Listin að lifa - 01.12.2004, Side 26
Þjónustusvæði
fyrir eldri borgara
í Reykjanesbæ
Fjöldi raðhúsa fyrir eldri borgara er fyrirhugaður á svæðinu. Líklegt eignarhald gæti verið leigu- eða
hlutdeildaríbúðir.
r
Ikjölfar samþykktar heilbrigðisráð-
herra íyrir rekstri hjúkrunarheimilis í
Reykjanesbæ, sem hefjist árið 2007,
hafa bæjaryfirvöld unnið að frekari
þróun þjónustusvæðis sem staðsett yrði á
kjarnasvæði við „lífæðina“ í bænum, á
milli Vallarbrautar og Njarðarbrautar.
Hér er um að ræða fyrstu hugmyndir sem
geta breyst á vinnslutíma en þó liggur
eftirfarandi skýrt fyrir:
Tillaga A - Afstöðumynd
Raðhúsahverfi
Þjónustumiöstöö
Hjúkrunarheimili
mm
Öryggisíbúöir
1 Fjölbýli
í'-.
Gert er ráð íyrir hjúkrunarheimili með 90
einstaklingsíbúðum á tveimur hæðum. Fyrsti
áfangi verður 30 íbúðir.
Gert er ráð fyrir hjúkrunarheimili þar
sem verða 90 einstaklingsíbúðir. Heimilið
verður byggt í áföngum. Árið 2007 verða
30 hjúkrunaríbúðir fyrir einstaklinga
teknar í notkun, samkvæmt samkomulagi
við heilbrigðisráðuneytið.
Samhliða uppbyggingu hjúkrunar-
heimilis er gert ráð fyrir aðstöðu fyrir
dægradvöl, sambýli og þjónustu við alz-
heimersjúklinga.
I þjónustukjarna, sem er byggður sam-
hliða hjúkrunarheimilinu, gefst færi á að
samnýta margvíslega þjónustu hjúkrunar-
heimilisins með annarri þjónustu.
Félags- og þjónustumiðstöð aldraðra
verður byggð sem skapar rýmri sali en nú
bjóðast til félagsstarfs og þjónustu við alla
eldri íbúa í bænum, sem þess óska, ásamt
stjórnunaraðstöðu í félagsþjónustunni, t.d.
til heimaþjónustu.
I næsta nágrenni hjúkrunarheimilis
og þjónustukjarna er gert ráð fyrir svo-
kölluðum „öryggisíbúðum". Hér er um
að ræða 48 íbúðir þar sem t.d. hjón geta
búið ef annað eða bæði þurfa svo mikla
þjónustu að nálgast hjúkrunarvist eða ef
maki er á hjúkrunarheimilinu og hinn vill
vera í góðri nálægð. Innangengt verður
frá þjónustukjarna og hjúkrunarheimili í
öryggisíbúðirnar þannig að auðvelt er að
veita aukna þjónustu.
Á svæðinu er síðan gert ráð fyrir rað-
húsum á einni hæð og 2-3 hæða fjölbýli
sem sérstaklega hentar öldruðum en
fyrirkomulag á eignarhaldi þeirra íbúða
verður ákveðið síðar. Nú er verið að skoða
hvort hægt er að koma fyrir yfirbyggðum
tengingum milli þessara húsa og þjónustu-
miðstöðvarinnar
Til er mikil og góð þekking í landinu
til að skapa hér einstaka aðstöðu. Sú
aðstaða sem landið á Njarðvíkursvæðinu
gefur okkur er einstök að mati fagmanna
og ég finn að þeir hlakka til að gera þetta
svæði með okkur að besta þjónustusvæði
fyrir eldri borgara á landinu.
Verið er að kanna gerð yfirbyggðra gangstíga
á svæðinu.
Gert er ráð fyrir 2-3 hæða fjölbýlishúsum fyrir
aldraða á svæðinu.
Nú er verið að skipa vinnuhópa fag-
fólks til að þróa frekar hugmyndir um
hjúkrunaríbúðirnar, öryggisíbúðir og
félags- og þjónustumiðstöðina. Við erum
einnig í góðu samstarfi við eldri borgara í
Reykjanesbæ um verkefnið.
Ámi Sigfússon
bxjarstjóri