að ræða sem
býður af sér einstakan þokka.
Það sem kannski ekki allir vita
er að haldið er úti sérstakri
heimasíðu Ragnhildi til heið-
urs af aðdáendum hennar. Á
heimasíðunni má finna mikinn
og skemmtilegan fróðleik um
söngkonuna, staðreyndir, fréttir
og gamlar blaðagreinar. Boðið
er upp á dálk sem kallast spurt
og svarað en þar geta aðdáend-
ur svarað því hvert uppáhalds-
lag þeirra er með söngkonunni
og fleiri skemmtilegum spurn-
ingum. Áhugasamir geta kíkt á
www.raggagisla.com.
Edda Björgvinsdóttir Er stödd í san diEgo:
Sveitt við Skriftir
á toppnum
í taívan
Svo virðist sem Garðar Thor falli
vel í kramið hjá asísku kvenfólki því
fyrri plata hans, Garðar Thor, selst
eins og heitar lummur í Taívan og
trónir á toppi klassíska listans. Þetta
kemur fram á heimasíðu kappans
www.cortes.is en platan kom út fyr-
ir mánuði.
Í dag kemur nýja platan hans, When
You Say You Love Me, út í Bretlandi.
Platan hefur þegar fengið góða
dóma ytra og hægt er að hlusta á
sex lög af plötunni á myspace-síðu
kappans: www.myspace.com/offici-
alcortes. Fyrir þá sem vilja frekar sjá
Garðar en heyra þá er líka hægt að
sjá myndband við titillag plötunnar.
Lítið hefur borið á hinum
fullkomna sumarsmelli
fyrir þetta sumarið. nú
hefur hljómsveitin Hjalta-
lín hins vegar tekið sig til
og sett lagið Þú komst við
hjartað í mér, sem kom út á
nýjustu plötu Páls Óskars,
í nýjan búning. Lagið er
sannkallaður sumarsmell-
ur og segir söngkonan
Sigríður Hjaltalín að það
sé frábært í grillveislurnar.
Edda Björgvinsdóttir, leikkona og leik-
stjóri, situr ekki auðum höndum lengi.
„Ég sit hérna sveitt við tölvuna og reyni
að skipta mér milli þriggja verkefna,“ seg-
ir Edda sem stödd er í San Diego, Kali-
forníu. Það má segja að Bandaríkin séu
hennar athvarf til þess að skrifa.
Hún er um þessar að leggja lokahönd á
meistararitgerð sína sem fjallar um húm-
or í stjórnun. Edda hefur lagt stund á nám
við Háskólann á Bifröst og líkar vel. En
margir hafa eflaust fengið Eddu í heim-
sókn í fyrirtækið sitt að tala um einmitt
húmor.
Meistararitgerðin er ekki það eina sem
Edda sinnir þessa dagana. „Ég er að skrifa
handrit fyrir Stundina okkar í samvinnu
við Björgvin Franz Gíslason sem er nýr
umsjónarmaður þáttarins,“ segir Edda og
virðist spennt fyrir því að skrifa fyrir nýjan
áhorfendahóp - yngstu kynslóðina.
Það er alveg á hreinu að Edda einbeit-
ir sér mikið og vel vestanhafs því þegar
hringt er í símann hennar kemur einung-
is talhólf sem segir: „Hæ, þetta er Edda.
Ég svara ekki í símann fyrr en í júlí.“ Edda
er ekki eina manneskjan sem stödd er í
San Diego. Gísli Rúnar Jónsson býr líka
í San Diego sem og Steinunn Ólína Þor-
steinsdóttir og Stefán Karl Stefánsson.
Bjarga sumrinu Stórsveitin Hjaltalín sendi frá
sér sannkallaðan sumarsmell á dögunum.
fundinn
Mikið að gera Edda Björgvinsdóttir hefur í nógu að
snúast þessa dagana. Hún situr sveitt við skriftir á
meistararitgerð sinni og handriti að Stundinni okkar.
Sumarstrákurinn Páll Óskar
Var sáttur við það að Hjaltalín setti
lagið hans í sparibúning fyrir sumarið.