Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.03.2015, Síða 82

Fréttatíminn - 06.03.2015, Síða 82
fermingar Helgin 6.-8. mars 201514  Barnahorn Leiksvæði fyrir börnin Það getur erfitt að vera lítill í stórri veislu þar sem fullorðið fólk þarf mikið að tala saman. Þess vegna er gott að hafa í huga einhverja afþrey- ingu fyrir litlu börnin sem mæta í fermingar- veisluna. Ágætt er að afmarka svæði fyrir börnin þar sem geta verið leikföng, bækur, spil, litir og blöð, stólar og borð eða púðar og teppi. Ekki er verra að hafa einhvern sem getur litið eftir börn- unum, farið með þau í leiki og lesið sögu á meðan fullorðna fólki spjallar og snæðir. Gott er að velja svæði þar sem ekki er mikill umgangur og erill. Blöðrur slá alltaf í gegn hjá börnum. a ðspurð hvort það hafi færst í vöxt að stelpur spái mikið í neglur og naglaumhirðu fyrir fermingardaginn segir Hulda Jónsdóttir naglafræðingur að svo sé og tengir það við vinsældir nagla- lökkunar og betri naglaumhirðu. Fyrir þær stelpur sem vilja hugsa vel um neglurnar sínar fyrir ferm- ingardaginn segir Hulda: „Ég mæli með því að neglurnar séu vel snyrt- ar og jafnaðar og fallegur litur sett- ur á þær eða einfaldlega glær. Mér finnst ekki skipta máli að hafa þær ljósar frekar en dökkar. Það sem skiptir meira máli er að stúlkan sjálf sé ánægð með litinn og lögunina.“ Mælir ekki með gervinöglum á fermingardaginn Gervineglur eða steyptar neglur eru hins vegar ekki endilega tímabærar á fermingardaginn. „Ég myndi ekki mæla með að ungar stúlkur settu á sig lengingar og finnst það ein- faldlega ekki passa. Svo eru stuttar neglur bara rosalega flottar og töff- aralegar í dag. Ef þær vilja „poppa“ neglurnar smávegis upp er hægt að setja lakk með öðruvísi áferð, lit eða sanseringu, til dæmi á nögl á baug- fingri eða litla fingri.“ Naglabandaolía mýkir nagla- böndin Hulda segir að það sem skipti öllu máli er að sleppa því að naga og rífa naglabönd og neglur . „Það er snið- ugt að nota naglabandaolíu nokkr- um sinnum í viku til að mýkja nagla- böndin svo þau séu ekki þurr og við freistumst til að fikta í þeim. Annars held ég að naglaumhirða sé að verða álíka vinsæl og húð- og hárumhirða hjá mörgum. Einnig eru fyrirmynd- ir úr tísku- og tónlistarbransanum áhrifamiklar þegar kemur að nögl- unum og því vinsælli og sjáanlegri sem neglurnar eru þar, því vinsælli eru þær hjá ungum stúlkum,“ segir Hulda og bætir við að lokum að að- alatriðið sé ekki að hafa neglurnar eins ýktar og mögulegt er, heldur eins snyrtilegar og mögulegt er. „Það er ákveðinn klassi yfir því.“ Snyrtilegar neglur á fermingardaginn Við fermingarundirbúninginn er í mörg horn að líta og svo virðist sem umhirða nagla sé orðinn hluti af undirbúningsferlinu hjá mörgum fermingarstúlkum, enda hafa neglur og naglaumhirða notið aukinna vinsælda upp á síðkastið. Fréttatíminn fékk álit hjá naglafræðingnum Huldu Jónsdóttir, en hún segir að það sé fyrst og fremst mikilvægast að vera með hreinar og snyrtilegar neglur á ferm- ingardaginn. kollurinn/margir litir Ljós íslenskrar náttúru/Eldgos Tímalaus íslensk hönnun eftir Sigurður Már Helgason Hver glerkúpull hefur fyrirmynd úr íslenskri náttúru. Hvað er fegurra en á Íslandi í margbreytilegri birtu Kraum • Aðalstræti 10 • 517 7797 Margar gerðir af búningasilfri. Allar upplýsingar um hefð og gerðir búninga eru veittar á staðnum. Gullkistan - Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160. Sérverslun með kvensilfur www.thjodbuningasilfur.is Fermingar- hárskraut SKARTHÚSIÐ Laugavegi 44 S. 562 2466 Vertu vinur okkar á facebook Sendum í póstkröfu Kristalsteinar kr. 290 stk Blómakransar kr. 1500. Fallegir krossar, semelíuarmbönd og fermingarhanskar í miklu úrvali.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.