Listin að lifa - 01.12.2004, Blaðsíða 49

Listin að lifa - 01.12.2004, Blaðsíða 49
Frá Reykjavíkurfélaginu Heilsa og hamingja Janúar - maí 2005. Fræðslu - og kynningarnefnd FEB í Reykjavík gengst fyrir eftirfarandi dagskrá fyrir eldri borgara frá áramótum til vors 2005: Föstudagur 7. janúar Það er leikur að læra. Staður: Asgarður Tími: 14:00-16:00 Aðgangseyrir (kaffi innifalið): 300 kr. Fyrsta dagskrá haustsins var kynning á framboði námskeiða, námsbrauta og námsefnis, sem ýmist er sniðið beinlínis að þörfum eldri borgara eða má ætla að sé mjög liklegt til þess að geta gagn- ast þeim. Þráðurinn verður nú tekinn upp aftur og kynnt sams konar framboð á vorönn. Skólar, stofnanir og samtök, sem bjóða slíka þjónustu, munu hafa hvert sitt aðsetur í sölum Ásgarðs og fulltrúar þeirra veita hverjum sem til þeirra leitar upplýsingar um hvað eina, sem í tilboði þeirra felst. Meðal efnisflokka, sem kynntir verða, má nefna almennt bóknám á ýmsum sviðum, listir og líkamsrækt, handíð, tónlist og tölvur, svo og dagskrártilboð leikhúsa, safna og listahátíða. Föstudagur 11. febrúar Grannar í vestri Staður: Ásgarður Tími: 15:30-17:00 Aðgangseyrir (kaffi innifalið): 300 kr. Islendingar ferðast víða, en næstu nágranna sína heimsækja þeir fæstir. Þó tengja öflug bönd Island og Grænland, en samgöngu- leiðir þeirra á milli eru því miður ógreiðar. Ingvi Þorsteinsson hefur árum saman sótt Grænlendinga heim, veitt þeim ráðgjöf um landvernd og unnið að gerð gróðurkorta. Á þessum fundi heldur Ingvi erindi með myndefni um grannana í vestri og land þeirra, og svarar íyrirspurnum fundarmanna. Föstudagur 11. mars Ostur er góður kostur. Fræðsluferð í Osta- og smjörsöluna, Bitruhálsi 2. Gert er ráð fyrir að þátttakendur komi fyrir eigin atbeina að Bitruhálsi 2 fyrir klukkan 15:00, en þá hefst kynningin. Þátttakendum gefst færi á að fræðast um fjölbreytta framleiðslu osta víða um land, undir leiðsögn forsvarsmanna Osta - og smjörsölunnar, kynnast vörum þeim, sem fyrirtækin dreifir í verslanir landsmanna og síðast en ekki síst, meta gæði þeirra með því að taka þátt í bragð- kynningu á staðnum. Verslunin verður opin, en þar er vöruúrval mjög mikið og oft hagstæð tilboð. Kynningunni lýkur kl. 16:30 og hámark gesta getur verið 50 manns. Föstudagur 15. apríl Meðöl eða morgunganga Staður: Ásgarður Tími: 15:30-17:00 Aðgangseyrir (kaffi innifalið): 300 kr. Er sú stund upp runnin að læknar gefi út lyfseðla á gönguferðir, sund og leikfimi í stað lyfja? Um það hefur verið rætt við og við undanfarin misseri, einkum þegar Líf án lyfja hefur borið á góma. Þetta og annað sem þvi tengist er aðalefni fræðslufundar dagsins. Fyrirlesarar verða þekktir sérfræðingar úr stéttum lækna og líkamsræktarmanna. Föstudagur 20. maí Fræðsluferð í Hveragerði Brottfararstaður: Ásgarður Tími: 09:30 stundvíslega Þátttökugjald (allt innifalið): 3.000,- kr. Bókanir: Á skrifstofu FEB fyrir miðvikudag 18. mai. Hámarksfjöldi þátttakenda: 60 Brottför frá bílastæði við Ásgarð kl. 09:30. Komið að Heilsu- stofnun NLFI um 10:20. Þar verður starfsemin kynnt og aðstaðan skoðuð. Hádegisverður snæddur í Heilsustofnuninni kl. 11:30, en síðan haldið að Garðyrkjuskóla rikisins um kl. 12:30. Þar verður skoðunarferð um margvíslega starfsstaði skólans undir leiðsögn sérfræðinga. Að lokum verður sest að vönduðu kaffiborði kl. 15:00, en haldið heim kl. 16:00 og komið að Ásgarði um kl. 17:00. Cher Tískuvöruverslun - Laugavegi 82
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Listin að lifa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.