Listin að lifa - 01.12.2004, Blaðsíða 57
KYNNING:
Takiö ábyrgð
á eigin lífi og
- segir dr. Satya læknir
„Thinkprevention“ (hugsað um forvarnir) er hópur lækna ffá Evrópu og Banda-
ríkjunum sem hafa það að markmiði að fyrirbyggja sjúkdóma. Þeir hafa stofhað með
sér félag sem fer víða um heim með fyrirlestra og kynningar auk þess að rannsaka
náttúruefni sem geta fyrirbyggt sjúkdóma.
Væntanlegt er á markað í janúar 2005 vatns-
hreinsað, lífrænt ræktað te í hylkjum frá MET-
ASYS í Bretlandi. Verður fáanlegt í apótekum
og heilsubúðum.
Dr. Satya læknir er forstjóri þessarar
stofnunar. Hann var lyflæknir á
tauga- og hjartadeild og á deild
fyrir sykursjúka á breskum sjúkrahúsum í
20 ár.
Næringarfræðin vakti áhuga hans fyrir
8 árum þegar hann sá marga sjúklinga
sína fá bata með því að breyta mataræði
í heilsufæði ásamt inntöku á fæðubótar-
efnum. Hann fór að safna saman og kanna
vísindalegar rannsóknir sem gerðar hafa
verið á næringarefnum. Þetta varð kveikjan
að því að hann lét af störfum og stofnaði
„Thinkprevention“ með fjölda lækna og
vísindamanna sem telja nú 2000 félaga í
Evrópu og Bandaríkjunum.
Markmið hópsins er að tengja saman
hefðbundna og óhefðbundna læknisfræði,
halda fyrirlestra og námskeið í nýjum
aðferðum að uppfræða fólk um áhættuþætti
svo sem mengun, óhollt fæði og streitu svo
eitthvað sé nefnt. Dr. Satya mun koma til
Islands mánaðarlega 2005, halda fyrir-
lestra og upplýsa um nýjar aðferðir við
vinnslu á grænu tei bæði fyrir fagfólk og
almenning.
Einkunnarorð „Thinkprevention“ eru
höfð eftir Thomas Edison: „Læknir fram-
tíðarinnar mun ekki gefa nein lyf, en hann
mun vekja áhuga sjúklinga sinna á að taka
ábyrgð á eigin lífi og mataræði til þess að
fyrirbyggja sjúkdóma.“
Ritstjóri fékk að leggja nokkrar spurningar
fyrir dr. Satya:
Þú Ieggur mikla áherslu á grænt te, hvers
vegna? „Síðan sögur hófust, bæði í Kína
og Japan, hefúr græna teið verið notað
gegn mörgum kvillum og fjölmargar,
viðurkenndar rannsóknir hafa sannað
áhrifamátt þess. Teið er mjög andoxunar-
ríkt; endurnýjar líkamsfrumur; er talið
vinna gegn krabbameini; koma jafnvægi á
blóðsykur; lækka blóðþrýsting; vinna gegn
bakteríum og vírusum; efla ónæmiskerfið,
hreinsa líkamann og örva brennslu.
Mjög mikilvægt er að græna teið sé rétt
unnið. Algengasta vinnsluaðferðin er að
þurrka teið, en þá oxíderast laufin og tapa
um 50% af eiginleikum sínum. Bandaríska
(frumu)líffræðistofnunin hefur gefið út það
álit að „Aqueous Extraction" vatnshreinsun
sé besta vinnsluaðferðin, þá tapist aðeins
um 10% af virkni plöntunnar.“
Hvað annað viltu segja íslendingum, dr.
Satya? „Fræða þá um ástandið og hugs-
anlegar, fyrirbyggjandi aðgerðir. í dag
deyr einn af hverjum þúsund eðlilegum
hrörnunardauða, en alíir hinir deyja úr
sjúkdómum sem tengjast lífsháttum, má
þar nefna mengun, skyndifæði, streitu og
ýmsa umhverfisþætti. Alþjóða heilbrigð-
ismálastofnunin telur að eitt af hverjum
tveimur börnum sem fæðast muni fá
alvarlega sjúkdóma, eins og krabbamein
og hjartasjúkdóma i ffamtíðinni. Skelfi-
legt að hugsa sér að rekja megi um 70%
af þessum sjúkdómum til almenns fæðis.
Maturinn sem við borðum er tíu sinnum
hættulegri en reykingar.
Neysluvenjur hafa breyst geysilega
síðustu 50 árin, einnig landbúnaðarfram-
leiðsla. Nefna má að í Evrópu eru leyfi
fyrir 8.950 kemískum eiturefnum til skor-
dýravarna. Geislun er einnig leyfð til að
flýta fyrir þroskun grænmetis. Erfðabreytt
matvæli svo að varan vaxi sem hraðast og
haldist sem lengst fersk. Þessi matvæla-
vinnsla drepur nær öll lífsnauðsynleg og
upprunaleg andoxunarefni, náttúruleg
næringarefni og mikilvæg ensím.“
Hverjir eru helstu áhættuþættir öldrunar?
„Ónæmiskerfið, erfðaþættir, vöðvamassi,
beinþynning og hrörnun vegna skorts á
andoxunarefnum. Eitt lítið dæmi um hvað
felst í andoxun: Járnbútur sem ryðgar,
oxast. Sama gerist með frumurnar, þær
oxast eða hrörna. Við þurfum andoxunar-
efni til að vinna gegn hrörnun. Græna teið
er ríkt af þeim. Annað dæmi: Sundurskorið
epli verður fljótlega brúnt, en ef sítróna er
kreist yfir eplið, fær það andoxunarefni og
helst fallegt og ferskt. Með aldrinum hægir
líkamsstarfsemin á sér, er búin að hægja
á sér um 80% þegar fólk er komið undir
sextugt. Melting og blóðsykur eru oft í
ójafnvægi, húðin ójöfn og þurr.“
Hvað er til ráða? „Með fræðslu um
ástandið verður vonandi smám saman
hægt að koma í veg fyrir sjúkdóma og
lækna þá. Ég trúi að vatnshreinsað, grænt
te geti hjálpað. Breskar læknisrannsóknir
á 10 þúsund manns staðfesta heilsufars-
legan ávinning með reglulegri drykkju á
grænu tei í 98% tilfella. Eg mun kynna nýju
vinnsluaðferðina á græna teinu og fleiri
uppgötvanir. Heimurinn á ærin verkeíni
framundan. Við verðum öll að leggjast á
eitt til að koma lífinu í betra horf,“ segir
Dr. Satya.“
Senda má inn fyrirspurn í netfang:
goeswell@simnet.is