Fréttatíminn - 06.03.2015, Síða 66
KviKmyndir ingvar Þórðarson frumsýnir The grump á Íslandi
Finnar með sömu þjóðarsál og við
„Ég held að þessi mynd eigi eftir að
leggjast vel í Íslendinga enda eru
Finnar ótrúlega líkir okkur. Maður
á vini um öll Norðurlöndin en Finn-
ar eru næstir okkur í húmor. Þetta
er sama þjóðarsálin,“ segir Ingvar
Þórðarson kvikmyndaframleiðandi.
Ingvar og félagi hans, Júlíus
Kemp, framleiddu finnsku kvik-
myndina The Grump sem sló í gegn
í heimalandinu og víða um heim í
kjölfarið. Hilmar Örn Hilmarsson
samdi tónlistina í myndinni. Mynd-
in kemur í kvikmyndahús á Íslandi
um helgina.
The Grump er raunar ein vin-
sælasta mynd Finna frá upphafi.
Um hálf milljón Finna sá hana í bíó
en Finnar telja um fjórar milljónir.
Myndin er byggð á samnefndum
metsölubókum eftir Tuomas Kyrö
en hann og leikstjórinn Dome Karu-
koski komu hingað til lands vegna
frumsýningarinnar. „Þeir ætla að
byrja að skrifa Grump 2 hér á landi,“
segir Ingvar kotroskinn.
Í myndinni segir af sauðþráum og
íhaldssömum bónda á níræðisaldri
sem hefur ævaforn gildi í hávegum.
Samkvæmt honum voru börn ekki
frek í gamla daga og fólk eyddi
aldrei peningunum sínum í vitleysu.
Þegar bóndanum mislíkar eitthvað
lætur hann það bitna á öllum þeim
sem á vegi hans verða.
„Við erum með ansi mörg verk-
efni á teikniborðinu,“ segir Ingvar
þegar hann er spurður um næstu
verkefni. „Þetta eru kannski 20
myndir og ein af þeim mun skekja
íslenskt þjóðlíf. Það er íslenskur
leikstjóri sem stýrir henni og við
erum búnir að fjármagna hana að
fullu erlendis.“ -hdm
Ingvar Þórðarson og Júlíus Kemp reka saman kvikmyndafyrirtækið Kisa. Þeir
frumsýna hér á landi finnsku myndina The Grump um helgina en hún sló í gegn í
heimalandinu.
Nirvana heiðruð í
Reykjavík og á Akureyri
Í tilefni þess að forsprakki Nirvana, Kurt
Cobain, hefði orðið 48 ára gamall nú á
dögunum og að hljómsveitin var nýlega
vígð inn í Rock & Roll Hall Of Fame verður
sveitin heiðruð á tvennum tónleikum í
Reykjavík og á Akureyri. Fyrri tónleikarnir
fara fram á Gauknum, í kvöld, föstudags-
kvöld og seinni tónleikarnir á Græna
hattinum á laugardagskvöld. Farið verður
yfir allan feril Nirvana í bæði rafmagnaðri
og órafmagnaðri stemningu og verða öll
helstu lög sveitarinnar flutt af einvalaliði
rokktónlistarmanna sem eru í hljóm-
sveitum á borð við Ensími, Noise og John
Grant. Heiðurssveitina skipa þeir Einar
Vilberg, söngur og gítar, Franz Gunnarsson,
gítar og söngur, Kristinn Snær Agnarsson
á trommur og Jón Svanur Sveinsson, bassi
og söngur.
Íslandsmeistaramótið í
PacMan
Spilasalurinn Freddi er ekki þekktur fyrir að
tvínóna við hlutina og núna þegar Íslands-
meistarinn í Donkey Kong er fundinn, er
hafin leit að Íslandsmeistaranum í PacMan.
Mótið fer fram á Fredda, Ingólfsstræti 2a,
á morgun, laugardag, klukkan 16. Skráning
fer fram á Fredda og á FB síðu Fredda
þangað til mótið fer fram og þátttökugjald-
ið er 500 krónur. Pacman var gefinn fyrst
út af Namco 22. maí 1980. Midway keypti
leikinn fyrir Bandaríkjamarkað í október á
sama ári og sló hann strax í gegn. Pacman
er orðinn hálfgerð táknmynd fyrir níunda
áratuginn og er grimmt spilaður enn þann
dag í dag í leiktækjasölum um allan heim.
Árni og Viktor gefnir út í
Makedóníu
Forlagið Begemot í Makedóníu gaf
nýverið út tvær íslenskar glæpasögur, Tíma
nornarinnar eftir Árna Þórarinsson og Flat-
eyjargátu eftir Viktor Arnar Ingólfsson. Þeir
félagar eru ekki fyrstu íslensku höfundarnir
sem hafa vakið áhuga makedónskra bóka-
forlaga. Áður
hafa bækur
eftir Arnald
Indriðason,
Kristínu
Marju Bald-
ursdóttur,
Óttar Norð-
fjörð, Ófeig
Sigurðsson
og Halldór
Laxness
komið þar út.
