Listin að lifa - 01.12.2004, Síða 39
krónur, sem vekur nokkra furðu út frá
heimild TR til greiðslu vasapeninga eins
og áður er getið. Þá kom einnig fram að
27% vistmanna vissu ekki hve mikla pen-
inga þeir hefðu að jafnaði til ráðstöfunar
á mánuði.
Þegar spurt var um hver eða hvað réði
flutningi viðkomandi á hjúkrunarheimilið
kom í ljós að 60% ákváðu það sjálfir, en
40% tóku ekki sjálfir ákvörðun. Oftast
voru það börn viðkomandi eða heilsuleysi
sem réði því að viðkomandi vistaðist á
hjúkrunarheimilinu.
I ljósi könnunarinnar draga höfundar
eftirfarandi ályktanir út frá fyrrgreindum
hugmyndum um sjálfræði.
1. Vistmenn hafa mun minna rými til
daglegra athafna og ákvarðana um nán-
asta umhverfi en fólk hefur á heimilum
sínum.
2. Vistmenn sætta sig við, eiga von á eða
kjósa minna sjálfræði á vistheimilum en
heimilum.
3. Það hefur afdrifarík áhrif fyrir sj álfræði
að fólk upplifir vistheimili sem stofnanir
fremur en sem heimili.
I lokaorðum bókarinnar benda höfundar
á verkefni sem stjórnendur og starfsfólk
vistheimila standa frammi fyrir í ljósi
könnunarinnar og túlkunar á niður-
stöðum.
• Aðlaga þarf þjónustuna meira að
óskum vistmanna og mikilvægt er að sam-
hæfa öryggi vistmanna sjálfræði þeirra.
Til þess þarf bæði breyttan hugsunarhátt
vistmanna og starfsfólks. Mikilvægt er
að starfsfólk hafi frumkvæði að slíkum
breytingum.
• Þeir sem starfa á vistheimilum og
stjórna þeim þurfa að vera sérstaklega
meðvitaðir um sjálfræðisvandann og gæta
þess að þeir einstaklingar sem þar búa
hafi aukna valkosti um hvernig þeir haga
daglegum lífsháttum sínum.
• Ganga ætti út frá því að ráði vistfólk
meira um daglegar athafnir, skapi sjálft
sitt nánasta umhverfi og ljái því persónu-
leika sinn í ríkari mæli, fái það fremur á
tilfinninguna að það sé á eigin heimili. Sú
tilfinning er mikilvæg forsenda fyrir góðri
líðan. I þessu skyni þyrfti bæði að efla
sjálfræðiskosti einstaklinga í einkalífinu
og lýðræðislegt ákvörðunarvald íbúanna
um sameiginleg hagsmunamál.
• Þessi atriði þarf að hafa í huga þegar
vistheimili eru hönnuð.
• Viðurkenna þarf að vistheimili eru
ekki heilbrigðisstofnanir sem fyrst og
fremst hafa það að markmiði að lækna
og líkna. Höfuðatriðið er að þau eru eina
mögulega heimili þeirra sem þar búa.
Þeir sem þar vinna verða að hafa það
hugfast og sýna íbúum þá virðingu sem
sérhverjum einstaklingi her að auðsýna á
hans eigin heimili.
Eg vil að lokum hvetja alla þá sem láta
sig varða velferð aldraðra að kynna sér
efni bókarinnar Sjálfræði og aldraðir. Þar
er að finna ógrynni upplýsinga um viðhorf
aldraðra til stofnanadvalar. Höfundar
varpa ljósi á fjölmörg atriði sem hingað
til hafa ekki verið sett fram opinberlega.
Vonandi verða niðurstöðurnar til auk-
innar umræðu og breytinga í samfélaginu
varðandi málefni aldraðra.
Höfundum bókarinnar eru hér með
færðar þakkir fyrir framlag þeirra.
Margrét Margeirsdóttir, stjórnarmaður í
Félagi eldri borgara í Reykjavík
Eftirtalin fyrirtæki í Snæfellsbæ og Grundarfirði
senda bestu jóla- og nýársóskir
Brauðgerð Ólafsvíkur ehf.
Ólafsbraut 19, Ólafsvík
Fiskiðjan Bylgjan
Bankastræti 1-3, Ólafsvík
Hafnarsjóður Snæfellsbæjar
Norðurtanga 5, Ólafsvík
Hrannarbúðin sf.
Hrannarstíg 5, Grundarfirði
Hraðfrystihús Hellissands hf.
Hellissandi
K.G. fiskverkun ehf.
Hellissandi
Litabúðin ehf.
Ólafsbraut 55, Ólafsvík
Ragnar og Ásgeir ehf.
Sólvöllum 7, Grundarfirði
SB Raftækni sf.
Engihlíð 14, Ólafsvík
Sjávariðjan Rifi hf.
Hafnargötu 8, Rifi
Sólarsport
Ólafsbraut 55, Ólafsvík
Snæfellsbær
Snæfellsási 2, Hellissandi
Snæþvottur ehf.
Grundargötu 61, Grundarfirði
Sparisjóður Ólafsvíkur
Ólafsbraut 19, Ólafsvík
Söluskáli ÓK
Engihlið 6, Ólafsvík
Valafell
Sandholti 32, Ólafsvík
Verslun Árna Jóns
Smiðjuvegi 6, Rifi
Verslunin Blómsturvellir ehf.
Munaðarhóli 25, Hellissandi
Verslunin Hrund
Grundarbraut 6, Ólafsvík
Verslunin Þóra
Mýrarholti 12, Ólafsvík
Virkið ehf.
Hafnargötu 11, Rifi
Útnes hf
Hárifi 25, Hellissandi
Þín verslun Kassinn
Norðurtanga 1, Ólafsvík