Listin að lifa - 01.12.2004, Qupperneq 29
A tímamótum
- nýr lífsstíll aldraðra
Helgi K. Hjálmsson, varaformaður LEB, sat
námsstefnuna fyrir hönd Landssambandsins
Námsstefna var haldin á vegum Endurmenntunar Háskóla
íslands í samstarfi við Öldrunarfélag íslands 5. nóvember
2004. Fyrirlesarar voru: Anna Helset, félagsfræðingur frá
NOVA (Norsk institut for Oppvekst og Aldring) í Noregi. Hún
nefndi fyrirlestur sinn: „Við lifum tíu árum lengur hér“. Norsk
sveitarfélög og norskir ellilífeyrisþegar á Spáni. Ingibjörg Þór-
hallsdóttir frá félagi húseigenda á Spáni: Framtíðarsýn varðandi
íslenska, eldri borgara á Spáni. Margrét Margeirsdóttir, varafor-
maður FEB Reykjavík, sem ræddi um hlutverk þjónustuhóps
aldraðra. Berglind Magnúsdóttir, öldrunarsálfræðingur, nefndi
erindi sitt „Ungur nemur, gamall temur“ og Sigrún Pétursdóttir,
eldri borgari, sagði frá reynslu sinni af því sem hún kallaði „Nýtt
líf eftir starfslok".
Á námsstefnunni var fjallað um það hvernig bætt heilsa og
fjárhagur hefur valdið breyttum lífsstíl, breytingum sem virtust
óhugsandi fyrir nokkrum árum síðan. Það var fjallað um þessar
lífsstílsbreytingar og hvernig samfélagið styður við aldraða til
þess að njóta þeirra. Kynntar voru niðurstöður rannsókna, sem
gerðar hafa verið um norska eldri borgara, sem kjósa að verja
ævikvöldinu á suðlægum slóðum, þróun sem gætir í síauknum
mæli í nágrannalöndum okkar og einnig hérlendis. Fram kom
að þessi hópur fer stöðugt vaxandi. Ástæður þessa eru fyrst og
fremst einstaklega góð og heilsusamleg veðrátta á Suður-Spáni
og verulega lægri framfærslukostnaður bæði í fæði og húsnæði
- það hagstæður að smánarlegur ellífeyrir dugar þar þokkalega
til framfærslu þótt hann geri það engan veginn hér á Islandi.
Margrét Margeirsdóttir greindi frá hlutverki þjónustuhóps
aldraðra og vil ég benda á grein hennar hér í blaðinu. Eg vil þó
vekja sérstaka athygli á tveim þáttum sem fram komu í erindi
hennar og hneyksluðu mig gríðarlega. Þar á ég við hvernig
sjúkir, aldraðir einstaklingar eru sviftir öllum mannréttindum
við innlögn á hjúkrunarheimili. Þetta er blettur á þjóðfélagi
okkar sem alls ekki á að viðgangast. Að gera þessa einstaklinga
að fjárvana þurfalingum með því að svifta þá fjárræði, án þeirra
samþykkis eða þeirra nánustu, á ekki að eiga sér stað. Einnig er
mjög ámælisvert að aðbúnaði á hjúkrunarheimilum skuli víða
vera ábótavant.
Ráðstefnan í heild var mjög vel skipulögð og vel undirbúin
með góðum fyrirlesurum og mjög góðri aðstöðu. Hafi þær þökk
fyrir, Sigríður Jónsdóttir félagsfræðingur og Lovísa Einarsdóttir
iðjuþjálfi, sem sáu um umsjón og skipulagningu.
Félagsþjónustan
í Reykjavík
LÝÐH E I LSUSTÖÐ
- lifið heil
Höfum flutt verslunina á Skúlagötu 30
Erum að taka niður pantanir i næstu
sendingu afþessum fallegu eikarsettum.
Margar útfærslur af settum og ákæðislitum.
(
öðruvísi húsgagnaverslun
ÞORBJÖRN FISKANES
Allt að 36 mán.
Velkomin i nýja verslun - Skúlagötu 30 • s: 517 3441