Listin að lifa - 01.12.2004, Qupperneq 6
Þjóðgarðurinn
Snæfellsjökull
Tilgangur þjóðgarða er að vernda náttúru
og sögulegar minjar á ákveðnu svæði.
Þeim er jafnframt setlað að tryggja að allir
hafi tækifeeri til að njóta svæðisins. í heimi
þar sem sífellt er gengið nær náttúrunni
eykst mikilvægi þjóðgarða og annarra
verndaðra svæða.
Eysteinsdalur er fallegur dalur norðan við Snæfellsjökul. í
dalnum eru ijölbreytileg fjöll, gil og hvammar. Margar skemmti-
legar gönguleiðir eru í dalnum svo sem að Klukkufossi, Blágili
og á Sjónarhól.
Landsvæðið vestast á Snæfellsnesi er
oft nefnt Undir Jökli. Heillandi nátt-
úra og merkar sögulegar minjar urðu
til þess að þar var Þjóðgarðurinn Snæ-
fellsjökull stofnaður 28. júní árið 2001 og
er hann yngsti þjóðgarður Islands.
Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull er fyrsti
þjóðgarður á Islandi sem nær í sjó fram.
Sérstaða þjóðgarðsins felst í nálægðinni
við sjóinn og samspili mannlifs og náttúru.
Allt fram undir lok 19. aldar var fjölmenn
byggð á utanverðu Snæfellsnesi, einkum
á þeim árstíma þegar vermenn voru
þar við veiðar, og víða
má sjá minjar um veru
mannanna. Þjóðgarðurinn
er einnig ævintýraheimur
fyrir þá sem áhuga hafa á
jarðfræði. Snæfellsjökull er
virk eldkeila sem gaus síð-
ast fyrir tæpum tvö þúsund
árum. Hraun eru áberandi
í landslaginu og víða má
finna fallegar hraunmynd-
anir. Purkhólahraun er t.d.
talið eitt hellaauðugasta
hraun landsins. Aðstaða
til fuglaskoðunar er víða
mjög góð, iðandi fuglalíf
er bæði í sjávarhömrum
og á láglendi. Gróðurinn
er ekki mjög áberandi
við fyrstu sýn en er afar
fjölbreytilegur og forvitni-
legur, allt frá jökli fram í
sjó og er svæðið rómað
sem gott berjaland. Ýmsar
skemmtilegar sögur og sagnir tengjast
landinu undir Jökli og eftir því sem sumir
segja er gott að sækja sér orku til Snæ-
fellsjökuls. Svæðið hefur verið skáldum og
listamönnum innblástur og er enn.
Aðalskrifstofa þjóðgarðsins er á
Hellissandi, í húsnæði Islandspósts að
Klettsbúð 7, en ætlunin er að á Hellissandi
rísi þjóðgarðsmiðstöð. Þar verður vinnu-
aðstaða fyrir starfsmenn þjóðgarðsins,
upplýsingamiðstöð fyrir ferðafólk og
gestastofa.
Á Öndverðarnesi er forn brunnur, Fálki, og
rústir eftir byggð fyrri tima. I fjörunni má sjá
för eftir kili bátanna þar sem þeir voru dregnir
á land.
Símanúmer þjóðgarðsins er 436 6860 og
netfang yfir sumarið er
snaefellsjokull@ust.is og á veturna
gudbjorg@ust.is.
Heimasíða er hjá www.ust.is
Dritvík og Djúpalónssandur eru meðal þekktari staða innan þjóð-
garðsins. Dritvík var frá þvi um miðja 16. öld fram á miðja þá
nítjándu stærsta og fengsælasta vorútver landsins og þaðan reru
oft 40 til 60 skip með 200 til 600 vermönnum. Tíu þurrabúðir
stóðu í víkinni þegar flest var. Leifar af fiskreitum eru upp um
hraunið. Ekkert neysluvatn var í Dritvík og var það sótt í lónin
á Djúpalónssandi. Unnið hefur verið að því að bæta stíga niður á
Djúpalónssand og yfir í Dritvík. Ferðamálaráð hefur íátið reisa
salerni við Djúpalónssand og ætlar að leggja varanlegan göngustig
upp á útsýnishæð við sandinn.