Listin að lifa - 01.12.2004, Page 35

Listin að lifa - 01.12.2004, Page 35
Kirkjan á Bjarnarhöfn lætur lítið yfir sér, en vekur sterk hughrif. Nýlega er búið að hlaða fallegan grjótgarð umhverfis kirkjuna. ekki saman og jafnar matinn í maganum. Nú eru Háskóli íslands og háskólar úti um allan heim að rannsaka hákarlinn og athuga hvort hann geti bætt heilsu okkar.“ Hvernig kom til að ferðamenn fóru að bópast til Bjarnarhafnar að skoða hákarl? „Hákarlinn hefur alltaf þótt skrýtin skepna. Jafnvel fyrr á árum þótti það frétt- næmt að pabbi væri að verka þennan und- arlega fisk. Margir komu til að sjá þessa merkilegu skepnu. Pabbi tók á móti fólki. Ég var í mínum búskap og ætlaði mér alls ekki út í þetta, en ferðamenn héldu áfram að koma eftir að pabbi var allur. Ég varð annað hvort að loka hliðinu eða opna það. Núna er Brynjar sonur minn með sauðféð, ég með hákarlinn og ferðamennina. Ann- Hildibrandur sýnir gestum sínum iðulega hákarlinn. Þetta er mikil furðuskepna! ars má segja að öll fjölskyldan sé meira og minna í þessu.“ Hvað er áhugaverðast hjá ferða- mönnum sem koma hingað? „I sumar komu fjölmargir bæði til að sjá staðinn og smakka hákarlinn. Útlendingum finnst sérstaklega spennandi að fá að smakka. Um 1500 eldri borgarar frá Bandaríkj- unum komu hingað í sumar, þeim fannst þetta alveg einstakt eins og mörgum öðrum. Ég hef tekið eftir því að þeir sem þora ekki að fá sér smakk - eru ekki með í umræðunni á eftir. Síðustu tuttugu árin hefur ferðamönnum stöðugt fjölgað sem koma hingað." En þið eruð ekki bara í móttöku ferðamanna? „Nei, við seljum hákarlinn út um allt. Hann fer á Islenskan markað í Leifsstöð, Kolaportið, fiskbúðir og á þorra- blótin,“ segir Hildibrandur Orðspor Hildibrands með hákarlinn hefur borist víðar en á íslensk þorrablót. Hildibrandi finnst oft nóg um útlendu sjónvarpsstöðvarnar sem heimsækja hann. „I sumar kom breska sjónvarpsstöðin BBC hingað, eingöngu til að mynda hákarlinn. Tvær þýskar aðalstöðvar, ein stærsta jap- anska sjónvarpsstöðin, sænska og norska sjónvarpið. Einnig stærsta stöðin frá Póllandi. Ég er endalaust í upptökum svo að maður hlýtur að sjóast í þessu,“ segir Hildibrandur sem segist vera feiminn við alla þessa athygli. A skiltinu við Berserkjaveg segir: Bjarnarhöfn er kirkjustaður frá kristn- itöku, hennar er jyrst getið sem bcend- akirkju árið 1286. Þorleifur lceknir Þorleifsson lét reisa núverandi kirkju 1858-’59, en Þorleifur var kunnur fyrirjjarsýni og skyggnigáfu. Hildibrandur leyfir mér að kíkja inn í litlu bændakirkjuna á túninu. Altaristaflan er mjög gömul í sérstæðum tréramma sem hægt er að loka. Myndin er afar lifandi og byggð á sögunni eftir upprisuna þegar Jesús hrýtur brauðið og augu lærisveinana opnast fyrir því hver situr hjá þeim. Altar- istafla og kirkjumunir vekja sterk hughrif - sjón er sögu ríkari. O.Sv.B. | RÉTTINGAR ehf. Bilaverhstæði G/s/a Hermannssonar Vagnhöfða 12-110 Reykjavík Sími: 587-2330 Fax: 587-9444 Persónulegu jólagjafirnar fœröu hjó okkur. SélHmSelfwsseH Austurvegi 58 800 SeUoss S: 482 2722 Minningarkort Minningar- og styrktarsjóðs hjartasjúklinga LANDSSAMTÖK HJARTASJÚKLINGA Sími 552 5744 Gíró- og kreditkortaþjónusta

x

Listin að lifa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.