Þjóðlagatónlistarhátíð á Kex
Þjóðlagatónlistarhátíðin Reykjavík
Folk Festival er nú haldin í fimmta
sinn á Kex Hostel við Skúlagötu. Hún
hófst í gær, fimmtudag, og stendur
til laugardags. Dagskrá hátíðarinnar
er ætlað að blanda saman þjóðlaga-
tónlistarmönnum og -hljómsveitum á
ólíkum aldri og frá ólíkum áttum innan
þjóðlagatónlistarheimsins. Hátíðin fer
fram í notalegum húsakynnum Kex
Hostels og er ekkert til sparað við að
skapa notalega og einlæga stemningu
og ógleymanlega tónlistarveislu fyrir alla unnendur þjóðlagatónlistar. Þeir lista-
menn sem koma fram á hátíðinni í ár eru Teitur Magnússon, Ylja, Kólga, Funi, Moð,
Lindy Vopnfjord (CA), Klassart, Lay Low, JP Hoe (CA), Björn Thoroddsen, Pétur Ben
og Egill Ólafsson.
leiKhús söngleiKurinn Billy ellioT Í BorgarleiKhúsinu
Söngleikurinn Billy Elliot er frumsýndur í Borgarleikhúsinu í kvöld, föstudagskvöld. Meðal þeirra
sem stíga þar á stokk eru bræðrapör, Björn Dagur og Rúnar, og Höskuldur Þór og Jökull. Björn
Dagur er 19 ára Kópavogsbúi sem hefur dansað síðan hann var sex ára.
a uðvitað finnur maður eitt-hvað stress, ég er mann-legur. En eins og Billy seg-
ir, þetta er gott stress. Þetta er svo
vel æft að ég hef engar áhyggjur,“
segir Björn Dagur Bjarnason, einn
leikara í söngleiknum Billy Elliot
sem frumsýndur verður í Borgar-
leikhúsinu í kvöld, föstudagskvöld.
Björn Dagur er 19 ára Kópa-
vogsbúi. „Ég er úr Digranesinu,
Engihjallanum,“ segir hann. Björn
Dagur leikur ýmis hlutverk í Billy
Elliot; námuverkamann, boxara
og lögreglumann svo eitthvað sé
nefnt. Hann hefur tekið þátt í æf-
ingum á söngleiknum frá því í des-
ember síðastliðnum.
„Ég er búinn að dansa síðan
ég var sex ára. Fyrst var ég í sam-
kvæmisdansi og síðan skipti ég yfir
í Listaháskólann og fór að læra ball-
ett,“ segir Björn Dagur. Hann segir
að það hafi verið gaman að skipta
yfir í leikhúsið og reyna eitthvað
nýtt. „Þetta var dálítið sjokk fyrst en
ég vissi að ég gæti þetta. Nú langar
mig bara að læra meira að syngja
og leika,“ segir Björn sem kveðst
vera farinn að íhuga að læra leiklist
í framtíðinni. „Alveg bókað.“
Hvernig atvikaðist það að þú
fórst að dansa og leika?
„Amma og afi eru dansarar og
ég var bara settur í þetta þegar ég
var lítill. Ég var settur í margt en
hékk þarna áfram. Ætli það hafi
ekki verið fyrir stelpurnar,“ segir
hann léttur í bragði.
Yngri bróðir Björns heitir Rúnar
Bjarnason og er hann 14 ára. Rún-
ar fer einnig með hlutverk í Billy
Elliot. „Hann var einn af þeim sex
sem komu til greina í hlutverk Billy
en var ekki valinn. Ég myndi segja
að það sé af því hann er svo gamall,
hann var elstur af þeim sex. En ég
er mjög ánægður með að hann fékk
hlutverk,“ segir Björn.
Björn Dagur og Rúnar eru raun-
ar ekki einu bræðurnir sem taka
þátt í uppsetningunni á Billy El-
liot. Höskuldur Þór Jónsson, 16 ára,
leikur námuverkamann, lögreglu-
mann, steppara og fleira, og Freyr
Jökull, fimm ára bróðir hans, leikur
krúttið í sýningunni.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Söngleikurinn Billy Elliot er frumsýndur í Borgarleikhúsinu um helgina og þessir fjórir drengir eru meðal þeirra sem stíga þar
á svið. Frá vinstri er Höskuldur Þór Jónsson, 16 ára, og Freyr Jökull Jónsson, 5 ára bróðir hans. Þá Björn Dagur Bjarnason, 19
ára, og Rúnar Bjarnason, 14 ára. Ljósmynd/Hari
Bræðrapör í Billy Elliot
66 dægurmál Helgin 6.-8. mars 2015