Listin að lifa - 01.12.2004, Page 13
Jóhanna litla
eftir Jóhann Jónsson
Bliknuð á beði sínum
hún beið í hljóðri þrá,
og ókenndri eftirvænting
á unga svipinn brá.
Hún fann það ósjálfrátt á sér
að álengdar var hann á leið
vegfarinn víða kunni,
vinurinn sem hún beið.
Gráttu ekki, góða mamma,
gráttu ekki, pabbi minn,
því englarnir ætla að vernda
augasteininn þinn.
Jesús sagði það sjálfur,
ég sá hann í draumi í nótt,
að liðinni lítilli stundu
líklega verð ég sótt.
Hún vaggaði í Ijúfri leiðslu,
þá leið hún um húmsins sæ
og fjær út á faðmvítt hafið
bar fleyið í himneskum blæ.
Hún fann að í hönd sér var haldið
af hvítvængja Ijósdísum tveim:
Systurnar brostu þar báðar
og buðu’ hana velkomna heim.
Þrjú af sex kvaeðiserindum.
Jóhann Jónsson.
Aðalsteina talar um mikilvægi réttrar
söguritunar. Hún er afar sár yfir rangfærslu
í ævisögu Þorbjargar Guðmundsdóttur
ljósmóður, Sól af lofti líður. „Þar er sagt
að Kristján í Koti, seinni maður móður
Jóhanns, hafi brennt bréfin frá Jóhanni.
I vor komu systkinabörn Jóhanns hingað
og sögðu: „Þetta er ekki rétt! Bréfin fóru í
kistuna hennar ömmu, þau voru það dýr-
mætasta sem hún tók með sér.“
„Þetta voru stórfréttir fyrir okkur,“
segir Aðalsteina. Halldór lýsir móður hans
þannig: „Þetta var ákaflega pasturslítil
kona sem sat við lítinn glugga og lét lífið
fara fram hjá sér að vild, þegjandi.“
Halldór heimsótti Jóhann síðast er
hann lá fyrir dauðanum, sat við rúmstokk
hans heilan dag og langt frarn á nótt „og
hann sagði mér stórfeinglegt skáldverk
sem hann hafði fullsamið í huganum;
það var um íslenskan saungvara, sem
saung fyrir allan heiminn, líf hans, stríð
og heimkomu. Hefði hraðritari setið við
rúmstokkinn og skrifað upp hvert orð
sem hann hvíslaði væru íslenskar bók-
mentir nú snildarverki ríkari." H.K.L.
Jóhanni auðnaðist ekki að snúa aftur
heim til íslands. Hann lést í Þýskalandi.
Unnusta hans, Elísabeth Göhlsdorf, kom
með duft hans til Olafsvíkur og afhenti
aldraðri móður hans. Líkræða var haldin
yfir duftinu sem var jarðsett í Ólafsvíkur-
kirkjugarði 2. september 1935.
„Jóhann var einn af merkustu Ólafs-
vikingum. Óskadraumur minn er að
settur verði upp minnisvarði um hann hér
í Ólafsvík," segir Aðalsteina. Vonandi að
hennar mikla vinna beri þann ávöxt.
O.Sv.B.
Vinalegt hótel með persónulegri þjónustu
Hótel Tangi
HafnarbyggÖ 17 sími: 473 1840
690 Vopnafjörður hoteltangiOsimnet.is
Við veitum elli- og örorkulífeyrisþegum
staðgreiðsluafslátt
af verði lyfja og ókeypis heimsendingu
„innan hverfis11 ef óskað er.
Garðs Apótek
Sogavegi 108-108 Reykjavík ■ sími 568 0990
13