Fréttatíminn - 24.04.2015, Page 1
Viðhald húsa
Helgin 24.-26. apríl 2015
bls. 4
www.steypustodin.is
Hafðu samband og láttu sérfræðinga okkar aðstoða þig við að finna réttu lausnina.Hringhellu 2
221 Hafnarfjörður
Hrísmýri 8
800 Selfoss Smiðjuvegi
870 Vík
Malarhöfða 10
110 Reykjavík Berghólabraut 9
230 Reykjanesbær
20
YFIR
TEGUNDIR
AF HELLUM
Graníthellur og
mynstursteypa
Graníthellur hafa mun lengri endingartíma en venju legar hellur. Þær henta vel fyrir bílaplön, torg, stíga, þrep, litlar hleðslur og garða. Mynstursteypa er sniðug lausn í plön, stíga og verandir.
Gæði, fegurð og góð þjónusta
4 400 400
Fjárfesting sem steinliggur
vv
Mikilvægt
að lesa í
gömul hús
B irgir Þröstur Jóhannsson og Astrid Lelarge keyptu húsið við Vesturgötu í desember 2012 og hafa gert það upp með nokkr-um hléum. „Það er samt nóg eftir, það mætti eiginlega segja að kakan sé í ofninum,“ segir Birgir. Húsið var byggt árið 1882 og vegna aldurs er það friðað, samkvæmt lögum um menningarminjar. „Stefán Þórðarson keypti lóðina og sótti um byggingar-leyfi. Húsið var svo flutt inn frá Nor-egi, eins og tíðkaðist á þessum tíma, og hlóð Stefán upp kjallarann og skor-steininn og reisti svo húsið og gekk frá því að innan,“ segir Birgir, en hann hefur safnað að sér ýmsum gögnum um sögu hússins og fyrri eigendur þess. „Stefán var titlaður sem múrari um tíma og getur vel verið að hann hafi verið að vinna við Alþingishúsið sem var reist um svipað leyti.“ Húsið er skráð sem tómthús, en orðið var notað um hús án húsdýra þar sem yfirleitt bjuggu sjómenn sem kallaðir voru tómthúsmenn, en mikið var um þá í Vesturbænum á þessum tíma. Húsið er þó ekki tómt í dag því bæði köttur og gullfiskur eru hluti af heimilishaldinu sem getur orðið ansi fjörugt. Það var einnig líf og fjör í húsinu á upphafsárum þess en þar bjuggu mest 26 manns, en þær upp-lýsingar hefur Birgir úr gömlu mann-tali. Í upphafi var húsið 98 fermetrar, auk kjallara, en í kringum 1920 var byggt við húsið og er það nú 118 fer-metrar, auk kjallara. Upprunalega klæðningin utan á húsinu þekur því einn vegginn inni í húsinu í dag.
Hjónin Birgir Þröstur Jóhanns-
son og Astrid Lelarge búa í 133
ára gömlu húsi við Vesturgötu í
Reykjavík, ásamt sonum sínum
tveimur. Um leið og gengið er
inn í húsið finnst að það á sér
langa og merkilega sögu. Það
marrar í gólfinu, en Birgir og
Astrid rifu upp hvert gólfefnið á
fætur öðru til að finna hið upp-
runalega. Þau segja að mikil-
vægt sé að lesa í gömul hús,
eins og þeirra, og sjá hverju sé
hægt að breyta án þess þó að
valda skemmdum.
Framhald á blaðsíðu 4.
24.–25. apríl 2015
16. tölublað 6. árgangur
Skellti sér fertug
í kraftlyftingar
Sérblað um
viðhald húsa
tíSka 40
Viðtal 20
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i
Sumartískan
innblásin af
hippatímabilinu
Langþráður
draumur að
taka þátt
Mér verður vonandi fyrirgefið ef ég kemst
ekki í úrslitin, að minnsta kosti á endanum,
segir María Ólafsdóttir, 22 ára fulltrúi Íslands
í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva
í Vín í næsta mánuði. Markmið hennar er
engu að síður að komast í úrslitakeppnina,
23. maí, en hún syngur á seinna undanúr-
slitakvöldinu, 21. maí. Það vissu ekki
margir hver María var þegar hún
steig á svið í undankeppninni
á RÚV í byrjun árs, en hún
var fljót að vinna þjóðina
á sitt band og sigraði
með yfirburðum. María
er spennt og segir það
langþráðan draum
að taka þátt. Hún
segist vera feimin og
nýtur sín vel í sveita-
sælunni en hún bjó á
Blönduósi til sjö ára
aldurs, en flutti þá í
Mosfellsbæ.
síða 26
Viðtal 16
Ofbeldið
í ástinni
Viðtal 16
Facebook
er stærsti
tímaþjófurinn
Heiðraðar fyrir
brautryðjenda-
starf á þingi
Úttekt 14
Þetta er engin spurning
Viðbótarlífeyrir er nauðsyn
75%
afsláttur
Haugur af hulstum fyrir
iPhone 3G/3GS,4/4S, 5/5S
Lagersala!
á aðeins 990 kr.
Kringlunni
Fæst í apótekum og heilsubúðum
Góð melting styrkir ónæmiskerfið
Stjórnaðu bakteríuflórunni
með OptiBac
P
R
E
N
T
U
N
.IS