Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.03.2015, Side 70

Fréttatíminn - 06.03.2015, Side 70
fermingar Helgin 6.-8. mars 20152 Elvar Kristinn fer beint til Eng- lands að keppa eftir fermingu. Ljósmynd/Hari. Vinirnir tala aldrei um ferminguna Elvar Kristinn Gapunay fermist þann 29. mars frá Digraneskirkju í Kópavogi. Hann segist hlakka mikið til, en segist líka bera virðingu fyrir því af hverju hann er að fermast, þó gjafirnar séu kannski það sem mesti spenningurinn sé fyrir. Hann er Norður-Evrópumeistari í samkvæmisdönsum og fer strax eftir fermingu til Englands að keppa. E lvar Kristinn Gapunay er 13 ára samkvæmisdansari og nemi í Smáraskóla í Kópa- vogi. Hann fermist í lok mánaðarins og segist vera orðinn spenntur fyr- ir stóra deginum. „Ég er búinn að bíða eftir þessu frá því í fyrra þegar frændi minn og frænka fermdust,“ segir Elvar Kristinn. „Ég veit ekki hvað það eru margir sem fermast með mér en við erum nokkrir vin- irnir sem fermumst á sama tíma. Við fórum í átta tíma í fermingar- fræðslu og nokkrar messur og lærð- um um tilgang fermingarinnar og svoleiðis,“ segir Elvar sem verður frekar fáorður þegar talið berst að efnistökum fermingarfræðslunnar. „Það er enginn í mínum skóla sem ætlar ekki að fermast. Annað hvort eru allir að fermast með mér eða á eftir mér. Ég verð í útlöndum þegar aðrir eru að fermast svo ég kemst ekki í neinar fermingarveislur í ár,“ segir Elvar sem hefur æft dans frá unga aldri og varð fyrr í vetur Norð- ur-Evrópumeistari í samkvæmis- dönsum og fékk silfur á heimsmeist- aramóti unglinga. Tveimur dögum eftir fermingu heldur hann til Lond- on til æfinga og svo beint á mót. „Ég er að fara að keppa á stærsta dans- móti í heimi sem haldið er í Blackpo- ol í Englandi og hlakka mikið til,“ segir Elvar sem æfir dans hjá Dans- skóla Sigurðar Hákonarsonar. „Veislan verður haldin í dansskól- anum og það kemur fullt af fólki,“ segir Elvar. „Alveg nóg allavega. Ég veit ekkert hvað ég fæ í fermingargjöf en mig langar mest í peninga, úr eða iPhone 6 síma, eins og alla langar í,“ segir Elvar sem segir vinina alla langa í það sama. „Við tölum ekkert um ferminguna eða hvað okkur langar í, en ætli þetta sé ekki á listunum hjá öll- um. Annars er þetta bara skemmtilegt og ég hlakka til,“ segir Elvar Kristinn Gapunay fermingardrengur. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is Fermingin er ekki eingöngu trúar- leg athöfn heldur er einnig litið á hana í mörgum samfélögum sem manndómsvígslu inn í samfélag fullorðinna. Víðs vegar um heiminn má finna manndómsvígslur af ýmsu tagi sem eiga sér oftast stað þegar unglingurinn kemst á kynþroska- aldur og ganga margar þeirra út á að fræða unglinginn um þær skyld- ur sem bíða hans sem fullorðins ein- staklings. Verslunarferð eða bænastund? Fermingar í Danmörku eru að mörgu leyti svipaðar og á Íslandi. Þar hefur hins vegar myndast sú hefð að fermingarbörn fá ávallt frí í skólum á mánudegi eftir fermingu og hittast þá og fara saman í versl- unarferð og hefur dagurinn fengið viðurnefnið „blái mánudagurinn“. Manndómsvígsla gyðinga er ekki svo frábrugðin íslensku ferming- unni. Við tólf og þrettán ára aldur fara fram tvær mismunandi athafn- ir, Bar Mitzvah hjá strákunum og Bat Mitzvah hjá stelpunum. Mis- jafnt er hvernig athöfnin fer fram en strákarnir lesa yfirleitt upp úr Mósebók og fara með stuttan texta úr Torah, trúarriti gyð- inga. Þeir leiða svo söfnuðinn í bæna- stund. Í frjálslynd- ari söfnuðum mega stelpur framkvæma athöfn með sama sniði og strákarnir. Nautgripahlaup eða maura­ stungur? Manndómsvígsluhefðirnar eru heldur fjölbreyttari meðal hinna ýmsu ættflokka í Suður-Ameríku og Afríku. Í Hamar-ættflokknum í Eþíópíu þurfa ungir strákar að hlaupa naktir eftir bökunum á nautgripum sem stillt hefur verið upp í röð. Nái þeir að endurtaka hlaupin fjórum sinnum í röð án þess að detta eru þeir komn- ir í fullorðinna manna tölu. Í samfélagi Sa- tere -Mawe ind- jána í Brasilíu fer manndómsvígsl- an fram með ansi harkalegum hætti. Þar tíðkast sá siður að vefja hanska úr laufblöðum og húða svo hanskann með stórhættu- legum maurum sem hafa brodd. Stunga frá maurum af þessu tagi á víst að vera sú allra sársauka- fyllsta. Einungis strákar þurfa þó að fara í gegnum þessa vígsluat- höfn, en þeir þurfa að hafa hansk- ana á höndunum í tíu mínútur í hvert skipti, en endurtaka þarf at- höfnina í mörg skipti yfir nokkurra mánaða tímabil svo manndóms- vígslan sé fullgild. Íslensk fermingarbörn þurfa því ekkert að óttast fyrir stóra daginn. Það er kannski ekki svo slæmt að klæða sig í hvítan kirtil og fara með nokkur vers úr biblíunni eftir allt saman. Manndómsvígslur víða um heim

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.