Listin að lifa - 01.12.2004, Qupperneq 24
Sögumiöstööin
í Grundarfirði
í miðbæ Grundarfjarðar blasir við hús sem hýsir Eyrbyggju
- Sögumiðstöð. Húsið, sem skartar nú býsna nútímalegu útliti,
var byggt á sjöunda áratugnum. Þar var áður verslunin Grund
og síðar ýmis starfsemi, en húsið hefur nú hlotið nýtt hlut-
verk sem þungamiðja menningarlifs í Grundarfirði. Eyrbyggja
- Sögumiðstöð er sjálfseignarfélag sem varð til að ffumkvæði
nokkurra einstaklinga sem lagt hafa ómælda elju og trú í verk-
efinið að ótöldum vinnustundunum.
Gengið er inn í svokallaða Gestastofu í húsinu. Þetta er
móttökurými sem sinnir upplýsingagjöf til ferðamanna.
Þarna eru einnig minjagripasala, almenningssími og net-
kaffi og hægt að tylla sér niður með kaffibolla. Á snertiskjá fást
upplýsingar um ferðaþjónustu á Snæfellsnesi. Gestir ýta á landa-
kortið, á þann stað sem þeir vilja vita meira um, hvort heldur
varðar gistingu, veitingar, afþreyingu eða aðra þjónustu. Þannig
Fjölskylda við jólatréð - jólamynd frá 1963.
má „ferðast á puttanum“, vítt og breitt um Nesið, án þess að
færast sjálfur úr stað. Og þannig fæst góður undirbúningur áður
en haldið er í ferðina sjálfa.
Vigdís Finnbogadóttir heimsótti Grundarfjörð í sinni forsetatíð. Hér er
hún með Bæring Cecilssyni, heiðursborgara Grundarfjarðar.
Inn af Gestastofu eru tveir salir, Bæringsstofa og aðalsalur.
Bæringsstofa varð til með arfleifð Bærings Cecilssonar til Grund-
arfjarðar. Bæring var áhugaljósmyndari alla sína tíð, tók myndir
frá árinu 1945, til dauðadags 2002. Jafnframt var hann fyrsti
myndatökumaður Ríkissjónvarpsins á landsbyggðinni og margir
muna sjálfsagt eftir myndum hans. Bæringsstofa var opnuð suma-
rið 2003 og þar er úrvali af myndum Bærings varpað á stórt tjald.
Á einni klukkustund renna fram myndir af mannlífi og stöðum,
aðallega í Grundarfirði.
Margir Grundfirðingar og landsmenn hvaðanæva af landinu
munu þekkja sig og sitt samfélag þegar sýndar eru myndir af
drekkhlöðnum síldarbátum við bryggju, frá skemmtiatriðum á
þorrablóti og af börnum og unglingum á jólaballi. Það virðist ekki
skipta máli hvaðan úr heiminum fólkið kemur. Margir útlend-
ingar hafa orðið algjörlega hugfangnir því að myndir Bærings
opna óvenjulega og persónulega sýn á lífið í litlu samfélagi fyrr
á árum. Undir myndasýningunni hljómar gjarnan söngur grund-
firsku söngsveitarinnar „Sex í sveit“.
Ymsir viðburðir eru í Bæringsstofu auk myndasýninga. í
salnum er fyrirmyndaraðstaða til ráðstefnuhalds og kvikmynda-
sýninga. Þar hafa einnig verið sögustundir og ýmsar uppákomur
sem auðga menningarlífið í bænum.
Sá ffóðleikur sem eldri borgarar búa yfir er í raun mun
verðmætari en fólk almennt gerir sér grein fyrir. Nauðsynlegt
er að hvetja eldri borgara til að skrásetja þætti úr ævi sinni eða
fá aðstoð ffá barnabörnum til að hljóðrita ffásagnir sínar.
Sýningar í aðalsal eru að mótast. í salnum er að finna marg-
víslegan fróðleik um veru franskra sjómanna í hinum gamla
Grundarkaupstað á 19. öld. Vélbáturinn Brana var settur þarna
upp í sögulegu umhverfi síðastliðið vor. Brana var upphaflega
árabátur, en vél var sett í bátinn 1930. Mönnum kemur saman
um að tilkoma bátavélanna hafi verið mikilvægur áfangi á leið
Islendinga í átt til nútímans. Vélbátavæðingin var ein af forsend-
unum fyrir þróun þéttbýlis og samfélagsbreytinga.