Listin að lifa - 01.12.2004, Page 14
Vinafélagið
í Snæfellsbæ
Snæfellsbær stóð fyrir óvanalegu félagi fyrir 22 árum sem
hefur haft margt gott í fór með sér fyrir eldra fólkið þar.
Það var Rauðakrossdeildin í Ólafsvík sem stóð fyrir
stofnun vinafélags eldri borgara 20. janúar 1982 í samvinnu
við tíu félagasamtök. Tilgangurinn var að hafa opið hús einu
sinni í mánuði yfir veturinn.
I fyrstu stjórn voru kosin: Guðrún Alexandersdóttir for-
maður, Jónas Gestsson ritari og Ólafur Kristjánsson gjaldkeri.
Fulltrúi Rauðakrossdeildarinnar, sem er verndari félagsins, var
Gestheiður Stefánsdóttir.
Á fyrsta aðalfundi segir í skýrslu stjórnar: „að stjórnin hafi
kynnt félagið meðal eldri borgara með því að senda öllum
íbúum 60 ára og eldri fréttabréf með lögum félagsins. Þá hefðu
verið haldnar fjórar samkomur sem allar hafi tekist mjög vel.
Ljóst væri að eldri borgarar kynnu vel að meta þetta framtak
félaganna. Stjórnin hefði skrifað Ólafsvíkurhreppi og óskað eftir
framlagi að upphæð kr. 5.000.00 sem hefði verið veitt, auk þess
hefði Ólafsvíkurhreppur greitt húsaleigu vegna samkomuhalds."
Árið 1983 fór hreppsnefnd Ólafsvíkurhrepps þess á leit að
félagið tilnefndi fulltrúa í byggingarnefnd íbúða aldraðra og til
að fara með önnur málefni aldraðra í umdæminu. Tilnefndur var
einn fulltrúi frá Vinafélaginu og annar frá Rauðakrossdeildinni,
auk þriggja fulltrúa Ólafsvíkurhrepps. Nefndin beitti sér fyrir
stofnun félagsmáladeildar aldraðra í Ólafsvíkurkaupstað sem
var skipuð einum fulltrúa bæjarfélagsins, ásamt fulltrúum Rauða-
krossdeildar og Vinafélags eldri borgara.
Árið 1986 var dvalarheimilið Jaðar tekið í notkun sem var
mikill gleðidagur. Vinafélagið hvatti þá aðildarfélögin til að
styðja vel við starf hinnar nýju stofnunar sem þau hafa gert alla
tíð síðan.
Árið 1990 var starfssvæði Rauðakrossdeildarinnar stækkað
og náði þá yfir sveitarfélögin í Ólafsvíkurlæknishéraði, þ.e. Stað-
arsveit, Breiðuvík, Neshrepp utan Ennis og Ólafsvíkurkaupstað.
Við breytinguna urðu tímamót í starfi Vinafélagsins, en þá komu
félög og klúbbar í Neshreppi inn í starfið.
Félagasamtökin á bak við Vinafélagið voru þá orðin miklu
fleiri. Aukinn kraftur færðist í starfsemina sem varð líka fjöl-
breyttari. í byrjun bauð Vinafélagið upp á skemmtanir og sam-
verustundir á heimasvæði, en smám saman var farið að bjóða í
ferðalög, á leiksýningar o.fl. Sveitarfélögin á svæðinu hafa alltaf
stutt vel við félagið.
Með stofnun Félags eldri borgara í Snæfellsbæ árið 2000 var
mikið framfaraspor stigið í félagsstarfinu, en nýja félagið hefur
staðið fyrir vikulegum samverustundum yfir vetrarmánuðina.
Snæfellsbær hefur greitt laun starfsfólks og lagt til húsnæði. Mjög
Stjórn Félags eldri borgara í Snæfellsbæ sendir öllum lesendum blaðsins
bestu jóla- og nýárskveðjur. Talið frá vinstri: Margrét Þorláksdóttir,
Kristín Kristinsdóttir, Bjarni Ólafsson, Metta Jónsdóttir og Guðrún
Tryggvadóttir, formaður félagsins.
gott samstarf hefur tekist með Vinafélaginu og FEB. Nefna má
Nesballið, sameiginlega árlega skemmtun, sem félög eldri borg-
ara á Snæfellsnesi halda til skiptis. Einnig hafa félögin tekið þátt
í árlegri guðsþjónustu á uppstigningardag til skiptis í kirkjunum
í Snæfellsbæ, í góðri samvinnu við sóknarprestana.
Starfið hefur þróast á þessum 22 árum. I vetur liggja fyrir
eftirtalin verkefni: Nesball í lok október, Kúttmagakvöld í janúar,
skemmtikvöld í mars, fyrsta maískemmtun í boði Verkalýðsfé-
lags Snæfellsbæjar og guðsþjónusta á uppstigningardag.
Gaman vœri að vita hvort fleiri slík vinafélög eru starfandi
á landinu.
Föndrið var kveikjan
Guðrún Tryggvadóttir for-
maður segir frá aðdraganda að
stofnun FEB í Snæfellsbæ
Félag eldri borgara í Snæfellsbæ var stofnað 5. apríl 2000.
Stofnfélagar teljast þeir sem greiddu fyrsta árgjaldið. Fyrstu
stjórn félagsins skipuðu Aðalsteinn Jónsson frá Hellissandi
og Ólafsvíkingarnir Ebba Jóhannesdóttir, Gunnar Hjartarson,
Magðalena Kristjánsdóttir og Guðrún Hjartardóttir.
Þegar ég fer að rifja upp aðdraganda félagsins get ég ekki
annað en minnst Kristínar Hansdóttur, eiginkonu Hjörleifs Sig-
urðssonar vegaverkstjóra, en við Kristín vorum með félagsstarf
eldri borgara fyrir Ólafsvík fyrr á árum.
Kristín var einstaklega áhugasöm og dugleg við hvers konar
föndur og fór fljótlega að tala um stofnun eldri borgara félags.
Hún fór að viða að sér ýmsum gögnum, svo sem lögum og hvernig
önnur félög störfuðu, en skyndilegt fráfall manns hennar 1998
varð til þess að hún flutti suður. En hún var búin að sá fræjum
sem þroskuðust. Eftir að Kristín hætti var félagsstarfið í Ólafsvík
og Hellissandi sameinað. Nú er þetta orðið félag Snæfellsbæjar.
Góður byr kom í seglin þegar hjónin Aðalsteinn Jónsson og
Aldís Stefánsdóttir komu inn í starfið. Þá var fyrir alvöru rætt um
stofnun félagsins og þegar sú frétt spurðist út komu Lionsmenn
færandi hendi með 100 þúsund krónur. Þegar búið var að styðja
nýtt félag svo vel fjárhagslega, var ekki aftur snúið.
14