Fréttatíminn - 06.03.2015, Síða 22
É
g hitti Sölku Sól Eyfeld á
kaffihúsi í miðbænum en
hún ber það með sér að
vera þessi miðbæjarrotta.
Glaðleg og hæfilega kæru-
laus og það virðist vera að hún brosi
til allra á kaffihúsinu. Hún er nýbúin
að kaupa sér íbúð í miðbænum og vill
hvergi annarsstaðar vera.
„Er þetta hollur morgunmatur,“
spyr blaðamaður þar sem hún fær
sér Hámark. „Þetta er það eina sem
ég man að fá mér,“ segir Salka. Við
vindum okkur bara beint í stóru frétt-
irnar, sem eru þess efnis að Salka er að
hætta á RÚV. „Nú er ég að fara að gera
það sem mig hefur alltaf dreymt um,
sem er að fara í leikhúsið,“ segir Salka
Sól. „Ég fékk símtal frá Gísla Erni
Garðarssyni sem er að fara að setja
upp Hróa Hött í Þjóðleikhúsinu næsta
haust, og vildi fá mig til þess að sjá um
tónlistina og allan hljóðheim sýningar-
innar,“ segir Salka en Gísli Örn hefur
sett Hróa Hött upp í bæði Evrópu og
Bandaríkjunum við góðan orðstír.
„Þetta tilboð var of gott til þess
að vera satt,“ segir Salka. „Þetta er í
rauninni akkúrat það sem ég menntaði
mig í. Það er búið að vera svo ofboðs-
lega mikið að gera hjá mér að undan-
förnu að ég hef ekki haft tíma til þess
að skapa, svo þetta verkefni er full-
komið og ég get ekki beðið eftir því að
hella mér út í þetta,“ segir Salka Sól
sem menntaði sig í fagi sem kallast
Actors Musicianship sem einkennist
af því að hljóðfæri eru framlenging af
leikaranum.
Þykir vænt um RÚV
Salka Sól lærði í Englandi og eftir
nám var komið að því reyna fyrir sér
í hinum stóra heimi stórborgarinnar.
Salka var þó ekki alveg sátt í þessu
umhverfi og eftir stutta heimsókn til
Íslands langaði hana ekki aftur út. „Ég
var búin að vera úti í þrjú ár og gekk
vel í skólanum. Eftir skólann fékk
ég svo umboðsmann, nokkuð góðan
meira að segja og þetta var allt saman
mjög spennandi,“ segir Salka. „Ég fór í
einhverjar prufur og slíkt og svo ákvað
ég að koma heim í tvær vikur í smá
slökun, og fann mjög sterkt að mig
langaði ekkert aftur út. Ég held að ég
hafi bara ekki verið tilbúin í þetta hark
sem er í gangi í London,“ segir Salka.
„London er frábær borg ef þú átt
peninga. Ef þú átt ekki peninga þá
er hún erfið og mjög niðurdrepandi,“
segir Salka. „Ég átti bara ekki peninga
og kom bara heim. Hér er ekkert vesen
og ég var ótrúlega fegin að komast í
það umhverfi. Í London fylgir ótrúlega
pappírsvinna að fá að vera til. Hér
heima hringir maður bara í frænku
sína sem vinnur í bankanum og ekk-
ert vesen,“ segir Salka og hlær. „Mig
vantaði hugarró og þurfti smá tíma til
þess að stilla mig af, og fór að vinna á
kaffihúsi,“ segir Salka. „Margir koma
tvíefldir úr listnámi, en ég fékk bara
alveg nóg.“
Síðasta sumar átti hljómsveitin
AmabAdama sumarsmellinn Hossa
Hossa og hvert sem litið var, mátti sjá
Sölku og félaga hennar í sveitinni. Hún
bjóst þó ekki við þessum gríðarlegu
viðbrögðum sem lagið fékk um sum-
arið. „Þau voru búin að vera að vinna
aðeins saman og ég kannaðist við þau
flest,“ segir Salka. „Í mars í fyrra hætti
önnur söngkonan þeirra og þau höfðu
séð mig syngja stuttu áður og höfðu
bara samband. Þá fórum við bara að
vinna saman og ég var alveg tilbúin að
fara að gera eitthvað eftir að hafa verið
að vinna á kaffihúsinu,“ segir Salka.
Þá byrjaði boltinn að rúlla og rúllaði
hratt. Hossa Hossa fór í útvarp og allir
stukku á vagninn sem enn er á góðri
ferð.
Salka hefur verið gríðarlega
áberandi í öllu starfi RÚV í vetur og
stundum heyrast þær raddir að fólki
þyki nóg um. Hún hefur óspart verið
notuð í auglýsingum stöðvarinnar,
bæði fyrir sjónvarpsþætti sem og
útvarpið, þar sem hún er einn þriggja
umsjónarmanna Popplandsins ásamt
því að sjá um helgarþáttinn Hanastél
ásamt Dodda „litla“.
Nú er svo komið að hún ætlar að
taka sér frí frá RÚV að mestu leyti.
Salka Sól
EyfEld
Aldur: 26 ára.
Menntun: BA í Actor
Musicianship.
Maki; Albert
Halldórsson, leik-
listarnemi í LHÍ.
Stjörnumerki:
Hrútur.
Uppáhaldsstaður á
Íslandi: Heima hjá
mömmu og pabba
er alltaf kósí. Svo
finnst mér yndislegt
að fara norður,
bæði á Akureyri og
Dalvík.
Hvað er fram
undan: Ég verð á
tónlistarhátíðinni
By:larm í Noregi um
helgina á vegum
Nordic playlist svo
fer ég til Berlínar
með vinkonu minni
í smá afslöppun.
Svo erum við í
AmabAdamA að
plana smá túr um
landið um páskana.
Frá RÚV í leikhúsið
Fjöllistakonan Salka Sól Eyfeld skaust upp á stjörnuhimininn fyrir tæpu ári og hefur verið mjög áberandi
síðan. Hún hefur vakið mikla athygli með hljómsveitinni AmabAdama og kom sem ferskur vindur inn
í dagskrá RÚV, bæði í útvarpi og sjónvarpi. Hún hefur þó ákveðið að venda sínu kvæði í kross og taka
sér frí frá RÚV, að mestu, vegna tilboðs sem hún gat einfaldlega ekki hafnað. Salka er sterkur karakter
en kannski eru færri sem vita að hún hefur ekki alltaf verið sterk. Hún segir grunnskólann hafa verið
hrikalega erfiðan og reynsla hennar úr æsku er eitthvað sem muni alltaf fylgja henni. Hún vill vera gott
fordæmi þess að það sé allt hægt ef mann langar til þess.
Maður þarf ekki
að vera eitthvað
„case“ þó maður
fari til sálfræð-
ings. Ljósmyndir/
Hari
„Ég ætla í smá frí,“ segir Salka Sól. „Það er
svakalega gaman að vinna þarna og mér
þykir mjög vænt um RÚV. Ég horfði yfir Foss-
voginn á útvarpshúsið sem krakki og lét mig
dreyma. Pabbi stalst svo með mig í stúdíóið
þegar ég var 13 ára og ég tók upp mitt fyrsta
lag þarna, svo mér þykir mjög vænt um þetta
hús,“ segir Salka en pabbi hennar er leikarinn
Hjálmar Hjálmarsson.
„Ég mun halda áfram með Dodda út sum-
arið en að öðru leyti er ég að taka mér leyfi
innan gæsalappa.“
Heldurðu að það hafi verið sjokk fyrir ráða-
menn RÚV að missa þig úr starfi eftir stuttan
tíma?
„Þeim fannst það leiðinlegt, eins og mér, en
ekkert sjokk held ég,“ segir Salka. „Ég sé mig
alveg fyrir mér í útvarpi seinna, mér finnst
útvarpið alveg ótrúlega skemmtilegur miðill.“
Skrápurinn er að harðna
Gagnrýni er eitthvað sem allir finna fyrir
þegar þeir eru áberandi á Íslandi. Sérstaklega
ef þeir eru ungir eins og Salka Sól. Hún segist
þó vera að venjast þessu og skrápurinn sé
alltaf að þykkna. „Ég fór að taka saman það
sem ég hef verið að gera í sjónvarpi og það er
ekkert brjálæðislega mikið, þó svo að Söngva-
keppniauglýsingin hafi verið sýnd brjálæðis-
lega oft,“ segir Salka. „Fólk tekur bara meira
eftir því af því að ég er ný, held ég. Ég læt það
ekki trufla mig, þetta er vinnan mín, og það
vill til að hún er á opinberum vettvangi. Sig-
mar er í Kastljósinu alla daga, og Logi Berg-
mann er í öllu á Stöð 2 og þeir fá ekki þessi
komment,“ segir Salka.
Heldurðu að þetta sé öðruvísi af því að þú ert
ung kona?
„Já, ég held það. Það er harðari gagnrýni
á okkur oft á tíðum. Ég er samt bara á því að
ef maður er að gera góða hluti, þá fái maður
góð verkefni. Þetta helst allt í hendur,“ segir
Salka.
Hvað með allt það sem er sagt á netinu,
hefur það áhrif á þig?
„Þegar hlutirnir gerast svona hratt, eins
og hjá mér, þá er mjög skrýtið að vera allt í
einu sú manneskja sem má segja allt um,“
segir Salka. „Það má gagnrýna, en ég skil
Framhald á næstu opnu
22 viðtal Helgin 6.-8. mars 2015